Millilending á Íslandi: Nýttu tímann sem best

Hvað er hægt að gera í millilendingu í Reykjavík?
Það er margt hægt að gera í millilendingu í Reykjavík, en það fer allt eftir því hversu mikinn tíma þú hefur. Ef þú hefur aðeins nokkra klukkutíma í Reykjavík er tilvalið að fara í góðan göngutúr um miðbæinn. Ef tíminn er rýmri getur þú farið út fyrir höfuðborgina og upplifað íslenskar náttúrulaugar og það sem fyrir augu ber á leiðinni.
Ísland er hlið milli tveggja heimsálfa. Saga íslenskra flugmála er samofin því að bjóða hagstæð flug milli Ameríku og Evrópu með viðkomu á Íslandi.
Íslensk flugfélög á borð við Icelandair hafa lengi boðið upp á að lengja millilendinguna á Íslandi í allt að 48 klukkustundir án aukagjalds. Það er því engin ástæða til að láta sér nægja að hafa tæknilega séð komið til Íslands á hlaupum milli flugvéla. Lengdu millilendinguna og fáðu smakk af því besta sem Reykjavík og nágrenni hafa upp á að bjóða.
Njóttu blöndu af náttúru og borgarsjarma á litlu svæði og láttu hverja klukkustund millilendingarinnar telja.
Hversu löng er millilendingin? Veldu ævintýrið af kostgæfni
Byrjum á því að vera raunsæ varðandi tímann.
Það sem þú getur gert fer eftir því hversu mikinn tíma þú hefur.
- Undir 6 klukkustundir Slakaðu á og haltu þig nálægt miðbænum. Miðbær Reykjavíkur er lítill og auðratað, svo þú getur gert heilmikið á stuttum tíma.
- 6 til 12 klukkustundir Þá er aðeins meira svigrúm. Farðu í heita laug eða stutta bátsferð í hvalaskoðun.
- 12 til 24+ klukkustundir Þá opnast Ísland fyrir alvöru. Klassískar ferðir um Gullna hringinn, eldfjallalandslag og jafnvel möguleiki á að sjá norðurljósin (ef tímasetningin er heppileg).
Þú veltir kannski fyrir þér hvort þú náir að fara út af flugvellinum og aftur til baka í tæka tíð. Já, það getur þú! Skipuleggðu fram í tímann og fylgstu með tímanum sem eftir er.
Stutt millilending í Reykjavík (undir 6 klst.)

Þú hefur ekki marga klukkutíma til að ráfa um. Engar áhyggjur – vegna smæðar Reykjavíkur getur þú séð ótrúlega mikið á örfáum klukkustundum.
Byrjaðu á Hallgrímskirkju, kirkjunni frægu sem minnir á eitthvað úr dystópískri vísindaskáldsögu. Úr turninum er útsýni í allar áttir yfir borgina – frábær leið til að taka myndir af borginni ofan frá.
Frá Hallgrímskirkju er tilvalið að fara á Brauð & Co, fyrsta hipster-handverksbakarí landsins, og smakka kanilsnúð. Spurðu hvort eitthvað sé nýkomið úr ofninum, en farðu varlega – snúðarnir eru svo ljúffengir að þú tekur ekki eftir brunanum fyrr en þú hefur gleypt þá.
Haltu svo lengra niður brekkuna á Laugaveg, aðalgötuna. Þar eru skemmtilegar búðir, minjagripaverslanir og notaleg kaffihús. Hinn frægi pylsuvagn Bæjarins beztu pylsur er skammt frá. Hann er orðinn að kennileiti fyrir ferðamenn sem vilja gera eins og heimamenn, og það af mjög góðri ástæðu. Ef þú ætlar að koma upp um þig sem ferðamann er þetta staðurinn til þess.
