Skilmálar
Öll verð eru sýnd og rukkuð í íslenskum krónum (ISK) og innihalda virðisaukaskatt og önnur gjöld. Hvammsvík ber ekki ábyrgð á færslum eða gjaldeyrisgjöldum sem erlend kortafyrirtæki gætu sett á vegna þessa.
Greiðsla verður að vera gerð við bókun og við áskiljum okkur rétt til að breyta verðum án fyrirvara.
Aðgöngumiða skal kaupa fyrir heimsóknina. Vinsamlegast athugið að hver miði gildir fyrir einn og hver sá sem gerir tilraun til að komast inn án aðgöngumiða mun vera fjarlægður. Hver keyptur miði veitir aðgang á ákveðinni dagsetningu og tíma og við getum ekki ábyrgst inngöngu ef gestir mæta meira en klukkustund fyrir eða eftir bókaðan tíma og ekki er hægt að fá endurgreitt í slíkum tilfellum.
Athugaðu að á meðan það eru ekki tímamörk á heimsókn í Sjóböðin, þá er ekki heimilt að fara aftur ofan í. Eftir innritun, mega gestir ekki yfirgefa búningsklefa og koma aftur seinna þann dag. Þetta er gert til að draga úr örtröð og vernda upplifun gesta.
Hægt er að breyta bókun allt að 24 klukkustundum fyrir bókaðan tíma. Ef nýja tímasetningin er dýrari en sú upprunalega þarf að greiða mismuninn þegar breytingin er gerð. Ef nýja tímasetningin er ódýrari en sú upprunalega fæst ekki endurgreitt fyrir mismuninn. Þurfir þú að breyta bókuninni innan við 24 klukkustundum frá bókunartíma leggst 25% breytingargjald á hvern miða sem breytt er. Vinsamlegast athugið að aðrir skilmálar gilda um hópabókanir og sérstaka viðburði.
Hægt er að hætta við bókun og fá endurgreitt að fullu allt að 36 klukkustundum fyrir bókaðan tíma. Ef hætt er við innan við 36 klukkustundum frá bókuðum tíma er ekki hægt að fá endurgreitt. Við hvetjum gesti til að breyta heldur miðanum sínum líkt og fjallað er um í 5. grein skilmálanna til að koma í veg fyrir forfallagjald. Vinsamlegast athugið að aðrir skilmálar gilda um hópabókanir og sérstaka viðburði.
Aðgangur að sjóböðunum í Hvammsvík takmarkast við 10 ára aldur. Börn á aldrinum 10-18 ára þurfa að vera í fylgd með, og undir eftirliti, fullorðins yfir 18 ára.
Við áskiljum okkur rétt til þess að neita gestum um aðgöngu og biðja gesti um að yfirgefa landareignina hvenær sem er. Við biðjum gesti okkar um að sýna öðrum virðingu, gestum, starfsfólki og náttúru. Við umberum ekkert ofbeldi eða áreiti, hvorki andlegt né líkamlegt, og biðjum gesti vinsamlegast að vera ekki óþarflega hávær.
Gestum ber skylda til að láta starfsfólk vita af hvers kyns sjúkdómum eða heilsufarsvanda sem gæti haft áhrif á dvöl þeirra áður en farið er inn á svæðið. Allir gestir eru á eigin ábyrgð á svæðinu. Það má búast við því að sjóböðin séu um 39 gráður en það getur verið örlítið breytilegt. Sumar laugarnar verða kaldar þegar flæðir að og öll sjóböðin eru við Atlantshafið, sem er kalt. Hitastig og veður eru breytileg.
Gestum ber skylda til að lesa og kynna sér öryggisreglur okkar og fara eftir leiðbeiningum starfsfólks, séu þær fyrir hendi. Vinsamlegast athugið að yfirborðið getur verið blautt og sleipt.
Gestir njóta sjóbaðanna og náttúrunnar í kring á eigin ábyrgð
Ekki er leyfilegt að koma með mat eða drykki sem ekki eru keypt í Hvammsvík inn í sjóböðin
Reykingar eru bannaðar alls staðar á svæðinu
Gæludýr eru bönnuð í og við sjóböðin, einnig í búningsaðstöðu og afgreiðslu
Allir gestir verða að vera í sundfötum þegar þeir heimsækja sjóböðin. Hægt er að leigja sundföt í afgreiðslunni.
Gestir fá armband við komu í sjóböðin. Læstir skápar eru í boði á meðan heimsókninni stendur. Gestir bera ábyrgð á eigum sínum á meðan þeir eru á svæðinu. Hvammsvík ber enga ábyrgð á skemmdum, týndum eða stolnum hlutum. Við mælum sterklega með því að fjarlægja alla skartgripi áður en farið er ofan í sjóböðin.
Armböndin eru tengd við greiðslukort þitt við komu. Aðeins gestir eru ábyrgir fyrir þeim greiðslum sem fara í gegn um armbandið á meðan heimsókn þeirra stendur. Við áskiljum okkur rétt til þess að rukka kortið sem notað var við bókun, takist ekki að gera upp reikning við brottför.
Gestir skulu skila armböndunum í afgreiðslunni við brottför. Við áskiljum okkur rétt til að rukka gesti 2500 kr. af kortinu sem tengt er við armbandið ef því er ekki skilað.
