
Algengar Spurningar
Hvað er aldurstakmarkið í sjóböðin?
Það er 10 ára aldurstakmark í sjóböðin af öryggisástæðum. Allir gestir sem eru á milli 10 og 18 ára þurfa að vera í fylgd fullorðins einstaklings sem er eldri en 18 ára.
Hvernig kemst ég í Hvammsvík?
Það eru engar almenningssamgöngur í Hvammsvík en við erum í aðeins 45 mínútna akstursfjarlægð frá Reykjavík. Hér er hægt að sjá nánari upplýsingar um staðsetningu og akstursleiðbeiningar.
Hvenær er opið?
Á veturnar (frá 21. ágúst til og með 31. maí) eru sjóböðin opin daglega frá 10:30 til 20:30 (síðasti aðgangur er klukkan 19:00). Veitingastaðurinn Stormur er opinn frá 11:30 til 19:30.
Á sumrin (frá 1. júní til og með 20. ágúst) eru sjóböðin opin daglega frá 10:00 til 22:00 (síðasti aðgangur er klukkan 20:30). Veitingastaðurinn Stormur er opinn frá 12:00 til 20:30.
Vinsamlegast athugið að opnunartími getur verið breytilegur á einstökum dögum, til dæmis stórhátíðardögum. Alltaf er hægt að sjá nákvæma opnunartíma eftir dögum og lausa tíma í bókunarvélinni okkar hér.
Gistingin í Hvammsvík er opin allan sólarhringinn allt árið um kring.
Þarf ég að kaupa miða fyrirfram?
Við mælum eindregið með að kaupa miða í Hvammsvík fyrifram svo koma megi í veg fyrir vonbrigði eða bið við komu. Hægt er að kaupa miða á staðnum en aðeins ef laust er á viðkomandi tíma. Hér er hægt að kanna lausa tíma og bóka.
Vinsamlegast athugið að gjafabréf tryggir ekki aðgang á ákveðnum tíma, ávallt þarf að bóka tíma sérstaklega og nota gjafabréf sem greiðslu.Hvað má vera lengi í sjóböðunum?
Það eru engin tímamörk á hvað gestir mega vera lengi í sjóböðunum. Vinsamlegast passið að drekka nóg af vatni ef heimsóknin varir lengi! Þegar gestir telja tímabært að fara uppúr laugunum er velkomið að halda áfram að njóta Hvammsvíkur svæðisins og náttúrunnar í kring, t.d. á veitingastaðnum Stormi þar sem hægt er að fá ljúffenga sjávarréttasúpu og aðra smárétti.
Vinsamlegast athugið að ekki er leyfilegt að fara uppúr böðunum og aftur ofan í eftir útritun.Hvað gerist ef ég mæti seint?
Við getum ekki ábyrgst að eiga laust pláss ef gestir mæta á öðrum tíma en bókaður er. Við takmörkum fjölda seldra aðganga á hverjum tíma til að vernda upplifun gesta og koma í veg fyrir of mikinn fjölda gesta á hverjum tíma. Almennt bjóðum við þó upp á að mæta innan klukkutíma fyrir eða eftir bókaðan tíma án þess að þurfa að láta vita eða breyta miðanum.
Þarf ég að prenta miðann minn út áður en ég mæti?
Það er engin þörf á að prenta miða út fyrir komu þó við getum að sjálfsögðu tekið á móti útprentuðum miðum. Auðveldast er að sýna okkur miðann eða bókunarstaðfestinguna í símtæki og einnig getum við fundið bókanir eftir nafni.
Hvað á ég að gera ef ég næ ekki að klára greiðslu í bókunarferlinu?
Ef þú nærð ekki að greiða á síðunni okkar mælum við með að prófa aftur með öðru korti þar sem hafnanir á færslum geta verið af margvíslegum toga. Virki enginn greiðslumáti sem þú hefur aðgang að mælum við með að senda okkur póst á info@hvammsvik.is og við skoðum málið. Athugið þó að ávallt verður að greiða fyrir heimsókn fyrir komu.
Hvaða greiðslumátum takið þið á móti?
Bóka þarf heimsókn fyrirfram á heimasíðunni okkar þar sem hægt er að greiða með öllum helstu debet og kreditkortum eða gjafabréfi. Athugið að ekki er hægt að greiða með American Express.
