
Jólahlaðborð Hvammsvíkur í samstarfi við Jómfrúna
Í ár verður hið danska jólahlaðborð Jómfrúarinnar, í samstarfi við Hvammsvík, í boði í hlöðunni. Komdu með hópinn þinn í sjóböðin og endaðu kvöldið á æðislegum mat í veislusalnum okkar. Hentar fjölskyldum, vinahópum og vinnufélögum sem vilja skapa ógleymanlegar jólaminningar.
Nánari Upplýsingar
Jólahlaðborðið verður í boði alla fimmtudaga, föstudaga og laugardaga frá 12. nóvember til og með 12. desember.
Við tökum á móti hópum frá 4 til 40 manns í Hlöðunni.
Fyrir stærri hópa allt frá 30 til 40 manns er hægt að bóka Hlöðuna í einkaleigu. Endilega takið það fram í forminu hér að neðan ef óskað er eftir einkaleigu.
Verð á mann er 16.900 kr. Innifalið er jólahlaðborð í veislusalnum okkar, Hlöðunni, og klassískur aðgangur fyrir hópinn í sjóböðin.
Hópurinn fer í sjóböðin kl. 16:30 og borðhald hefst í Hlöðunni kl. 19:00.
Greiðslu- og afbókunarskilmálar
Við staðfestingu bókunar er greitt 25% staðfestingargjald af heildarverði á mann. Eftirstöðvar eru innheimtar viku fyrir komu.
Sé afbókað eða fækkun á gestafjölda eftir að staðfestingargjaldið er greitt er það óendurkræft.
Takmarkað pláss er í boði, svo það borgar sig að bóka tímanlega.


Matseðillinn
Kaldir réttir
Jólasíld Jómfrúarinnar á rúgbrauði
með kapers, lauk og eggi
Skelfisksalat á ristuðu franskbrauði
með sítrónu, handpillaðri úthafsrækju og fersku dilli
Hátíðarpaté Jómfrúarinnar
með Cumberland-sósu
Sinnepsgljáður hamborgarhryggur á ristuðu franskbrauði
með Waldorfsalati
Graflax á ristuðu franskbrauði
með sinneps- og dillsósu, sítrónu og fersku dilli
Aðalréttur
Purusteik
með sykurbrúnuðum kartöflum, heitu rauðkáli, rauðrófusalati og villisveppasósu
Eftirréttur
Ris à la mande
með kirsuberjasósu, þeyttum rjóma og kirsuberi


Hafðu samband
Fylltu inn formið fyrir neðan og við höfum samband.
