Brúðkaupsathöfn í Hofinu

Brúðkaup og veislur

Brúðkaup og veislur

Fagnið stóra deginum í stórbrotnu umhverfi

Hvammsvík býður upp á einstaka staðsetningu fyrir brúðkaup og athafnir, aðeins 45 mínútur frá Reykjavík. Gisting í einstöku umhverfi, Sjóböðin, útsýnið og Hofið skapa stórkostlega umgjörð utan um ógleymanlegar minningar.

Hofið

Hofið er skúlptúr sem nýtist einnig fyrir viðburði og athafnir og tekur á móti öllum, óháð trú- eða lífsskoðunum.

Hvammsvík er fyrst nefnd í Landnámu. Að því er sögur herma hafi þá stóð hof í Hvammsvík, sem síðar var leyst af hólmi með kristinni kirkju. Þessi umbreyting — frá heiðnum sið til kristni — og sú þróun að helg mannvirki hafi breytt um hlutverk í gegnum söguna, varð innblástur að Hofinu í Hvammsvík.

Hofið var hannað og fullklárað af Skúla Mogensen þann 16. ágúst 2025, fyrir brúðkaup hans og Grímu Bjargar Thorarensen. Þann dag vígði Guðrún Karls Helgadóttir, biskup Íslands, Hofið og helgaði það til notkunar sem kirkju fyrir athöfnina.

Hofið er bæði hægt að nýta undir athafnir og sem veislusal. Auðvelt er að breyta rýminu í veislusal sem tekur allt að 150 gesti í sæti eftir athöfnina. Veitingaþjónusta er í höndum samstarfsaðila okkar.

Fyrir allar fyrirspurnir er einfaldast að fylla út formið hér að neðan og við höfum samband til að hjálpa ykkur að gera draumadaginn að veruleika.

Hofið í Hvammsvík í sólskini
Brúðkaupsathöfn í Hofinu
Kvöldverður við kertaljós í Hofinu
Uppdekkuð borð í Hofinu
Loftmynd af Hofinu í landslagi Hvammsvíkur
Strengjakvartett og söngkona í Hofinu
Stólar og blóm fyrir athöfn í Hofinu
Eldur logar í Hofinu í ljósaskiptunum

Hlaðan

Hlaðan í Hvammsvík er einstakt rými sem hentar vel fyrir veislur.

Veitingaþjónusta er í höndum samstarfsaðila okkar sem gera sérútbúna matseðla sem henta fyrir hvaða tilefni sem er.

meeting space for Corporate Retreats in Iceland near Reykjavik.
Rec room icelandic hotel near Reykjavik perfect for Corporate Retreats to unwind and have workshops.
Garðveisla við steinhúsið í Hvammsvík
Hlaðborð með blómum í Hlöðunni
Tónleikar með ljósasýningu í Hlöðunni

Gisting

Hvammsvík býður upp á 12 einstök hús sem geta hýst brúðhjón og gesti.

Fjögur rúmgóð hús henta vel fyrir fjölskyldur og vinahópa sem vilja dvelja saman, á meðan átta hinir átta nýbyggðu Listamannaskálar bjóða upp á notalega gistingu fyrir pör eða einstaklinga.

Fyrir brúðkaup og athafnir þarf að bóka öll 12 húsin í heild. Það veitir einkaaðgang að aðstöðunni í Hvammsvík, þar með talið Hlöðunni og Hofinu fyrir veislur, kvöldverði og samverustundir.

A house on top of a hill with a fire place
Listamannaskálarnir á túninu í Hvammsvík
Lodge in Iceland with amazing view of the ocean
Interior of a bedroom
Interior of a cabin which we call the Artist Lodge
Interior of a cabin which we call the Artist Lodge

Fleiri myndir

Afþreying í og við Hvammsvík

Par gengur um grösuga hlíð

Gönguleiðir

Fjöldi gönguleiða er í boði, bæði á landareign Hvammsvíkur og í Hvalfirðinum.

Kona með strandbretti í flæðarmálinu

Strandbretti

Á sumrin geta gestir í Sjóböðunum fengið lánuð strandbretti, þegar veður leyfir. Starfsfólkið í móttökunni veita frekari upplýsingar.

Wim Hof-öndun á klettunum við sjóinn

Wim Hof–öndun

Reglulega er býðst gestum í Sjóböðunum að taka þátt í byrjendatímum í Wim Hof-öndunartækninni. Lærðu meira um Wim Hof-tímana og tímasetningar þeirra hér fyrir neðan.

Ocean swimming activity. Email list

Sjósund

Viltu prófa að synda í sjónum? Vertu með í byrjendatíma í sjósundi undir leiðsögn reynds sjósundsfólks.

Kona lyftir Atlassteini

Atlasaráskorunin

Prófaðu hina fornu aflraun þar sem markmiðið er að lyfta þremur steinum upp fyrir öxl. Lærðu meira um þolraunina og verðlaunin sem eru í boði fyrir sigurvegara!

icelandic seafood stew at Hvammsvik near Reykjavik

Stormur Bistro

Eftir frískandi ferð í sjóböðin mælum við með því að smakka ljúffenga rétti sem eru innblásnir af nærumhverfi Hvammsvíkur.

Veiðimaður kastar flugu í vatnið

Veiði

Veiði í vatninu okkar stendur næturgestum til boða. Veiðistangir eru í boði í húsunum. Vinsamlegast sendið okkur línu á info@hvammsvik.com ef þið hafið spurningar.

Steðji, klettadrangur í Hvalfirði

Steðji

Steðji eða Staupasteinn er á Hvammsvíkurjörðinni, í aðeins 5 mínútna akstursfjarlægð frá Hvammsvík.

Bláber í lófa

Berjamór

Við mælum með að fara í góðan göngutúr um svæðið og tína ber síðsumars og á haustin.

Kajakar á firðinum

Kajakferðir

Hægt er að skella sér á kajak þegar þar til lgerðar ferðir eru í boði. Þessir viðburðir verða auglýstir á samfélagsmiðlum okkar og póstlistanum.

Hafðu samband

Fylltu út formið hér fyrir neðan og við höfum samband við fyrsta tækifæri