
Matur & drykkur
Komdu út að borða! Við bjóðum upp á unaðslegan matseðil á veitingastaðnum okkar, sem staðsettur er í aðalbyggingunni þegar komið er í sjóböðin. Fáðu þér drykk á laugarbarnum á meðan þú slakar á í heitri laug.
Fyrir stærri hópa bjóðum við upp á þriggja til sex rétta matseðil og léttari veitingar í Hlöðunni okkar.

Stormur Bistro
Eftir frískandi ferð í sjóböðin mælum við með því að smakka ljúffenga rétti sem gerðir eru úr hráefnum úr nærumhverfi Hvammsvíkur.
Vinsælasti rétturinn á Stormi Bistro er án efa sjávarréttasúpan, sem er borin fram með fersku súrdeigsbrauði og smjöri. Einnig er hægt að fá súpuna í vegan útfærslu.
Allir drykkir eru einnig fáanlegir beint ofan í húslaugina, sem er sú fyrsta sem mætir þér þegar þú kemur í sjóböðin.
Eldhúsið á Stormi Bistro er opið frá 11:30 til 19:30 og á sumrin, frá 1. júní til 20. ágúst, er eldhúsið opið frá 12:00 til 20:30. Ekki er tekið við borðapöntunum.
Matseðill
Matur
Bar Snakk
Harðfiskur með sölvun og smjöri
2.590 ISK
Burrata, vatnsmelóna, tómatar, basil og ólífuolía v*
2.390 ISK
Blanda af ólívum ve*
990 ISK
Hnetu blandan okkar ve*
990 ISK
Súrdeigsbrauð með smjöri ve*
Hægt að fá döðlupestó
790 ISK
Súpan Okkar
Sjávarréttasúpa Hvammsvíkur með öllu því besta sem sjórinn færir okkur
Borin fram með súrdeigsbrauði og smjöri. Inniheldur hnetur
3.990 ISK
Hægt að fá vegan
Borin fram með súrdeigsbrauði og smjöri. Inniheldur hnetur
3.390 ISK
Brauðin Okkar
Súrdeigsbrauð með rækju píramída, eggjum, sítrónu og Hvammsvíkur sósunni
3.490 ISK
Súrdeigsbrauð með nautaþynnum, súrum gúrkum, sesamsósu, eggi og steiktum hvítlauk
3.490 ISK
Súrdeigsbrauð með parmaskinku, nduja, ostasalati og mozzarella
3.590 ISK
Súrdeigsbrauð með sesam marineruðu tofu, asísku gúrkusalati og gljáðum lauk v*
3.190 ISK
Kökur
Súkkulaðikaka ve*
hægt að fá með þeyttum rjóma
1.490 ISK
Gulrótarkaka með þeyttum rjóma
1.490 ISK
Hafraklatti eða súkkulaðibitakaka
790 ISK
Drykkir
Orkuskot
Heilsuskot Hvammsvíkur ve*
Ferskt skot, fullt af andoxandi astaxanthin unnu úr þörungum
790 ISK
Á dælu
Egils Gull
Lager | 4%
1.690 ISK
Aperol Spritz
Aperol, frizzenti & soda | 10%
2.290 ISK
Úlfrún
session IPA | 4,5%
1.890 ISK
Barone Montalto
freyðivín | 10,5%
1.790 ISK
Boli
Lager | 5,6%
1.790 ISK
Úr kælinum
Gull Lite
án glútens | 4,4% | 330 ml
1.390 ISK
Gull
áfengislaus bjór | 330 ml
890 ISK
Bríó
áfengislaus bjór | 330 ml
890 ISK
Somersby Apple
cider | 4,5% | 330 ml
1.490 ISK
Bottega Bianco
óáfengt prosecco
790 ISK
/ glass
3.290 ISK
/ bottle
Collab
koffeindrykkur | 330 ml
790 ISK
Pepsi
330 ml
590 ISK
Pepsi Max
330 ml
590 ISK
Egils Appelsín
Hið eina sanna | 330 ml
590 ISK
Agla Gosgerð Sítrón
íslenskt límonaði | 330 ml
590 ISK
Egils Kristall
Sódavatn | 330 ml
490 ISK
Töst Original
Rosé freyðandi te | 150 ml
890 ISK
Apéro Soda
Óáfengur kokteill | 250 ml
1.290 ISK
Pink Paloma
Óáfengur kokteill | 250 ml
1.290 ISK
Sól appelsínusafi
Appelsínusafi | 330 ml
790 ISK
Blandaðir drykkir
BAGL
Basil, Gin & Lime | 330ml
1.690 ISK
VES
Vodka, engifer & límonaði | 330 ml
1.690 ISK
Espresso Martini
125 ml
2.490 ISK
STD
Jarðarberja Daquiri | 330 ml
1.690 ISK
G&T
Bombay Sapphire G&T | Gin & Tonic | 250 ml
1.990 ISK
Heitir drykkir
