Fyrirtækjagjafir

Algengar spurningar um gjafabréf

Svona bókar þú með gjafabréfi í Hvammsvík

Algengar spurningar um gjafabréfin okkar

Ertu með spurningar um gjafabréf sem þú átt eða áttu í vandræðum með að bóka með gjafabréfi? Hér fyrir neðan finnur þú algengustu spurningar varðandi gjafabréfin.

Til að bóka með gjafabréfi ferðu inn á bókunarvélina okkar og velur hvernig klefa og fjölda gesta. Síðan velurðu dagsetningu og tíma bókunar. Í greiðsluferlinu er greitt með gjafabréfinu með því að setja inn kóðann á gjafabréfinu inn í reit merktan "gjafakort".

Við mælum ávallt með því að bóka tíma fyrirfram á www.hvammsvik.is til að tryggja aðgang þar sem við takmörkum fjölda gesta á staðnum hverju sinni.

Ef mætt er á staðinn án bókunar er mögulegt að ekki sé hægt að verða við aðgangi á viðkomandi tíma.

Aðeins er hægt að greiða bókun með einu gjafabréfi í einu, ef þú ert með mörg gjafabréf þá þarf að gera bókun fyrir hvert og eitt gjafabréf.

Ef þú lendir í vandræðum með að bóka eða þarf aðstoð, vinsamlegast sendu tölvupóst á sala@hvammsvik.is og við aðstoðum eins fljót og auðið er.

Athugaðu að prófa hvort þú hafir slegið eitthvað vitlaust inn, til dæmis tölustafinn núll í stað bókstafsins O.

Einnig getur verið gott að hafa samband við þann sem keypti gjafabréfið upphaflega og athuga hvort viðkomandi hafi sent vitlaust gjafabréf eða kóða.

Þér er velkomið að senda okkur tölvupóst á sala@hvammsvik.is og við gerum okkar besta í að leysa málið.

Inneignina er hægt að nota í allar vöruúttektir í sjóböðunum s.s. bókanir í sjóböðin, mat og/eða drykki á veitingastaðnum Stormi eða snyrtivörur sem seldar eru á staðnum. Við mælum ávallt með að heimsókn í sjóböðin sé bókuð fyrirfram á www.hvammsvik.is svo gestir verði ekki fyrir vonbrigðum við komu sé fullbókað á viðkomandi tíma. Athugið að ekki er tekið við bókunum á veitingastaðinn.

Gjafabréf sem veita aðgang í sjóböðin er hægt að nýta til að bóka aðgangsmiða í sjóböðin á heimasíðunni okkar www.hvammsvik.is. Gjafabréfin er ekki hægt að nýta til að greiða fyrir mat og/eða drykki á veitingastaðnum Stormi eða snyrtivörur sem seldar eru á staðnum.

Ef þú ert með Premium gjafabréf þá er bókaður Þægindapakkinn (Comfort) aðgangur í sjóböðin og er innifalið vaðskór, handklæði og vaðskór ásamt aðgangi í sjóböðin.

Ef þú ert með gjafabréf fyrir einn eða tvo gesti þá er bókaður Klassískur (Classic) aðgangur í sjóböðin og veitir aðgang í sjóböðin í Hvammsvík. Gjafabréfið er einnig hægt að nota til að bóka Náttúrulegan (Natural) aðgang ef ekki er laust í Klassíska (Classic) klefann á þeim tíma sem þú vilt bóka.

Gjafabréf gilda í tvö ár frá útgáfudegi og er gildistíminn sjáanlegur á gjafabréfinu. Ef þú telur þig ekki geta notað gjafabréfið innan þess tíma endilega sendu okkur póst á sala@hvammsvik.is og við leysum málið með þér.

Nei, því miður er ekki hægt að skila gjafabréfum gegn endurgreiðslu.

Nei, því miður er ekki hægt að fá mismuninn endurgreiddan eða sem inneign í úttektir.

Við mælum ávallt með að bóka tímalega til að tryggja aðgengi að þeirri þjónustu sem inneign er fyrir.

Því miður er ekki hægt að greiða með YAY gjafabréfi á heimasíðunni okkar. Sendu okkur endilega póst á sala@hvammsvik.is með nafni, fjölda gesta og hvaða upplifun þú vilt bóka ásamt dagsetningu og tíma bókunar og við bókum það. Þú verður svo að mæta með gjafabréfið við komu og afhenda starfsmanni í afgreiðslu tímakóðann frá YAY við mætingu.

How to find us

Þú finnur okkur hér

frá Reykjavík
56km
frá Keflavík
98km
frá Þingvöllum
38km
frá Akureyri
377km
Frekari upplýsingar