
Nærðu þig í ósnertri náttúru
Sjóböðin í Hvammsvík eru í aðeins 45 mínútna fjarlægð frá Reykjavík. Njóttu þess að láta líða úr þér innan um stórkostlega náttúru Hvalfjarðar.
Átta sjóböð kúra við svarta strönd Norður-Atlantshafsins, umkringd tignarlegum fjöllum.
Þegar þangað er komið er sannarlega hægt að leyfa sér smá munað. Hægt er að synda upp að barnum til að fá sér drykk, fara í róandi gufubað og jafnvel dýfa sér í kaldan og frískandi sjóinn.
Einnig er hægt að leyfa innri ævintýramanneskju að leika lausum hala og taka þátt í alls kyns afþreyingu eins og að fara á strandbretti, í sjósund með leiðsögn, inngangstíma í Wim Hof-aðferð og margt fleira! Slökun og uppgötvun haldast í hendur á þessum kyrrláta unaðsreit.
Veldu þína upplifun
-

Náttúruleg

Náttúruleg
Verð frá
5.900kr - 9.900kr
- Útiklefar, yfirbyggðir og hitaðir
- Ótakmarkaður aðgangur að öllum sjóböðunum og gufubaði
- Öryggishólf fyrir verðmæti
- Sjampó, næring og sturtusápa frá Hvammsvík Collection í sturtunum
- Armband sem hægt er að kaupa drykki með
- Aðgangur að Stormi Bistro fyrir eða eftir heimsókn
-

Klassísk

Klassísk
Verð frá
7.900kr - 11.900kr
- Inniklefar
- Ótakmarkaður aðgangur að öllum sjóböðunum og gufubaði
- Læstur skápur fyrir verðmæti og föt
- Sturtur þar sem hægt er að loka að sér
- Sjampó, næring og sturtusápa frá Hvammsvík Collection í sturtunum
- Armband sem hægt er að kaupa drykki með
- Aðgangur að Stormi Bistro fyrir eða eftir heimsókn
-

Þæginda

Þæginda
Verð frá
10.100kr - 15.100kr
- Inniklefar
- Ótakmarkaður aðgangur að öllum sjóböðunum og gufubaði
- Læstur skápur fyrir verðmæti og föt
- Sturtur þar sem hægt er að loka að sér
- Sjampó, næring og sturtusápa frá Hvammsvík Collection í sturtunum
- Armband sem hægt er að kaupa drykki með
- Aðgangur að Stormi Bistro fyrir eða eftir heimsókn
- Leiga á handklæði
- Leiga á sjóskóm
- Drykkur að eigin vali (takmarkað framboð)
Þæginda
Þæginda uplifunin veitir þér aðgang að inniklefunum okkar. Þar er að finna læsta skápa fyrir verðmæti og föt, lokaðar sturtur, salerni, snyrtiborð með speglum og hárblásurum og okkar eigin Hvammsvíkur vörur, handsápu, sjampó, sturtusápu og hárnæringu.
Þæginda upplifunin inniheldur einnig lánshandklæði og -vaðskó sem einkar þægilegt er að nota þegar gengið er milli lauga eða farið í kalt Atlantshafið. Þá er einnig innifalinn einn drykkur á mann.
Allir gestir fá ótakmarkaðan aðgang að öllum laugunum okkar, gufubaði og Atlantshafinu.
Við mælum svo með að byrja eða enda heimsóknina á veitingastaðnum okkar, Stormi.

Aðallaugin
Í aðallauginni finnurðu laugarbarinn. Hún er um 38°C/100°F.

Laugarbarinn
Prófaðu úrval af heitum og köldum drykkjum á laugabarnum okkar!

Efri steinalaugin
Efri steinalaugin er 38-40°C / 100-104°F. og er staðsett við hlið Atlas-áskorunarinnar

Neðri steinalaugin
Neðri steinalaugin er 38°C/100°F. Staðsetning hennar er tilvalin fyrir þau sem vilja dýfa sér í sjóinn.

Sjávarfallalaugin
Sjávarfallalaugin er 35°C/95°F en hitastig hennar er breytilegt eftir sjávarföllum. Stundum hverfur laugin alveg í sjávarmálinu.

Neðri strandlaugin
Neðri strandlaugin er 37-40°C / 98-104°F

Efri strandlaugin
Efri strandlaugin er 38-40°C / 100-104°F

Gamla laugin
Þetta er elsta og heitasta laugin á svæðinu, hún er 39-42°C / 102-107°F

Kaldur pottur
Kaldi potturinn er fyrir framan saununa og hefur sama hitastig og sjórinn.

Sauna
Glæný sauna er 70-90°C / 158-194°F

Gufubað
Við mælum með því að kíkja í gufuna á milli þess sem farið er í sjóböðin eða eftir sjósund.

Atlas Challenge Stones
Reyndu við Atlas-áskorunina og þú gætir fengið verðlaun! Meira um áskorunina hér.

