Skip to main content

Hvammsvík – Hot Springs

The road leading to Hvammsvik

Þú finnur okkur í Hvalfirðinum

Reykjavik to Hvammsvik Hot Springs Map

Hvammsvík er staðsett um miðjan Hvalfjörðinn á þjóðvegi 47, í aðeins 45 mínútna akstri frá Reykjavík.

Við erum aðeins:

  • 52 km frá Reykjavík
  • 38 km frá Akranesi 
  • 47 km frá Þingvöllum
  • 94 km frá Keflavíkurflugvelli

Stysta leiðin frá Reykjavík

Auðveldasta leiðin til að komast til Hvammsvíkur frá Reykjavík er Þjóðvegur 1 í átt að Borgarnesi/Akureyri (norður).

Þegar komið er úr Reykjavík og Mosfellsbæ, er keyrt í um það bil 15 mínútur. Áður en komið er að Hvalfjarðargöngunum er beygt til hægri inn á veg 47 (Athugið: Ekki fara inn í göngin, þá hefurðu farið of langt!). Það er keyrt áfram í um það bil 20 kílómetra þar til skilti Hvammsvíkur sést á vinstri hönd.

Hvammsvík  er auðþekkjanlegt frá veginum með svörtu húsunum á lóðinni. Lóðin er með hliði sem er opið á opnunartíma okkar, ef þú ert með bókað í gistingu skaltu fylgja leiðbeiningum í staðfestingarpóstinum.

  • Reykjavik to Hvammsvik Hot Springs Map
  • Hvammsvík Hot Springs how to get there

Þegar þú kemur inn um hliðið að Hvammsvík frá vegi 47 tekur við afleggjari með dæmigerðum íslenskum malarvegi.

Vinsamlegast keyrðu varlega og njóttu.