Á staðnum tökum við á móti öllum helstu debet og kreditkortum að undanskildu American Express, einnig er hægt að greiða með peningum en aðeins í réttri upphæð þar sem við erum ekki með skiptimynt.Eru handklæði og vaðskór á staðnum?
Í samræmi við umhverfismarkmið okkar þarf að leigja handklæði og vaðskó í Hvammsvík. Ekki er nauðsynlegt að vera í vaðskóm en það veitir aukin þægindi þegar gengið er milli lauga og fyrir gesti sem stinga sér til sunds í sjónum. Hægt er að bóka handklæða- og vaðskóleigu með því að velja þægindapakkann þegar bókað er á netinu eða með því að bæta því við bókunina við mætingu. Gestum er að sjálfsögðu einnig velkomið að koma með eigið handklæði og/eða vaðskó.
Þarf að vera í sundfötum í Hvammsvík?
Allir gestir sjóbaðanna í Hvammsvík skulu vera í sundfötum samkvæmt skilmálum okkar og á þetta við allt laugasvæðið og gufuböð. Ekki hafa áhyggjur ef þú gleymdir sundfötum, hægt er að leigja þau í móttökunni hjá okkur.
Eru sjóböðin í Hvammsvík opin og aðgengileg allt árið?
Íslensk veðrátta er ófyrirsjáanleg eins og við vitum öll. Sjóböðin í Hvammsvík eru ávallt opin samkvæmt almennum opnunartímum nema ef veður er þess valdandi að vegunum sem liggja að Hvammsvík er lokað eða veðurviðvaranir eru þess eðlis að öruggara sé að loka. Við mælum með að gestir kynni sér aðstæður á vegum áður en ferðast er hér.
Ef við sjáum fram á lokanir fyrirfram gerum við okkar besta til að hafa samband við gesti sem eiga bókað á viðkomandi tíma og færa bókanir eða endurgreiða.
Þarf að vera syndur til að heimsækja sjóböðin í Hvammsvík?
Laugarnar í Hvammsvík eru grunnar og er dýpsti punktur rétt rúmlega 1 meter. Sjóböðin eru hinsvegar staðsett í fjöruborðinu við Atlantshafið sem er misdjúpt og ófyrirsjáanlegt.
Gestir sem eru ósyndir eiga því að halda sig frá þeim laugum sem eru í snertingu við hafið og aldrei fara út í hafið sjálft! Við erum hinsvegar með 4 laugar sem ættu aldrei að komast í snertingu við hafið og eru því öruggari fyrir ósynda gesti.
Vinsamlegast biðjið laugarvörð eða móttöku um að fá lánað flotvesti fyrir aukið öryggi ef við á.
Hvað er hitastigið í laugunum í Hvammsvík?
Sjóböðin í Hvammsvík samanstanda af átta laugum af mismunandi hitastigi í fjöruborðinu við Atlantshafið. Fjórar af laugunum átta eru í beinni snertingu við hafið og er hitastig þeirra því breytilegt eftir flóðastöðu og vindátt. Hér að neðan er yfirlit yfir laugarnar okkar átta og vænt hitastig:
Húslaug – 38°C
Efri Steinalaug – 37°C
Neðri Steinalaug – Frá sjávarhita upp í 37°C eftir flóðastöðu
Sjólaug – Sjávarhiti
Öldulaug – Frá sjávarhita upp í 35°C eftir flóðastöðu
Hvalfjarðarlaug (gamla laugin) – 40°C
Efri Strandlaug – 38°C
Neðri Strandlaug – 36°CEr stórgrýti eða erfitt landslag á laugasvæðinu?
Sjóböðin í Hvammsvík eru staðsett í náttúrulegu fjöruborðinu þar sem sumar laugarnar eru alveg í vatnsborðinu og flæðir sjór í þær sumar á flóði og fleiri í stórstreymi. Laugarnar eru hlaðnar úr náttúrugrjóti og umhverfið eins náttúrulegt og vera má. Því geta verið horn, kantar grýti sem vont er að reka sig í. Einnig geta stígar og yfirborð verið sleip í kulda.
Atlantshafið er kalt og getur verið á milli -1°C og 12°C ásamt því að laugarnar geta verið mjög heitar svo það er mikilvægt að vera meðvitaður um þetta og fara með aðgát meðan á heimsókn stendur. Allir gestir fara í sjóinn á eigin ábyrgð og sérstaklega skal fara varlega ef gestir eru með heilsukvilla.
Ég er með heilsukvilla, er í lagi að heimsækja sjóböðin?