Farðu í eina af hverfissundlaugum Reykjavíkur, eins og Laugardalslaug, Vesturbæjarlaug eða Sundhöllina. Í sundlaugunum hittast Íslendingar og spjalla. Þær eru svar Íslendinga við kránum í Englandi eða kaffihúsunum í Frakklandi. Það þarf ekki að bóka fyrir fram, svo þú getur bara mætt. Hafðu þó í huga að sundlaugum getur verið lokað með stuttum fyrirvara vegna viðhalds – hringdu því á undan til að vera viss um að þær séu opnar.
Miðlungslöng millilending (6 til 12 klst.)
Með meiri tíma getur þú farið út fyrir höfuðborgina. Þú ættir endilega að slaka á í náttúrulaugunum í Sjóböðunum í Hvammsvík, í fallegri 45 mínútna akstursfjarlægð frá Reykjavík.
Í Hvammsvík eru færri gestir en á stóru ferðamannastöðunum. Ímyndaðu þér að liggja í heitri laug alveg við Norður-Atlantshafið, umkringd(ur) ósnortnu landslagi íslensks fjarðar.
Annað sem enginn ætti að missa af er stutt hvalaskoðun eða lundaskoðun frá Reykjavík. Ferðirnar taka um tvær til þrjár klukkustundir og gefa færi á að sjá hnúfubaka eða háhyrninga. Ekkert jafnast á við að sjá hval blása nokkra metra frá þér.
Löng millilending (12 til 24+ klst.)
Ef þú ert svo heppin(n) að hafa lengri millilendingu hefur þú formlega heilan dag til að skoða þig um. Þá er heil dagsferð um Gullna hringinn vel framkvæmanleg.
Farðu fyrst á Geysissvæðið. Strokkur gýs á 5–10 mínútna fresti.
Farðu svo að Gullfossi. Óbeislaður kraftur vatnsins er eitt það stórfenglegasta sem hægt er að sjá á Íslandi.
Endaðu í Þjóðgarðinum á Þingvöllum, þar sem þú getur bókstaflega gengið á milli tveggja jarðfleka – Evrópu og Norður-Ameríku – sem minnir skemmtilega á kraft náttúrunnar og einstaka jarðfræði Íslands. Saga staðarins sem vettvangs elsta þjóðþings heims gefur honum sögulega dýpt.
Á leiðinni til baka frá Þingvöllum eru Sjóböðin í Hvammsvík aðeins 15 mínútna krókur frá aðalveginum.
Alþjóðaflugvöllurinn er á Reykjanesskaga, þar sem er eldfjallalandslag, jarðhitasvæði og hin fræga Brú milli heimsálfa.
Frá Keflavíkurflugvelli til Reykjavíkur þegar tíminn er naumur
Flugrútan er besta leiðin til Reykjavíkur. Hún er á hagstæðu verði, gengur oft og skilar þér í miðbæinn. Hún er betri en nokkur hraðlest á meginlandinu, þar sem þú nýtur tunglkennds landslagsins á leiðinni. Í rútunum er farangursgeymsla ef þú ert ekki búin(n) að innrita töskurnar.
Ef þú vilt gera hlutina sjálf(ur) (eða ert í litlum hópi) gefur bílaleigubíll þér sveigjanleika til að ferðast á eigin vegum. Mundu að vegirnir geta verið varasamir, sérstaklega utan sumars.
Leigubílar og einkaakstur eru í boði en geta verið dýrir – stundum tvöfalt eða þrefalt dýrari en Flugrútan ef þú ert ein(n) eða í litlum hópi. Ef tíminn er naumur gæti það þó verið besti kosturinn.
Matur og drykkur í millilendingunni
Íslenskur matur er kannski ekki það sem þú býst við. Hugsaðu ferskt, einfalt og heiðarlegt – með nokkrum óvæntum útspilum.
Prófaðu íslenska sérrétti eins og skyr, rjómakennda mjólkurafurð sem minnir á jógúrt – tæknilega séð ostur – stútfulla af próteini. Eða fáðu þér ferskt sjávarfang – íslenskur þorskur og bleikja eru undirstöðuréttir sem bornir eru fram á bistróum, matarvögnum og veitingastöðum um alla Reykjavík.
