Skip to main content

Hvammsvík – Hot Springs

hot spring near Reykjavik

Nærðu þig í ósnertri náttúru

Sjóböðin í Hvammsvík eru í aðeins 45 mínútna fjarlægð frá Reykjavík. Njóttu þess að láta líða úr þér innan um stórkostlega náttúru Hvalfjarðar.

Átta sjóböð kúra við svarta strönd Norður-Atlantshafsins, umkringd tignarlegum fjöllum.

Þegar þangað er komið er sannarlega hægt að leyfa sér smá munað. Hægt er að synda upp að barnum til að fá sér drykk, fara í róandi gufubað og jafnvel dýfa sér í kaldan og frískandi sjóinn.

Einnig er hægt að leyfa innri ævintýramanneskju að leika lausum hala og taka þátt í alls kyns afþreyingu eins og að fara á strandbretti, í sjósund með leiðsögn, inngangstíma í Wim Hof-aðferð og margt fleira! Slökun og uppgötvun haldast í hendur á þessum kyrrláta unaðsreit.

Aðgangseyrir

Verðbil

5.900 kr - 15.100 kr

Opnunartími

10:30 - 20:30

Bókaðu fyrirfram til að tryggja þér pláss.

Veldu þína upplifun

  • Náttúruleg

    Náttúruleg

    Verð frá

    5.900kr - 9.900kr

    • Útiklefar, yfirbyggðir og hitaðir
    • Ótakmarkaður aðgangur að öllum sjóböðunum og gufubaði
    • Öryggishólf fyrir verðmæti
    • Sjampó, næring og sturtusápa frá Hvammsvík Collection í sturtunum
    • Armband sem hægt er að kaupa drykki með
    • Aðgangur að Stormi Bistro fyrir eða eftir heimsókn

    Verð frá

    5.900kr - 9.900kr

  • hot spring lagoon near Reykjavik

    Klassísk

    hot spring lagoon near Reykjavik

    Klassísk

    Verð frá

    7.900kr - 11.900kr

    • Inniklefar
    • Ótakmarkaður aðgangur að öllum sjóböðunum og gufubaði
    • Læstur skápur fyrir verðmæti og föt
    • Sturtur þar sem hægt er að loka að sér
    • Sjampó, næring og sturtusápa frá Hvammsvík Collection í sturtunum
    • Armband sem hægt er að kaupa drykki með
    • Aðgangur að Stormi Bistro fyrir eða eftir heimsókn

    Verð frá

    7.900kr - 11.900kr

  • swim up bar

    Þæginda

    swim up bar

    Þæginda

    Verð frá

    10.100kr - 15.100kr

    • Inniklefar
    • Ótakmarkaður aðgangur að öllum sjóböðunum og gufubaði
    • Læstur skápur fyrir verðmæti og föt
    • Sturtur þar sem hægt er að loka að sér
    • Sjampó, næring og sturtusápa frá Hvammsvík Collection í sturtunum
    • Armband sem hægt er að kaupa drykki með
    • Aðgangur að Stormi Bistro fyrir eða eftir heimsókn
    • Leiga á handklæði
    • Leiga á sjóskóm
    • Drykkur að eigin vali (takmarkað framboð)

    Verð frá

    10.100kr - 15.100kr

Gjafabréf & 10 skipta kort

Gefðu gjöf náttúrunnar.
Nýtt 10 skipta kort í sjóböðin í Hvammsvík.

Jólahlaðborð Hvammsvíkur

Í samstarfi við Jómfrúna

Jólahlaðborð Jómfrúnnar í samstarfi við Hvammsvík

Hópabókanir

Komdu með hópinn í sjóböðin í Hvammsvík

premium accommodation in Iceland with fjord views

Afþreying

Skoðaðu úrval viðburða í Hvammsvík og nágrenni

Samgöngur

Bókaðu far báðar leiðir frá Reykjavík að sjóböðunum í Hvammsvík.

Transfer to Hvammsvík Hot Springs Geothermal Baths from reykjavik.

Innifalið í aðgöngumiðanum

  • Eight natural hotsprings that evolve into the ocean

    Átta sjóböð sem renna saman við hafið

    Hitastig vatnsins er allt frá sjávarhita (um 10°C) til 42°C í upprunalegu Gömlu lauginni.

  • The perfect city escape

    Hafið er þitt!

    Við mælum með því að koma með eða leigja sjósundskó þar sem steinarnir í fjörunni geta verið grófir og sleipir.

  • Sauna

    Glæný finnsk sauna með útsýni inn eftir Hvalfirðinum.

  • Steam bath and outdoor shower in icelandic spa near reykjavik

    Aðgangur að gufubaði og útisturtu

    Gufubaðið og útisturtan eru frábærar viðbætur við upplifunina af sjóböðunum. Við mælum með að notfæra sér þau á milli þess sem þið prófið mismunandi sjóböð.