Laugarnar í Hvammsvík eru margar og af mismunandi hitastigum, allt frá hitastigi sjávar upp í um 42 gráður. Vreandi staðsett í náttúrulegu fjöruborðinu þá geta verið ójöfn undirlög, grót, steinar og sleip yfirborð í og í kringum laugarnar. Gestir skulu fara einstaklega varlega séu heilsukvillar til staðar. Skyldu gestir vera í vafa um hvort það sé öruggt að heimsækja sjóböðin skal ávallt leita ráða læknis fyrir heimsókn.
Hversu djúpar eru laugarnar í Hvammsvík?
Dýpstu punktar lauganna er rétt rúmlega 1 meter. Við erum hinsvegar staðsett við Atlantshafið þar sem dýpi getur verið mjög breytilegt og breyst eftir flóðastöðu og straumum. Þar af leiðandi skal ávallt fara einstaklega varlega í og við hafið.
Er hægt að fá afslátt af mat og drykkjum?
Nei, við bjóðum enga afslætti af mat og drykkjum en verðin okkar eru ákvörðuð með gæði og hagkvæmni í huga.
Eru kynlausir klefar í boði?
Allir gestir eru velkomnir í Hvammsvík burtséð frá kyni eða skilgreiningu. Í Hvammsvík er aðeins að finna karla- og kvennaklefa og sturtuaðstöðu. Þeir gestir sem falla ekki undir þessa skilgreiningu er frjálst að velja hvorn klefann þeir fara í en við biðjum alla gesti að sýna tillitssemi.
Eru bílastæði á staðnum fyrir gesti Hvammsvíkur?
Já, það er stórt malar bílastæði í um 2 mínútna göngufjarlægð frá sjóböðunum fyrir gesti Hvammsvíkur. Þar er að finna fjórar hleðslustöðvar fyrir rafmagnsbíla, þrjú stæði fyrir litlar rútur og hjólastólaaðgengi er við innganginn.
Einkastæði eru svo við hvert hús fyrir næturgesti.Er hægt að hlaða rafmagnsbíla í Hvammsvík?
Já, það eru fjórar 22kw hleðslustöðvar á bílastæðinu við sjóböðin. Stöðvarnar eru í eigu og rekstri ON og þarf að greiða fyrir hleðsluna hjá ON. Þar sem símasamband getur verið stopult á svæðinu mælum við með að vera með ON lykil eða nota þráðlausu nettenginguna í sjóböðunum til að byrja hleðslu.
Hverjir eru afbókunarskilmálarnir ykkar?
Í sjóböðunum er hægt að afbóka miða gegn endurgreiðslu allt að 36 klukkustundum fyrir bókaðan tíma. Hægt er að breyta komudegi og/eða tíma allt að 24 klukkustundum fyrir komu. Athugið að strangari reglur gilda um hópabókanir og sérstaka viðburði.
Í gistingunni er hægt að bóka afsláttarverð sem er óafbókanlegt eftir bókun. Sé breytilegt verð bókað er hægt að afbóka gegn endurgreiðslu allt að 30 dögum fyrir komu.Vinsamlegast athugið að hafi bókunin verið gerð hjá þriðja aðila verður að afbóka þar og geta aðrir skilmálar átt við.
Er leikjaherbergið í hlöðunni aðgengilegt?
Allir næturgestir hafa aðgang að leikjaherberginu í hlöðunni allan sólarhringinn meðan á dvölinni stendur. Vinsamlegast athugið að herbergið getur verið lokað stöku sinnum vegna einkasamkvæma.
Gestir sjóbaðanna hafa ekki aðgang að leikjaherberginu.Get ég breytt bókuninni minni?
Já, hægt er að breyta bókunum í sjóböðin allt að 24 klukkutímum fyrir bókaðan tíma án endurgjalds hér. Sé bókun breytt innan 24 klukkutíma frá bókaðri komu innheimtum við 25% gjald af hverjum breyttum miða.
Vinsamlegast athugið að strangari reglur gilda um hópabókanir og sérstaka viðburði.
Fyrir bókanir í gistingu er hægt að breyta bókuninni allt að 30 dögum fyrir komudag hafir þú bókað breytilegt verð. Hafi bókunin verið gerð á ósveigjanlegu afsláttarverði er ekki hægt að breyta bókuninni.
Vinsamlegast athugið að hafi bókunin verið gerð hjá þriðja aðila verður að breyta bókuninni þar og geta aðrir skilmálar átt við.
