Tveir listamannaskálar með útsýni yfir vatnið og fjörðinn

Listamannaskálarnir

Listamannaskálarnir

Við höfum bætt við 8 Listamannaskálum í úrvalið af húsum í ómótstæðilegri náttúru Hvammsvíkur.

Skálarnir eru hannaðir til að falla inn í stórbrotið umhverfið.

Skálarnir eru helgaðir íslenskum listamönnum sem eru í uppáhaldi hjá okkur. Hver skáli hýsir listaverk eftir viðkomandi listamann sem gerir hann einstakan en allir skálarnir eru innréttaðir og útbúnir á svipaðan hátt.

Þegar fram í sækir munu 5 skálar verða helgaðir þekktum íslenskum listamönnum og verkum þeirra sem hafa verið í okkar eigu í lengri tíma. 3 skálar verða síðan helgaðir ungum og efnilegum íslenskum listamönnum. Á hverju ári fá þessir 3 skálar að hýsa verk eftir nýja listamenn.

Listamannaskálarnir eru 8 með einu svefnherbergi hver. Í hverjum skála er svefnherbergi fyrir tvo, baðherbergi, eldhúskrókur og stofa með tilkomumiklu útsýni út Hvalfjörðinn.

Listamannaskálarnir eru tilvaldir fyrir pör eða stærri hópa sem ferðast saman. Húsunum er raðað í fjóra hópa þar sem tvö hús eru nálægt hverju öðru án þess þó að þau skapi ónæði hvort af öðru.

Hægt er að óska eftir gistingu í skála sem er tileinkaður ákveðnum listamanni við bókun en það fer eftir framboði hverju sinni hvort hægt sé að verða eftir þeim óskum.

Listasmannaskálarnir eru í landi Hvammsvíkur, nálægt Hlöðunni og eru í göngufjarlægð frá Sjóböðunum í Hvammsvík og Stormi Bistro.

Gestir
2
Baðherbergi
1
Svefnherbergi
1
Rúm
1
Bóka núna

Myndir