11.11: 30% afsláttur, aðeins í dag

Helgi í Reykjavík – 48 tímar af menningu, mat og heitum laugum

Tveir dagar hljóma kannski stutt, en Reykjavík er af fullkominni stærð fyrir helgarferð. Borgin hentar fólki beggja vegna Atlantshafsins og er líka tilvalin sem millilending á ferð milli Evrópu og Norður-Ameríku.

Af hverju Reykjavík hentar í stutta ferð

Reykjavík er víðfeðm en miðbærinn er lítill og þú getur gengið allt, frá glæsilegu nútímalegu tónlistarhúsi að aldagamalli höfn á nokkrum mínútum.

Stemningin er blanda af íslenskum svala og hlýrri gestrisni. Hvort sem þú eltir norðurljósin að vetri eða miðnætursólina í júlí stendur Reykjavík fyrir sínu allt árið. Það er erfitt að falla ekki fyrir borg sem býður upp á heimsklassakaffi og einstök jarðhitaböð í sömu andrá.

Að komast til Reykjavíkur og um borgina

Lendir þú á Keflavíkurflugvelli? Flest flug frá Ameríku lenda snemma morguns og flest frá Evrópu um hádegi, svo þú átt heilan dag fram undan. Auðvelt er að komast í bæinn – með Flugrútunni, leigubíl eða fyrirfram bókuðum akstri. Ef þú vilt sveigjanleika getur þú leigt bíl, en um helgi duga fæturnir og strætó annað slagið.

Hvar á að gista

Hvert hverfi í Reykjavík hefur sinn karakter. Viltu vera í hringiðunni? Í Miðborginni er mest af gistingu og annarri þjónustu fyrir ferðalanga – allt frá hönnunarhótelum til farfuglaheimila, og allt í göngufæri. Viltu unglegri stemningu? Farðu í átt að Hlemmi og Laugavegi, þar sem kaffihús og mathallir ráða ríkjum. Fyrir listræna stemningu býður Grandi/Gamla höfnin upp á hótel í iðnaðarstíl og gallerí.

Í stuttu máli:

  • Pör: Hönnunarhótel með norrænum blæ.
  • Vinahópar: Rúmgóðar íbúðir nálægt næturlífinu.
  • Þeir sem vilja spara: Nútímaleg farfuglaheimili með sameiginlegu eldhúsi.

Gott ráð: Bókaðu snemma ef þú kemur að sumri eða á vetrarhátíðum. Reykjavík fyllist hratt.

Ef þú vilt sleppa borginni alveg og njóta íslenskrar náttúru er frábær kostur að leigja bústað eða skála nálægt Reykjavík.

Dagur 1: Menning, útsýni og mathallir

Byrjaðu morguninn á sterkum bolla á Reykjavík Roasters. Röltu svo upp að Hallgrímskirkju, kirkjunni frægu sem virðist mótuð úr stuðlabergsdraumum. Taktu lyftuna upp í turninn fyrir útsýni yfir alla borgina.

Röltu niður Skólavörðustíg og Laugaveg, helstu verslunargötur borgarinnar. Hönnunarbúðirnar freista með lopapeysum og skemmtilegu keramiki. Smelltu af mynd við Sólfarið, glitrandi skúlptúrinn við sjóinn.

Svöng/svangur? Slepptu ferðamannagildrunum og farðu á Hlemm Mathöll eða Granda Mathöll. Mathallirnar eru leikvöllur fyrir bragðlaukana – norrænir réttir, vegan skálar og sjávarfang svo ferskt að það blikkar nánast til þín.

Eftir hádegi er komið að menningunni. Veldu þitt ævintýri:

  • Þjóðminjasafn Íslands fyrir hraðnámskeið í sögu.
  • Landnámssýningin fyrir fornleifaáhugafólk.
  • Perlan fyrir náttúrusýningar og frábæran útsýnispall.

Þegar sólin lækkar á lofti (eða neitar að setjast á sumrin) er tilvalið að fá sér kvöldmat á Messanum, þar sem fiskréttir eru bornir fram snarkandi á pönnunni, eða gera vel við sig með smakkseðli á einum af nútímalegu íslensku veitingastöðum borgarinnar. Næturlíf? Handverksbjór á Ölstofunni eða lifandi tónlist á notalegum stað.

Dagur 2: Heitar laugar og fallegt landslag

Sjóböðin í Hvammsvík í Hvalfirði

Hér gerast töfrarnir. Reykjavík er hliðið að jarðhitasælunni og að sleppa heitu laugunum væri glæpur gegn slökun.