Get ég farið upp úr og aftur ofan í laugarnar á sama degi með sömu bókun?
Nei, þegar gestir hafa lokið heimsókninni í sjóböðin og farið upp úr laugunum er ekki leyfilegt að fara aftur ofan í án þess að kaupa nýjan miða (og ef það er laust pláss). Við mælum því með að njóta upplifunarinnar í laugunum til fulls áður en farið er upp úr eða á veitingastaðinn.
Er Hvammsvík nálægt Gullhringnum?
Já! Hvammsvík er staðsett í aðeins 25 mínútna akstursfjarlægð frá þjónustumiðstöðinni á Þingvöllum ef ekið er um Kjósarskarðið (vegnúmer 48). Þá er fullkomið að byrja eða enda Gullhringinn í Hvammsvík og stoppa við Þórufoss á leið um Kjósarskarðið.
Er Hvammsvík nálægt Silfurhringnum?
Já, Hvammsvík er staðsett á milli Silfur- og Gullhringsins. Við erum í aðeins um 30 mínútna akstursfjarlgæð frá Borgarnesi og öðrum vinsælum áningarstöðum Silfurhringsins. Það er mjög vinsælt að gista í Hvammsvík eða stoppa í sjóböðunum þegar ætlunin er að skoða náttúruperlur á suður- eða versturlandi.
Hversu margir gestir geta verið í Hvammsvík og verður einhverntímann mannmergð?
Sjóböðin í Hvammsvík eru hönnuð til að veita náttúrulega, róandi upplifun og koma í veg fyrir mannmergð ólíkt flestum baðstöðum landsins. Sjóböðin eru á dreifðu svæði í fjöruborðinu þar sem átta laugar verða til þess að fólk dreifist vel um svæðið. Þar sem við takmörkum fjölda gesta í sjóböðin og seljum aðeins lítinn fjölda miða á hverjum tíma fá gestir sjaldnast tilfinningu fyrir mannmergð en hafa ber í huga að helgar og sumrin eru álagstímar séu gestir að leitast eftir róandi upplifun.
Er hægt að kaupa mismunandi miða eða aðganga að sjóböðunum?
Já. Hvammsvík bíður upp á þrjár mismunandi tegundir aðganga að klefunum og laugunum. Aðgangarnir sem í boði eru eru Náttúrulegur, Klassískur og Þæginda, sem eru mismunandi eftir aðgengi í klefa, skápum, sturtubásum, handklæðaleigu og drykkjum sem dæmi. Allar tegundir aðganga veita þó sama aðganginn að laugasvæðinu, gufubaði, sjónum og náttúrunni í kring.
Hversu langt er í Hvammsvík frá Reykjavík?
Hvammsvík er í um 45 mínútna akstursfjarlægð frá Reykjavík og um 60 mínútum frá miðbænum, eða um 55–56 km. Akstursleiðin er einstaklega falleg og auðveld þar sem keyrt er í gegnum Mosfellsbæ, framhjá Kjalarnesi og svo inn Hvalfjörðinn. Einnig er hægt að fara um Mosfellsheiði og Kjósarskarðið sem er önnur falleg og auðveld akstursleið.
Er boðið upp á skutlþjónustu?
Já, gegn gjaldi. Við bjóðum upp á ferðir tvisvar á dag í samstarfi við Kynnisferðir þar sem farið er frá BSÍ í Reykjavík til Hvammsvíkur og til baka. Athugið að bóka þarf miða fyrirfram hér. Fleiri ferðaþjónustufyrirtæki bjóða svo upp á lengri ferðir sem byrja eða enda í Hvammsvík. Athugið að engar almenningssamgöngur eru í Hvammsvík.
Er hægt að heimsækja Hvammsvík á einum degi?
Já. Þó boðið sé upp á gistingu í Hvammsvík erum við í aðeins 30-60 mínútna akstursfjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu. Tilvalið er að sameina heimsókn í sjóböðin og fleiri áningarstaði svo sem göngu upp að Glym, Þingvelli, Borgarfjörð, Húsafell eða Grímsnes.
Er veitingastaður í Hvammsvík?
Já. Við sjóböðin er veitingastaðurinn Stormur sem bíður upp á okkar frægu sjávarréttasúpu, opnar samlokur og kökur svo eitthvað sé nefnt. Gestum er velkomið að heimsækja veitingastaðinn fyrir eða eftir sjóböðin en ekki þarf að eiga bókað í sjóböðin til að fara á veitingastaðinn. Vinsamlegast athugið að opnunartími veitingastaðarins er ekki sá sami og sjóbaðanna og ekki er hægt að panta borð fyrirfram.
