Group Bookings close to Reykjavik

Hópabókanir | Hvammsvík

Hópabókanir

Hvammsvík er fullkominn staður til að flýja hversdagsleikann. Í aðeins 45 mínútna fjarlægð frá Reykjavík. Við tökum á móti stórum og smáum hópum, hvort sem á að fagna merkum áfanga eða efla liðsandann.

Hópurinn getur slakað á í sjóböðunum eða úti í náttúrunni. 10-40 manns er ákjósanlegasti fjöldinn í sjóböðin en við getum tekið við allt að 152 manns í einu þegar um einkaleigu er að ræða.

Þá erum við með fundarsal í Hlöðunni okkar sem fylgir einkaleigu á böðunum eða gistingunni.

Ef þú hefur áhuga á að koma með hóp í Hvammsvík, vinsamlegast fylltu út eyðublaðið hér fyrir neðan og við verðum í bandi!

Sjóböðin

Við bjóðum upp á átta heitar laugar af mismunandi stærðum og hitastigi, staðsettar í Hvalfirði. Við bjóðum upp á skemmtilegar afþreyingar eins og sjóbretti, sjósund, kynningarnámskeið í Wim Hof tækni og margt fleira sem er innifalið í aðgangsmiðanum þínum!

Hópar með 10 manns eða fleiri geta sent inn bókunarbeiðni hér að neðan, og við sendum tilboð.

Hægt er að leiga út allar laugarnar fyrir einkaviðburði.

Fylltu út formið hér að neðan fyrir allar hópbókanir!

Baðgestir í efri strandlauginni
Þrjú hlaupa út í sjóinn
A women paddle boarding in the Atlantic Ocean.

Gisting

Hvammsvík býður upp á 12 hús i í einstöku umhverfi fyrir starfsmannahópinn.

Í boði eru fjögur nýuppgerð hús sem henta fullkomlega fyrir hópa sem vilja dvelja saman undir einu þaki og eru tilvalin til að efla tengsl og samvinnu. Listamannaskálarnir átta eru notaleg og stílhrein minni hús, sem geta hýst 1–2 gesti.

Fyrir stærri fyrirtækjaviðburði þarf að bóka öll 12 húsin. Þá hefur hópurinn Hvammsvík út af fyrir sig, með einkaaðgangi að Hlöðunni og Hofinu fyrir fundi, kvöldverði eða veislur.

Hús í Hvammsvík undir skýjuðum fjöllum
Stofa með arni og útsýni yfir fjörðinn
Interior of a bedroom
Interior of a cabin which we call the Artist Lodge

Hlaðan

Hlaðan býður upp á aðstöðu í hæsta gæðaflokki. Hún hentar vel fyrir stefnumótunarfundi, vinnustofur og til að fagna áföngum og gleðjast saman.

Rýmið í Hlöðunni er notalegt og hlýlegt og er því fullkomið að slaka þar á eftir daginn. Hægt er að nýta Hlöðuna bæði undir hanastél og kvöldverði. Sé þess óskað, getum við mælt með traustum samstarfsaðilum þegar kemur að því að skapa sérsniðna matseðla fyrir hópinn.

Í Hlöðunni má einnig finna afþreyingarrými þar sem hægt er að spila pool og borðtennis, pílukast og taka í spil. Hópurinn getur einnig notið útivistar á Hvammsvíkurlandinu eða í Hvalfirðinum. Eftir árstíðum og veðri eru einnig möguleikar á standbrettum, sjósundstímum, Wim-Hof námskeiði og annarri afþreyingu.

Undir Hlöðunni má svo finna nýlega líkamsræktaraðstöðu og þykir Hvammsvíkurjörðin henta einstaklega vel til náttúruhlaupa.

art center Reykjavík, Icelandic Art
Setustofa og borðstofa í Hlöðunni
Líkamsræktin í Hlöðunni

Afþreying í og við Hvammsvík

Par gengur um grösuga hlíð

Gönguleiðir

Fjöldi gönguleiða er í boði, bæði á landareign Hvammsvíkur og í Hvalfirðinum.

Kona með strandbretti í flæðarmálinu

Standbretti

Á sumrin geta gestir í Sjóböðunum fengið lánuð strandbretti, þegar veður leyfir. Starfsfólkið í móttökunni veita frekari upplýsingar.

Wim Hof-öndun á klettunum við sjóinn

Wim Hof–öndun

Reglulega er býðst gestum í Sjóböðunum að taka þátt í byrjendatímum í Wim Hof-öndunartækninni. Lærðu meira um Wim Hof-tímana og tímasetningar þeirra hér fyrir neðan.

Ocean swimming activity. Email list

Sjósund

Viltu prófa að synda í sjónum? Vertu með í byrjendatíma í sjósundi undir leiðsögn reynds sjósundsfólks.

Kona lyftir Atlassteini

Atlasaráskorunin

Prófaðu hina fornu aflraun þar sem markmiðið er að lyfta þremur steinum upp fyrir öxl. Lærðu meira um þolraunina og verðlaunin sem eru í boði fyrir sigurvegara!

icelandic seafood stew at Hvammsvik near Reykjavik

Stormur Bistro

Eftir frískandi ferð í sjóböðin mælum við með því að smakka ljúffenga rétti sem eru innblásnir af nærumhverfi Hvammsvíkur.

Veiðimaður kastar flugu í vatnið

Veiði

Veiði í vatninu okkar stendur næturgestum til boða. Veiðistangir eru í boði í húsunum. Vinsamlegast sendið okkur línu á info@hvammsvik.com ef þið hafið spurningar.

Steðji, klettadrangur í Hvalfirði

Steðji

Steðji eða Staupasteinn er á Hvammsvíkurjörðinni, í aðeins 5 mínútna akstursfjarlægð frá Hvammsvík.

Bláber í lófa

Berjamór

Við mælum með að fara í góðan göngutúr um svæðið og tína ber síðsumars og á haustin.

Kajakar á firðinum

Kajakferðir

Hægt er að skella sér á kajak þegar þar til lgerðar ferðir eru í boði. Þessir viðburðir verða auglýstir á samfélagsmiðlum okkar og póstlistanum.

Hafðu Samband

Vinsamlegast sendið okkur hópafyrirspurn tímanlega með því að fylla út reitina hér að neðan.

Hvað má bjóða ykkur?
How to find us

Þú finnur okkur hér

frá Reykjavík
56km
frá Keflavíkurflugvelli
98km
frá Thingvellir
38km
frá Akureyri
377km
Frekari upplýsingar
hot spring lagoon spa hotel resort near reykjavik

Vertu með á póstlistanum

Skráðu þig til að fá sendar upplýsingar um sérviðburði, tilboð og fleira!