MICE meeting venue space near reykjavik

Vinnustofur og hvataferðir

Aðstaða fyrir vinnustofur, fundi og hvataferðir

Hvammsvík er aðeins 45 mínútur frá Reykjavik og er fullkominn áfangastaður fyrir teymi sem vilja komast úr hversdagsleikanum í náttúrulegt umhverfi. Hvammsvík hentar vel til að styrkja samstarf, tendra sköpunarneistann og fagna sameiginlegum árangri.

Aðstaðan okkar í hlöðunni hentar best fyrir allt að 40 manns, en hægt er að taka á móti stærri hópum.

Einnig er pláss fyrir allt að 154 gesti í sjóböðunum.

Hlaðan

Hlaðan býður upp á aðstöðu í hæsta gæðaflokki. Hún hentar vel fyrir fundi, vinnustofur, til að fagna áföngum og gleðjast saman. Hlaðan er fullkomin fyrir hópa allt að 40 manns.

Dagsverð á Hlöðunni er 150.000 krónur og innifalið í því er kaffi, te og vatn. Hlaðan er til leigu frá kl. 8–22. Fyrir stærri hópa og viðburði, endilega hafið samband hér að neðan.

Í Hlöðunni má einnig finna afþreyingarrými þar sem hægt er að finna poolborð, borðtennis, píluspjald, og fótboltaspil. Hópurinn getur einnig notið útivistar á Hvammsvíkurlandinu eða í Hvalfirðinum. Eftir árstíðum og veðri eru einnig möguleikar á standbrettum, sjósundstímum, Wim-Hof námskeiði og annarri afþreyingu.

meeting space for Corporate Retreats in Iceland near Reykjavik.
Rec room icelandic hotel near Reykjavik perfect for Corporate Retreats to unwind and have workshops.

Matur og Drykkur

Hlaðan breytist auðveldlega í hlýlegt og notalegt rými fyrir einkahádegis- og kvöldverði.

Við bjóðum upp á mat og drykki af matseðli okkar á Storm Bistro. Einnig er hægt að fá einkakokk til að útbúa sérsniðna máltíð. Sé þess óskað getum við mælt með traustum samstarfsaðilum til að skapa sérsniðna matseðla fyrir hópinn. Gestir geta einnig valið vín af vínseðli okkar eða komið með eigið vín gegn tappagjaldi.

Fyrir aðrar matarupplifanir eða sérstakar óskir er hægt að hafa samband hér að neðan.

dining options near reykjavik
icelandic seafood stew at Hvammsvik near Reykjavik
Restaurant near reykjavik

Sjóböðin

Eftir viðburðaríkan dag er fátt betra fyrir hópinn en að slaka á í Sjóböðunum í Hvammsvík. Böðin rúma allt að 154 gesti og henta því jafnt litlum sem stórum hópum. Við krefjumst þess að allir hópar sem leigja Hlöðuna fari í sjóböðin.

Fyrir hópa sem eru stærri en 40 gestir er krafist fullrar útleigu á annaðhvort gistingu okkar eða sjóböðunum. Hægt er að senda inn fyrirspurn með því að fylla út formið hér að neðan.

Icelandic nature, nordic wellness retreat
Hot Spring Resort for Corporate retreats
Icelandic Hot Springs Buyout for corporate events

Gisting

Hvammsvík býður upp á 12 hús i í einstöku umhverfi fyrir starfsmannahópinn.

Í boði eru fjögur nýuppgerð hús sem henta fullkomlega fyrir hópa sem vilja dvelja saman undir einu þaki og eru tilvalin til að efla tengsl og samvinnu. Listamannaskálarnir átta eru notaleg og stílhrein minni hús, sem geta hýst 1–2 gesti.

Undir Hlöðunni má svo finna nýlega líkamsræktaraðstöðu og þykir Hvammsvíkurjörðin henta einstaklega vel til náttúruhlaupa.

Fyrir hópa sem eru stærri en 40 gestir er krafist fullrar útleigu á annaðhvort gistingu okkar eða heitu pottunum. Þá hefur hópurinn Hvammsvík út af fyrir sig, með einkaaðgangi að Hlöðunni og Hofinu fyrir fundi, kvöldverði eða veislur.

A house on top of a hill with a fire place
Listamannaskálarnir á túninu í Hvammsvík
Lodge in Iceland with amazing view of the ocean
Interior of a bedroom
Interior of a cabin which we call the Artist Lodge
Interior of a cabin which we call the Artist Lodge
Friends around a fireplace on top of a hill

Afþreying í og við Hvammsvík

Par gengur um grösuga hlíð

Gönguleiðir

Fjöldi gönguleiða er í boði, bæði á landareign Hvammsvíkur og í Hvalfirðinum.

Kona með strandbretti í flæðarmálinu

Strandbretti

Á sumrin geta gestir í Sjóböðunum fengið lánuð strandbretti, þegar veður leyfir. Starfsfólkið í móttökunni veita frekari upplýsingar.

Wim Hof-öndun á klettunum við sjóinn

Wim Hof–öndun

Reglulega er býðst gestum í Sjóböðunum að taka þátt í byrjendatímum í Wim Hof-öndunartækninni. Lærðu meira um Wim Hof-tímana og tímasetningar þeirra hér fyrir neðan.

Ocean swimming activity. Email list

Sjósund

Viltu prófa að synda í sjónum? Vertu með í byrjendatíma í sjósundi undir leiðsögn reynds sjósundsfólks.

Kona lyftir Atlassteini

Atlasaráskorunin

Prófaðu hina fornu aflraun þar sem markmiðið er að lyfta þremur steinum upp fyrir öxl. Lærðu meira um þolraunina og verðlaunin sem eru í boði fyrir sigurvegara!

icelandic seafood stew at Hvammsvik near Reykjavik

Stormur Bistro

Eftir frískandi ferð í sjóböðin mælum við með því að smakka ljúffenga rétti sem eru innblásnir af nærumhverfi Hvammsvíkur.

Veiðimaður kastar flugu í vatnið

Veiði

Veiði í vatninu okkar stendur næturgestum til boða. Veiðistangir eru í boði í húsunum. Vinsamlegast sendið okkur línu á info@hvammsvik.com ef þið hafið spurningar.

Steðji, klettadrangur í Hvalfirði

Steðji

Steðji eða Staupasteinn er á Hvammsvíkurjörðinni, í aðeins 5 mínútna akstursfjarlægð frá Hvammsvík.

Bláber í lófa

Berjamór

Við mælum með að fara í góðan göngutúr um svæðið og tína ber síðsumars og á haustin.

Kajakar á firðinum

Kajakferðir

Hægt er að skella sér á kajak þegar þar til lgerðar ferðir eru í boði. Þessir viðburðir verða auglýstir á samfélagsmiðlum okkar og póstlistanum.

Hafðu samband

Vinsamlegast bókið alla hópa fyrirfram með því að fylla út eyðublaðið hér fyrir neðan
Hvað má bjóða ykkur?