Er hægt að synda í sjónum í Hvammsvík?
Já. Sjóböðin í Hvammsvík eru staðsett í fjöruborðinu við Atlantshafið og fullkomið er að stinga sér í kaldan sjóinn á milli þess sem líkaminn er hitaður upp í einni af átta laugum Hvammsvíkur. Þá flæðir sjórinn í sumar laugarnar eftir flóðastöðu og því geta gestir einnig upplifað sjósund án þess að fara beint í sjóinn sem býr til einstaka upplifun.
Er hægt að sjá norðurljós í Hvammsvík?
Já, yfir vetrarmánuðina er Hvammsvík fullkominn staður til að sjá norðurljósin í réttum skilyrðum. Við erum staðsett utan þéttbýlis þar sem ljósmengum er lítil sem engin og frábært útsýni er til allra átta í Hvammsvík.
Eru ódýrari miðar í boði fyrir eldri borgara, öryrkja eða börn?
Nei, við innheimtum sanngjarnt gjald fyrir aðgangsmiða og greiða allir yfir 10 ára aldri sama verð fyrir aðgang en 10 ára aldurstakmark er í böðin.
Við bjóðum upp á mismunandi aðgangsmiða þar sem hægt er að finna ódýra möguleika í bland við dýrari miða með auknum þægindum.
Eru skápar í klefunum?
Já, klefarnir okkar eru búnir skápum fyrir alla gesti.
Náttúrulegu klefarnir okkar eru búnir litlum læstum verðmætaskápum fyrir síma, veski og skartgripi.
Sé bókaður klassískur eða þæginda aðgangur fá allir gestir aðgang að læstum skáp fyrir föt, tösku og verðmæti.
Hvað á ég að koma með þegar ég heimsæki Hvamsvík?
Ef þú ert að heimsækja sjóböðin mælum við með að þú komir með sundföt og handklæði en einnig er hægt að leigja slíkt á staðnum.
Ef þú ert að gista í Hvammsvík mælum við með að þú komir með sundföt og aðra persónulega muni sem eiga við.
Við reynum að bjóða upp á góða aðstöðu og minnka þörfina á að pakka miklu fyrir heimsóknina.
Er gufubað eða eimbað í Hvammsvík?
Já, það er blautgufa í sjóböðunum í Hvammsvík.
Við erum einnig að bæta við þurrgufu í sjóböðin fyrir sumarið 2026.
Engin gufuböð eru við gistihúsin í Hvammsvík.
Hverjar eru reglurnar um áfengisneyslu í Hvammsvík?
Ekkert áfengi er selt eða afhent einstaklingum undir 20 ára aldri og starfsfólk kann að spyrja um skilríki ef í vafa.
Það eru engar reglur um fjölda áfengra drykkja sem má neyta á staðnum aðrar en þær að gestir eru beðnir um að neyta áfengis í hófi og starfsfólki er heimilt að neita gestum afgreiðslu sem eru orðnir of drukknir að okkar mati.
Frekari upplýsingar má finna í skilmálum og öryggisreglum okkar hér sem allir gestir verða að samþykkja fyrir heimsókn.
Eru reglur um hávaða og/eða hegðun í Hvammsvík?
Já, allir gestir sem heimsækja Hvammsvík verða að samþykkja skilmála og öryggisreglur okkar fyrir heimsókn.
Við biðjum um að allir gestir sýni tillitssemi og komi fram við starfsfólk og náttúruna af virðingu. Við áskiljum okkur rétt til að neita gestum aðgengi eða vísa gestum frá svæðinu teljum við viðkomandi brjóta á þessum reglum.
Dónaskapur eða ofbeldi í garð starfsfólks eða annarra gesta verður aldrei liðið.
Þá er stranglega bannað að taka þátt í eða hvetja til kynferðislegra athafna á laugasvæðinu eða í klefum.
Hvernig kemst ég inn á svæðið ef hliðin eru lokuð?
Hliðin eru ávallt opin á opnunartíma sjóbaðanna. Komir þú fyrir opnun þá opnast hliðin 15 mínútum fyrir opnun baðanna.