Espresso | Americano
Dökkt eins og tunglslaus nótt
790 ISK
Latte | Cappuccino | Macchiato
890 ISK
Kakó með rjóma
990 ISK
Te
Spyrjið um úrval
790 ISK
Vín
Hvítvín
Angelo Pinot Grigio
Italy
1.690 ISK
/ glass
6.500 ISK
/ bottle
Matua Sauvignon Blanc
New Zealand
1.790 ISK
/ glass
7.500 ISK
/ bottle
Laroche St. Martin Chablis
France
1.990 ISK
/ glass
9.500 ISK
/ bottle
Cervaro della Sala Chardonnay
Italy
22.990 ISK
/ bottle only
Rauðvín
Masi Modelo Rosso
Italy
1.690 ISK
/ glass
6.500 ISK
/ bottle
Angelo Montepulciano D’abbruzzo
Italy
1.790 ISK
/ glass
7.500 ISK
/ bottle
Ramon Bilbao Edicion Limitada
Spain
1.990 ISK
/ glass
9.500 ISK
/ bottle
Antinori Tignanello
Italy
42.990 ISK
/ bottle only
Guado Al Tasso
Italy
39.990 ISK
/ bottle
Rósavín
Torre Mora Etna Rosato Scalunera
Italy
1.790 ISK
/ glass
7.500 ISK
/ bottle
Chateau d’Esclans Whispering Angel
France
15.900 ISK
/ bottle only
Kampavín
Moet & Chandon Brut Imperial
France
5.900 ISK
/ glass
18.900 ISK
/ bottle
Dom Perignon
France
79.900 ISK
/ bottle only
Hópar og viðburðir
Hópar sem taka böðin í einkaleigu eða leigja öll húsin í gistingunni, geta fengið einkaaðgang að Hlöðunni. Í henni er fyrsta flokks aðstaða fyrir hvers kyns fundarhöld og hópviðburði.
Við bjóðum upp á hópamatseðla sem eru þróaðir sérstaklega eftir þörfum hópsins. Í hlöðunni eru sæti fyrir 10-60 manns. Ef þú ert með fyrirspurn um sitjandi kvöldverð fyrir stærri hóp, endilega láttu okkur vita um fjölda gesta í skjalinu neðst undir hópa bókanir.
Hægt er að velja um þriggja eða fjögurra rétta seðil. Einnig bjóðum við upp á einstaka sjö rétta matarupplifun sem þróuð er af meistara kokkinum Hinriki Karli. Hann mun reiða fram ljúffenga rétti með öllu því besta hráefni sem Hvalfjörður hefur uppá að bjóða.
Viðtal við yfirkokkinn
Hinrik Karlsson er yfirkokkurinn í Hvammsvík. Hann hefur vandlega sett saman matseðil þar sem hráefni úr nærumhverfinu fá að njóta sín.
Hvenær hófst þú störf í Hvammsvík?
Ég hef unnið hér í 9 ár með eigandanum löngu áður en sjóböðin í Hvammsvík opnuðu. Þessi hugmynd hefur því verið lengi í bígerð og nú erum við að sjá afraksturinn.
Hver er innblásturinn á bakvið réttina sem eru í boði á Stormi Bistro?
Ég myndi segja að umhverfið sé það sem hefur veitt mér mestan innblástur. Við reynum að nota þau hráefni sem umhverfið hefur upp á að bjóða. Þegar sveppatímabilið stendur yfir notum við þá og það sama gildir um berin og auðvitað þangið sem við notum í heilsuskotin okkar.
Hver var innblástuinn á bakvið sjávarréttasúpuna?
Þróunarferlið var langt og strangt en ég uppgötvaði sum hráefnin á ferðalagi erlendis. Þannig varð úr karrýgrunnur sem ég setti saman við ferskt, íslenskt sjávarfang. Þessi einstaka blanda hráefna er það sem gerir réttinn sérstakan.

Hin víðfræga sjávarréttasúpa
Eftir frískandi ferð í sjóböðin mælum við með því að smakka ljúffenga rétti sem gerðir eru úr hráefnum úr nærumhverfi Hvammsvíkur. Vinsælasti rétturinn á Stormi Bistro er án efa sjávarréttasúpan, sem er borin fram með fersku súrdeigsbrauði og smjöri. Við bjóðum einnig upp á vegan og glútenfrí sjávarþangssúpu og fleiri vegan og glútenfría rétti. Þið getið skoðað matseðilinn hér fyrir ofan.





