11.11: 30% afsláttur, aðeins í dag
Get away from the crowds at Hvammsvik Hot Spring Spa and learn more about the Hvammsvik Story

Einkaleiga á Sjóböðunum í Hvammsvík

Einkaleiga á Sjóböðunum í Hvammsvík

Hægt er að bóka Sjóböðin í Hvammsvík í einkaleigu fyrir viðburði bæði hjá einstaklingum og fyrirtækjum. Einkaleiga veitir aðgang að einstöku umhverfi Hvalfjarðarins. Fullkomið næði fyrir afmælið, brúðkaupið, viðburðinn eða einfaldlega gæðastundir með nánustu vinum og ættingjum.

Sjóböðin

Einkaleiga á Sjóböðunum er ávísun á rólega upplifun, aðeins fyrir þig og þína gesti í náttúrufegurðinni í Hvammsvík.

Lágmarkstími fyrir einkaleigu eru 2 klst. Hægt er að leigja böðin:

Fyrir opnunartíma

Eftir lokunartíma

Við hefðbundna opnun baðanna

Síðustu tvo tíma dagsins

Að auki bjóðum við upp á hálfsdags- og heilsdagsbókanir fyrir þá sem vilja gera upplifunina enn stærri og persónulegri.

Sjóböðin geta tekið á móti allt að 152 gestum í einkaleigu. Verð fer eftir árstíma og tímasetningu. Vinsamlegast fyllið út formið hér fyrir neðan með ykkar óskum um dagsetningar og tíma og við sendum ykkur áætlað verðtilboð.

Private Hot Spring just for you and your loved ones.
Get away from the crowds at Hvammsvik spa
Kona við rjúkandi laug í fjöruborðinu
The perfect city escape
Hot Springs In Iceland near the ocean
Hot Spring Resort for Corporate retreats

Smærri Hópar

Fyrir minni hópa, 10 eða fleiri manns, sem vilja skemmtilega upplifun í sjóböðunum vinsamlegast fyllið út formið hér fyrir neðan með tíma og dagsetningar og við höfum samband við ykkur.

Hafðu samband

Vinsamlegast bókið alla hópa fyrirfram með því að fylla út eyðublaðið hér fyrir neðan
Hverju hafið þið áhuga á fyrir hópinn?

Afþreying í og við Hvammsvík

Par gengur um grösuga hlíð

Gönguleiðir

Fjöldi gönguleiða er í boði, bæði á landareign Hvammsvíkur og í Hvalfirðinum.

Kona með strandbretti í flæðarmálinu

Strandbretti

Á sumrin geta gestir í Sjóböðunum fengið lánuð strandbretti, þegar veður leyfir. Starfsfólkið í móttökunni veita frekari upplýsingar.

Wim Hof-öndun á klettunum við sjóinn

Wim Hof–öndun

Reglulega er býðst gestum í Sjóböðunum að taka þátt í byrjendatímum í Wim Hof-öndunartækninni. Lærðu meira um Wim Hof-tímana og tímasetningar þeirra hér fyrir neðan.

Ocean swimming activity. Email list

Sjósund

Viltu prófa að synda í sjónum? Vertu með í byrjendatíma í sjósundi undir leiðsögn reynds sjósundsfólks.

Kona lyftir Atlassteini

Atlasaráskorunin

Prófaðu hina fornu aflraun þar sem markmiðið er að lyfta þremur steinum upp fyrir öxl. Lærðu meira um þolraunina og verðlaunin sem eru í boði fyrir sigurvegara!

icelandic seafood stew at Hvammsvik near Reykjavik

Stormur Bistro

Eftir frískandi ferð í sjóböðin mælum við með því að smakka ljúffenga rétti sem eru innblásnir af nærumhverfi Hvammsvíkur.

Veiðimaður kastar flugu í vatnið

Veiði

Veiði í vatninu okkar stendur næturgestum til boða. Veiðistangir eru í boði í húsunum. Vinsamlegast sendið okkur línu á info@hvammsvik.com ef þið hafið spurningar.

Steðji, klettadrangur í Hvalfirði

Steðji

Steðji eða Staupasteinn er á Hvammsvíkurjörðinni, í aðeins 5 mínútna akstursfjarlægð frá Hvammsvík.

Bláber í lófa

Berjamór

Við mælum með að fara í góðan göngutúr um svæðið og tína ber síðsumars og á haustin.

Kajakar á firðinum

Kajakferðir

Hægt er að skella sér á kajak þegar þar til lgerðar ferðir eru í boði. Þessir viðburðir verða auglýstir á samfélagsmiðlum okkar og póstlistanum.