  • Paddle boarding

    Standbretti

    Leiga á strandbretti er innifalin í aðgöngumiðanum ef veður leyfir. Vinsamlegast spyrjið starfsfólkið í móttökunni þegar þið mætið fyrir frekari upplýsingar.

  • Wim Hof Method

    Afþreying

    Við höldum ýmis konar viðburði eins og inngangstíma í Wim Hof-aðferð, sjósund með leiðsögn, kayakferðir og fleira! Allir slíkir viðburðir eru innifaldir í aðgöngumiðanum.

  • Swim Up Bar

    Laugarbar

    Í aðallauginni, sem er númer 1 á kortinu, er hægt að synda beint upp að barnum. Fáðu þér drykk á meðan þú slakar á.

  • Kaldur sjópottur

    Nýr kaldur sjópottur við hlið saununnar með fersku sjávarvatni.

Afþreying í og við Hvammsvík

Hiking trail along the Whale Fjord near Reykjavik, Iceland

Fjallgöngur

Skoðaðu fjölda fjallganga, bæði á Hvammsvíkurlandinu og í nærumhverfi þess. Lærðu meira um göngurnar og erfiðleikastig þeirra.

Paddle Boarding in the Whale Fjord

Strandbretti

Á sumrin er hægt að leigja strandbretti og er leigan innifalin í aðgöngumiðanum, svo lengi sem veður leyfir. Spyrjið starfsfólkið í móttökunni fyrir frekari upplýsingar.

Wim Hof Method introduction class

Wim Hof-öndun

Reglulega eru haldin inngangsnámskeið í Wim Hof-öndunartækni. Þátttaka er innifalin í aðgöngumiðanum. Lærðu meira um Wim Hof-tímana og tímasetningar þeirra hér fyrir neðan.

People jumping into the Atlantic Ocean

Sjósund

Viltu prófa að synda í sjónum? Vertu með í inngangstíma í sjósundi fyrir byrjendur undir leiðsögn reyndra sjósundskappa.

Icelandic viking Strength challenge

Atlasaráskorunin

Prófaðu hina fornu lyftingaráskorun þar sem markmiðið er að lyfta þremur steinum yfir öxlina. Lærðu meira um áskorunina og verðlaunin sem eru í boði fyrir sigurvegara!

Iceland hot spring resort restaurant traditional fish soup

Stormur Bistro

Eftir frískandi ferð í sjóböðin mælum við með því að smakka ljúffenga rétti sem gerðir eru úr hráefnum úr nærumhverfi Hvammsvíkur. 

Blue berries in a hand

Berjamór

Við mælum með að fara í góðan göngutúr um svæðið og fara í berjatínslu.

A man fishing by a lake

Veiði

Veiði í stöðuvatninu okkar er í boði fyrir næturgesti. Veiðibúnaður er í boði í húsunum. Vinsamlegast sendið okkur línu á info@hvammsvik.com ef þið hafið spurningar.

A yellow and red kayak in the Atlantic Ocean

Kajakferðir

Hægt er að skella sér á kajak þegar þar til gerðar ferðir eru í boði. Þessir viðburðir verða auglýstir á samfélagsmiðlum okkar og á póstlistanum.

Elf Rock

Steðji

Skoðaðu álfaklettinn (Steðji) í aðeins 5 mínútna akstursfjarlægð frá Hvammsvík.

Síbreytileg upplifun í takt við sjávarföllin og árstíðirnar

Sjóböðin í Hvammsvík eru staðsett þar sem Norður-Atlantshafið liggur að ströndum Hvalfjarðarins. Sjávarföllin hafa því áhrif á hitastig og vatnsmagn sumra lauganna. Við lofum þér einstakri upplifun í hvert skipti.

Summer Season
Fall Season
Spring Season
Winter Season

Sumar

Meðalhitinn á sumrin er yfirleitt á bilinu 10-15°C

5:17

Árdegisflóð

17:29

Síðdegisflóð

Haust

 Meðalhitinn oftast á bilinu 0-10°C.

5:17

Árdegisflóð

17:29

Síðdegisflóð

Vor

Meðalhitinn á vorin er á bilinu 0°C til 10°C

5:17

Árdegisflóð

17:29

Síðdegisflóð

Vetur

Meðalhitastig á veturna er venjulega á bilinu -1°C til 3°C

5:17

Árdegisflóð

17:29

Síðdegisflóð

How to find us

Þú finnur okkur hér

  • 56 km

    frá Reykjavík

  • 98 km

    Frá Keflavík

  • 38 km

    Frá Þingvöllum

  • 377 km

    Frá Akureyri

natural hot springs in Hvalfjörður lagoon iceland near the ocean

„Það getur verið að þetta sé mest töfrandi staður á Íslandi. Ég gæti ekki hugsað mér betri stað til að dvelja á. Mikið næði og glæsilegt útsýni. Frábær staður til að skoða Norðurljósin! Get ekki beðið eftir að koma aftur!

4.9 of 5
5.0 of 5
4.9 of 5