Frábær kostur:

  • Sjóböðin í Hvammsvík: Um 45 mínútur frá borginni. Átta heitar laugar í fjörunni við lón í Hvalfirði. Laugar sem renna saman við hafið og gufa sem stígur upp við hrikaleg fjöll. Fullkominn staður til að sjá norðurljósin frá hausti fram á vor.

Bókaðu fyrir fram – tímarnir fyllast hratt. Taktu sundfötin með og ekki flýta þér. Leyfðu steinefnaríku vatninu að vinna sitt verk á meðan þú sötrar eitthvað kalt (eða heitt, eftir skapi). Á veturna er gott að mæta síðdegis, borða snemma kvöldverð á staðnum og njóta útsýnisins og fara svo aftur í laugarnar eftir að dimmir til að upplifa norðurljósin.

Ekki hafa áhyggjur ef veðrið er ekki spennandi: það er enn sérstakara að liggja í kyrrð lauganna á meðan heitt jarðhitavatnið heldur á þér hita og þú verður vitni að óbeisluðum krafti náttúrunnar allt í kring. Ef það er kalt getur þú keypt húfu á staðnum til að halda hita á eyrunum.

Aftur í bænum er dögurður við höfnina góð hugmynd. Ef veðrið er drungalegt býður FlyOver Iceland upp á flugferð í sýndarveruleika sem kemur skemmtilega á óvart. Eftir hádegi? Kannski annað safn, eða bara rölt um notalegar götur borgarinnar og kíkt inn í plötubúðir og hönnunarverslanir.

Á kvöldin:

  • Vetur: Eltu norðurljósin. Farðu í skipulagða ferð eða keyrðu sjálf(ur) í Hvalfjörð.
  • Sumar: Njóttu endalausra gullinna stunda í göngu meðfram ströndinni.

Endaðu á klassískri pylsu á Bæjarins beztu, pylsuvagninum fræga. Einfalt, ódýrt og ómissandi.

Hagnýt atriði

Reykjavík að vetri og sumri

Veturinn (október–mars) býður upp á norðurljósatöfra og notalega stemningu, en dagsbirtan er af skornum skammti – dagarnir verða að langri dögun sem breytist í rökkur sem verður að nótt fullri af norðurljósum. Millitímabilin (apríl–maí, september) eru ljúf: færri gestir, síbreytilegt veður og betri verð. Sumarið? Miðnætursól, hátíðir og borg sem varla sefur.

Fjárhagur og hagnýt ráð

Reykjavík er ekki ódýr, en það má spila skynsamlega:

  • Veldu hádegistilboð frekar en dýran kvöldverð.
  • Ókeypis gersemar: götulist, sólsetur við sjóinn og göngutúr við Tjörnina.
  • Borgarkortið (City Card)? Þess virði ef þú ætlar á mörg söfn.

Ábyrg ferðamennska og góðir siðir

Farðu í sturtu áður en þú ferð í laugarnar – heimamenn taka það alvarlega. Haltu þig á stígum úti í náttúrunni, fylltu á flöskuna (kranavatnið er tært) og styddu við innlenda framleiðendur. Klæddu þig fyrir vind, ekki bara kulda. Og ekki henda rusli. Íslensk náttúra á skilið mikla virðingu.

Hvað á að pakka fyrir 48 tíma í Reykjavík

Lög, lög, lög. Og fleiri lög. Vindheldur jakki, hlý millilög, vatnsheldir skór, sundföt, nett handklæði og hleðslubanki. Vetur? Mannbroddar fyrir hálar gangstéttar. Sumar? Svefngríma fyrir endalausa birtuna.

Algengar spurningar

Er hægt að ganga um Reykjavík? Svo sannarlega. Flestir áhugaverðir staðir eru í kringum miðbæinn.
Þarf ég reiðufé? Nei – kort ráða ríkjum.
Get ég séð norðurljósin úr borginni? Stundum, en skipulagðar ferðir auka líkurnar.
Hvar er best að sjá norðurljósin nálægt Reykjavík? Hvalfjörður er besti staðurinn nálægt Reykjavík til að sjá norðurljósin. Hann er aðeins 40 mínútur frá miðbænum – nógu nálægt, en nógu langt frá ljósmengun borgarinnar.
Valkostir við lónin? Sjóböðin í Hvammsvík eru aðeins 45 mínútur frá miðbænum, með átta minni náttúrulaugum í stað eins stórs lóns, sem gefur tilfinninguna að vera hluti af náttúrunni.

Að lokum

Tveir dagar í Reykjavík geta endurnært sálina á óvæntan hátt. Á milli rjúkandi lauga, líflegra gatna og fersks sjávarloftsins ferðu heim og langar í meira. Pakkaðu skynsamlega, skipuleggðu lauslega og leyfðu Reykjavík að koma þér á óvart.