Í fljótlegan bita er pylsuvagninn aftur goðsagnakenndur. Bæjarins beztu pylsur eru stofnun. Með kók færðu algengasta matarlega samnefnara Íslendinga.
Ef þú ert bjórunnandi skaltu smakka íslenskan bjór. Allt frá fjöldaframleiddum lagerbjórum eins og Gull til skemmtilegra handverksbjóra og villiöls.
Hagnýt ráð fyrir streitulausa millilendingu
- Veðrið á Íslandi breytist hratt, svo klæddu þig í lögum. Hafðu allt vatnshelt, til öryggis.
- Gjaldmiðillinn er íslensk króna (ISK), en greiðslukort eru alls staðar tekin gild.
- Á Keflavíkurflugvelli og á sumum hótelum í Reykjavík er farangursgeymsla. Þannig getur þú skoðað þig um án þess að burðast með töskur.
- Auðvelt er að fá SIM-kort sem veita traust netsamband á ferðinni.
Hugmyndir fyrir millilendingu í Reykjavík
Í millilendingu í Reykjavík er best að forgangsraða því sem þig langar mest að gera. Og bæta við nokkrum hlutum sem þú gætir gert – best er að vera sveigjanleg(ur).
- Röltu um miðbæ Reykjavíkur. Það er ekki langt að fara og þú nærð sjálfu fyrir framan helstu sjálfustaðina.
- Fáðu þér íslenska pylsu. Ef röðin við upprunalega vagninn er of löng eru fjölmargir aðrir kostir, bæði í matarvögnum og litlum hverfisbúðum.
- Slakaðu á í heitu vatni. Ef tíminn er mjög naumur skaltu fara í hverfissundlaug. Ef þú hefur nokkra klukkutíma til viðbótar skaltu fara í Sjóböðin í Hvammsvík.
- Heimsæktu Grandann. Þar er fjölbreytt afþreying og söfn sem gera þér kleift að upplifa Ísland án þess að yfirgefa höfuðborgina. Og fjöldi ljúffengra veitingastaða.
- Farðu í ísbúð – sama hvernig viðrar. Fáðu þér klassískan ís í brauðformi með súkkulaðidýfu. Hann er eftirréttasystkini pylsunnar.
Samantekt
Það er nóg hægt að gera til að nýta klukkustundirnar. Auðvelt er að komast frá flugvellinum til Reykjavíkur og þegar þangað er komið getur þú slakað á í Sjóböðunum í Hvammsvík, farið í hvalaskoðun eða rölt um bestu staði borgarinnar.
Ef tíminn leyfir er Gullni hringurinn líka innan seilingar.
Þetta passar vel inn í flestar millilendingar, með skýrum leiðum og hagnýtum ráðum sem halda öllu þægilegu og streitulausu.
Algengar spurningar um millilendingu á Íslandi
Sp.: Hvað er hægt að gera í millilendingu í Reykjavík?
Sv.: Það fer eftir því hversu mikinn tíma þú hefur. Ef þú hefur aðeins nokkra klukkutíma getur þú farið yfir stóran hluta miðbæjarins. Ef millilendingin er lengri gætir þú farið í náttúrulaugar rétt norðan við borgina eða heimsótt safn.
Sp.: Má ég fara út af flugvellinum í millilendingu?
Sv.: Já, það máttu. Mundu bara að gera ráð fyrir tollinum og ferðatímanum aftur á flugvöllinn.
Sp.: Hvernig fer vegabréfaeftirlit fram í millilendingu á Íslandi?
Sv.: Þú ferð í gegnum hefðbundið vegabréfaeftirlit í Keflavík ef þú yfirgefur flugvöllinn, svo hafðu skilríkin við höndina.
Sp.: Hvenær er best að millilenda á Íslandi?
Sv.: Sumarið býður upp á endalausa dagsbirtu og milt veður, en veturinn býður upp á norðurljós en styttri daga.
Sp.: Er hægt að treysta á ferðir að vetri?
Sv.: Almennt já – en kannaðu alltaf veðurspá og hvort ferðum hafi verið aflýst.