Stranglega bannað er að taka ljósmyndir eða myndbönd í viðskiptalegum tilgangi eða í atvinnuskyni án samþykkis Hvammsvíkur sjóbaða. Við biðjum gesti um að taka aðeins myndir og myndbönd til persónulegra nota og virða friðhelgi annarra gesta á svæðinu og taka ekki myndir af öðrum.
Við gerum okkar allra besta til að hafa sjóböðin alltaf opin samkvæmt auglýstum opnunartíma en við munum alltaf hafa öryggi í fyrirrúmi þegar kemur að ákvörðunum sem snerta gesti okkar. Þess vegna gætu komið upp tilfelli þar sem við neyðumst til að loka sjóböðunum með litlum fyrirvara vegna óviðráðanlegra aðstæðna. Gerist þetta þegar þú átt bókun munum við láta vita eins fljótt og auðið er og þér verður boðið að breyta bókuninni eða fá endurgreitt, henti breyting ekki.
Ekki er hægt að nota gjafabréf í 72 klukkustundir eftir kaup. Gjafabréf gilda í 2 ár frá dagsetningu kaupa og verður að vera notað innan þess tímaramma. Ekki er hægt að skila gjafabréfum og þau fást ekki endurgreidd. Handhafi gjafabréfs þarf að bóka fyrirfram til að tryggja sér pláss. Gjafabréfið tryggir ekki aðgang án bókunar.
Öryggisstaðlar
Við hlökkum til að taka á móti þér í sjóböðunum í Hvammsvík og við höfum öryggið ávallt í fyrirrúmi. Vinsamlegast kynntu þér þessa öryggisskilmála fyrir heimsókn þína. Þessir skilmálar eru hannaðir með þitt öryggi í huga. Þú berð einnig ábyrgð á að kynna þá sem koma með þér fyrir þessum öryggisskilmálum.
Allir gestir eru á eigin ábyrgð í og við sjóböðin.
Aðgangur að sjóböðunum í Hvammsvík takmarkast við 10 ára aldur. Börn á aldrinum 10-18 ára þurfa að vera í fylgd með, og undir eftirliti, fullorðins yfir 18 ára.
Við áskiljum okkur rétt til þess að neita gestum um aðgöngu og biðja gesti um að yfirgefa landareignina hvenær sem er. Við biðjum gesti okkar um að sýna öðrum virðingu, gestum, starfsfólki og náttúru. Við umberum ekkert ofbeldi eða áreiti, hvorki andlegt né líkamlegt, og biðjum gesti vinsamlegast að vera ekki óþarflega hávær.
Gestum ber skylda til að láta starfsfólk vita af hvers kyns sjúkdómum eða heilsufarsvanda sem gæti haft áhrif á dvöl þeirra áður en farið er inn á svæðið. Allir gestir eru á eigin ábyrgð á svæðinu. Það má búast við því að sjóböðin séu um 39 gráður en það getur verið örlítið breytilegt. Sumar laugarnar verða kaldar þegar flæðir að og öll sjóböðin eru við Atlantshafið, sem er kalt. Hitastig og veður eru breytileg.
Yfirborðið gæti verið blautt og sleipt. Gangið varlega og haldið í handriðin. Haldið ykkur á merktum stígum.
Vinsamlegast neytið áfengis í hófi. Við áskiljum okkur rétt til þess að neita gestum um afgreiðslu á áfengi, virðist þeir of ölvaðir. Vinsamlegast athugið að sala á áfengi takmarkast við 20 ára aldur. Gestir sem eru yngri en 20 ára verða ekki afgreiddir um áfengi. Við áskiljum okkur einnig rétt á að biðja um staðfestingu á aldri gesta við komu.
Hægt er að gera bygginguna aðgengilega fyrir hjólastól séum við látin vita fyrirfram. Vinsamlegast athugið að mjög erfitt er að fara um svæðið í hjólastól vegna náttúrulegs landslags staðarins.
Ef þú ert ósynd/ur, vinsamlegast láttu okkur vita við komu. Við erum með takmarkað magn flotvesta, sé þeirra þörf.
Allir gestir verða að þvo sér án sundfata áður en farið er ofan í. Sápu og sjampó má finna í sturtunum.
Notkun farsíma í búningsklefum er alltaf bönnuð.
Gestir verða að fara eftir leiðbeiningum starfsfólks, séu þær fyrir hendi.
Reykingar og notkun vape eru bannaðar alls staðar á svæðinu.
Við bjóðum vatn úr krönum á svæðinu og hvetjum gesti okkar til að drekka vel til að koma í veg fyrir ofþornun.
Vinsamlegast þurrkið ykkur vel með handkæði eftir sturtu og haldið þurrum svæðum í búningsklefunum þurrum.
Læstir skápar eru í boði á meðan heimsókn stendur. Gestir bera ábyrgð á eigum sínum á meðan þeir eru á svæðinu og Hvammsvík ber enga ábyrgð á skemmdum, týndum eða stolnum hlutum.
Vinsamlegast athugið að Hvammsvík sjóböð bera ekki ábyrgð á braki eða öðrum aðskotahlutum í sjónum. Gestir eru á eigin ábyrgð þegar þeir fara út í sjóinn. Við mælum með að nota sjóskó þegar farið er í sjóinn til að verja fæturna. Sjóskór fást leigðir í móttökunni en einnig er velkomið að koma með sína eigin skó.
Persónuverndarstefna
Upplýsingar um meðferð persónugreinanlegra upplýsinga finnur þú í persónuverndarstefnu okkar.
