Jólahlaðborð Jómfrúnnar í samstarfi við Hvammsvík

Jólahlaðborð Hvammsvíkur í samstarfi við Jómfrúna

Jólahlaðborð Hvammsvíkur í samstarfi við Jómfrúna

Í ár verður hið danska jólahlaðborð Jómfrúarinnar, í samstarfi við Hvammsvík, í boði í hlöðunni. Komdu með hópinn þinn í sjóböðin og endaðu kvöldið á æðislegum mat í veislusalnum okkar. Hentar fjölskyldum, vinahópum og vinnufélögum sem vilja skapa ógleymanlegar jólaminningar.

Hafðu samband

Nánari Upplýsingar

Jólahlaðborðið verður í boði alla fimmtudaga, föstudaga og laugardaga frá 12. nóvember til og með 19. desember.

Nú bjóðum við einnig upp á hádegisjólahlaðborð laugardagana 28. nóvember og 5. desember.

Við tökum á móti hópum frá 4 til 40 manns í Hlöðunni. Fyrir hópa sem vilja hafa Hlöðuna út af fyrir sig er hægt að bóka salinn í einkaleigu. Endilega takið það fram í forminu hér að neðan ef óskað er eftir einkaleigu.

Verð á mann er 16.900 kr. Innifalið er jólahlaðborð í Hlöðunni og klassískur aðgangur að sjóböðunum.

Tímasetningar

  • Hádegi: Sjóböðin kl. 11:30 og jólahlaðborð í Hlöðunni kl. 14:00. Aðeins í boði 28. nóvember og 5. desember.
  • Kvöld: Sjóböðin kl. 16:30 og jólahlaðborð í Hlöðunni kl. 19:00.

Greiðslu- og afbókunarskilmálar

Við staðfestingu bókunar er greitt 25% staðfestingargjald af heildarverði á mann. Eftirstöðvar eru innheimtar viku fyrir komu.
Sé afbókað eða fækkun á gestafjölda eftir að staðfestingargjaldið er greitt er það óendurkræft.

Takmarkað pláss er í boði, svo það borgar sig að bóka tímanlega.

The Barn
Jólin í Hvammsvík sjóböð

Matseðillinn

Kaldir réttir

Jólasíld Jómfrúarinnar á rúgbrauði
með kapers, lauk og eggi

Skelfisksalat á ristuðu franskbrauði
með sítrónu, handpillaðri úthafsrækju og fersku dilli

Hátíðarpaté Jómfrúarinnar
með Cumberland-sósu

Sinnepsgljáður hamborgarhryggur á ristuðu franskbrauði
með Waldorfsalati

Graflax á ristuðu franskbrauði
með sinneps- og dillsósu, sítrónu og fersku dilli

Aðalréttur

Purusteik og kalkúnabringa
með sykurbrúnuðum kartöflum, heitu rauðkáli, rauðrófusalati og villisveppasósu

Eftirréttur

Ris à la mande
með kirsuberjasósu, þeyttum rjóma og kirsuberi

Diskur af jólahlaðborðinu
Gestir við uppdekkuð borð á jólahlaðborði

Hafðu samband

Fylltu inn formið fyrir neðan og við höfum samband.

Vegna skipan í búningsklefa í sjóböðin, tilgreinið kyn. (td. 4 konur, 2 karlar).

Tími
How to find us

Þú finnur okkur hér

frá Reykjavík
56km
frá Keflavíkurflugvelli
98km
frá Thingvellir
38km
frá Akureyri
377km
Leiðbeiningar