Sért þú með bókun í gistinguna þá færð þú sendar aðgangsupplýsingar fyrir hliðin í tölvupósti 1-3 dögum fyrir komu.
Ef þú ert að fara af svæðinu eftir að hliðin lokast þá þarf einfaldlega að keyra rólega alveg upp að hliðunum til að þau opnist.
Má ég koma með eigin mat eða drykki í Hvammsvík?
Ef þú ert að heimsækja sjóböðin er bannað að koma með eigin mat eða drykki á staðinn. Bæði matur og drykkir eru seld á staðnum.
Sért þú næturgestur í Hvammsvík er velkomið að koma með allan þá mat og drykki sem þörf er á meðan á dvölinni stendur. Ísskápar og eldhús eru í öllum húsunum.
Takið þið á móti hópabókunum?
Já, þó við séum með takmörk á fjölda á hverjum tíma og takmarkað klefapláss þá tökum við á móti hópabókunum. Fyrir hópa sem samanstanda af færri en 10 gestum þarf að bóka á heimasíðunni okkar.
Fyrir hópa sem samanstanda af 10 gestum eða fleiri þarf að hafa samband við okkur hér.
Bjóðið þið upp á einkaleigu?
Já, hægt er að leigja sjóböðin og/eða gistinguna í einkaleigu. Vinsamlegast sendið okkur fyrirspurn hér og við skoðum möguleikana saman og útvegum tilboð. Athugið að verð geta verið mjög breytileg eftir, árstíma, dögum og tímasetningum en ódýrustu möguleikarnir eru utan almennra opnunartíma.
Er hægt að leigja sal eða fundaaðstöðu í Hvammsvík?
Já, það er einn samkomusalur í gömlu hlöðunni í Hvammsvík þar sem pláss er fyrir allt að 40 gesti og hentar salurinn vel fyrir fundi, máltíðir, kynningar o.fl. þ.h. Í salnum er að finna bar, færanlegt sjónvarp, tússtöflu, borð, stóla, lítið eldhús og salerni svo eitthvað sé nefnt.
Hægt er að taka á móti stærri hópum í samstarfi við veisluþjónustur.
Til viðbótar má finna Hofið við hlið Hlöðunnar sem er frábær vettvangur fyrir brúðkaup eða aðrar athafnir utandyra.
Vinsamlegast sendið okkur fyrirspurn hér og við könnum möguleikana saman.
Hvenær er innritunar og útritunar tíminn?
Eigir þú bókað í sjóböðin þá má mæta allt að klukkustund fyrir eða eftir bókaðan tíma og engin takmörk eru á lengd heimsóknarinnar.
Eigir þú bókað í gistinguna þá er innritun frá klukkan 16:00 og útritun til klukkan 11:00.
Er þráðlaust net og símasamband í Hvammsvík?
Já, það er háhraða þráðlaust net í öllum byggingum í Hvammsvík.
Símasamband í Hvammsvík er ágætt en fer þó eftir staðsetningu á svæðinu og símafyrirtækjum.
Má tjalda í Hvammsvík?
Nei, það er ekkert tjaldsvæði í Hvammsvík eða aðstaða fyrir slíkt. Allir gestir sjóbaðanna verða að yfirgefa svæðið við lok heimsóknar.
Hver er munurinn á Hvammsvík og Bláa Lóninu?
Sjóböðin í Hvammsvík samanstanda af 8 laugum í fjöruborðinu við Atlantshafið í Hvalfirði. Það er frábært útsýni í allar áttir og yfir ósnerta náttúru Hvalfjarðar. Þá er algengt að gestir upplifi og komist í snertingu við dýralífið í víkinni þar sem er að finna seli og æðakollur ásamt um 30 öðrum fuglategundum á sumrin. Hvammsvík bíður upp á afslappandi náttúrulega upplifun þar sem gestafjöldi er takmarkaður.
Bláa Lónið er aðeins eitt stórt baðlón þar sem töluvert fleiri gesti er að finna hverju sinni og mun stærri aðstaða. Þá er aðgangsverð í Bláa Lónið töluvert hærra en í Hvammsvík.
Þarf ég að fara í sturtu áður en ég fer í böðin?
Já, allir gestir eiga að fara í sturtu og þvo sér án sundfata áður en farið er í laugarnar í Hvammsvík. Boðið er upp á okkar eigin sjampó, sápu og hárnæringu í sturtunum. Opnar sturtur eru í náttúrulegu klefunum en í klassísku klefunum eru lokaðir sturtubásar.