Stormur Bistro
Hvað er betra en góð máltíð eftir slakandi dvöl í sjóböðunum? Skoðaðu matseðilinn hér.

Eldstæði
Skapaðu góðar minnigar með fjölskyldu og vinum við varðeldinn.

Móttakan
Velkomin í sjóböðin í Hvammsvík! Njóttu þín innan um náttúruna í átta mismunandi sjóböðum.

Atlantshafið
Við mælum með að skipta á milli þess að liggja í hverunum og taka frískandi dýfu í Atlantshafið!
Innifalið í aðgöngumiðanum

Átta sjóböð sem renna saman við hafið
Hitastig vatnsins er allt frá sjávarhita (um 10°C) til 42°C í upprunalegu Gömlu lauginni.

Hafið er þitt!
Við mælum með því að koma með eða leigja sjósundskó þar sem steinarnir í fjörunni geta verið grófir og sleipir.

Sauna
Glæný finnsk sauna með útsýni inn eftir Hvalfirðinum.

Aðgangur að gufubaði og útisturtu
Gufubaðið og útisturtan eru frábærar viðbætur við upplifunina af sjóböðunum. Við mælum með að notfæra sér þau á milli þess sem þið prófið mismunandi sjóböð.

Standbretti
Leiga á strandbretti er innifalin í aðgöngumiðanum ef veður leyfir. Vinsamlegast spyrjið starfsfólkið í móttökunni þegar þið mætið fyrir frekari upplýsingar.

Afþreying
Við höldum ýmis konar viðburði eins og inngangstíma í Wim Hof-aðferð, sjósund með leiðsögn, kayakferðir og fleira! Allir slíkir viðburðir eru innifaldir í aðgöngumiðanum.

Laugarbar
Í aðallauginni, sem er númer 1 á kortinu, er hægt að synda beint upp að barnum. Fáðu þér drykk á meðan þú slakar á.

Kaldur sjópottur
Nýr kaldur sjópottur við hlið saununnar með fersku sjávarvatni.
Afþreying í og við Hvammsvík

Fjallgöngur
Skoðaðu fjölda fjallganga, bæði á Hvammsvíkurlandinu og í nærumhverfi þess. Lærðu meira um göngurnar og erfiðleikastig þeirra.

Strandbretti
Á sumrin er hægt að leigja strandbretti og er leigan innifalin í aðgöngumiðanum, svo lengi sem veður leyfir. Spyrjið starfsfólkið í móttökunni fyrir frekari upplýsingar.

Wim Hof-öndun
Reglulega eru haldin inngangsnámskeið í Wim Hof-öndunartækni. Þátttaka er innifalin í aðgöngumiðanum. Lærðu meira um Wim Hof-tímana og tímasetningar þeirra hér fyrir neðan.

Sjósund
Viltu prófa að synda í sjónum? Vertu með í inngangstíma í sjósundi fyrir byrjendur undir leiðsögn reyndra sjósundskappa.

Atlasaráskorunin
Prófaðu hina fornu lyftingaráskorun þar sem markmiðið er að lyfta þremur steinum yfir öxlina. Lærðu meira um áskorunina og verðlaunin sem eru í boði fyrir sigurvegara!

Stormur Bistro
Eftir frískandi ferð í sjóböðin mælum við með því að smakka ljúffenga rétti sem gerðir eru úr hráefnum úr nærumhverfi Hvammsvíkur.

Berjamór
Við mælum með að fara í góðan göngutúr um svæðið og fara í berjatínslu.

Veiði
Veiði í stöðuvatninu okkar er í boði fyrir næturgesti. Veiðibúnaður er í boði í húsunum. Vinsamlegast sendið okkur línu á info@hvammsvik.com ef þið hafið spurningar.

Kajakferðir
Hægt er að skella sér á kajak þegar þar til gerðar ferðir eru í boði. Þessir viðburðir verða auglýstir á samfélagsmiðlum okkar og á póstlistanum.

Steðji
Skoðaðu álfaklettinn (Steðji) í aðeins 5 mínútna akstursfjarlægð frá Hvammsvík.
Síbreytileg upplifun í takt við sjávarföllin og árstíðirnar
Sjóböðin í Hvammsvík eru staðsett þar sem Norður-Atlantshafið liggur að ströndum Hvalfjarðarins. Sjávarföllin hafa því áhrif á hitastig og vatnsmagn sumra lauganna. Við lofum þér einstakri upplifun í hvert skipti.




Sumar
Meðalhitinn á sumrin er yfirleitt á bilinu 10-15°C
5:52
Árdegisflóð
18:04
Síðdegisflóð
Haust
Meðalhitinn oftast á bilinu 0-10°C.
5:52
Árdegisflóð
18:04
Síðdegisflóð
Vor
Meðalhitinn á vorin er á bilinu 0°C til 10°C
5:52
Árdegisflóð
18:04
Síðdegisflóð
Vetur
Meðalhitastig á veturna er venjulega á bilinu -1°C til 3°C
5:52
Árdegisflóð
18:04
Síðdegisflóð
















