Velkomin/n í Hvammsvík
Njóttu íslenskrar náttúru
Slakaðu á í 8 heitum laugum í stórbrotnu umhverfi Hvalfjarðarins, aðeins 45 mínútur frá miðborg Reykjavíkur. Sjóböðin eru í fjöruborðinu og því er tilvalið að skella sér í sjóinn milli þess sem þú nýtur útsýnisins úr böðunum. Til að fullkomna heimsóknina í Hvammsvík, er gott að setjast niður á Stormi Bistro og njóta sjávarréttasúpunnar okkar.
-
Átta sjóböð í fjöruborðinu
Hitastig vatnsins er allt frá sjávarhita (um 10°C) til 42°C í upprunalegu Gömlu lauginni.
-
Gisting
Á svæðinu eru tólf hús í boði til að gista í. Eyðið gæðastundum með vinum og fjölskyldu, umvafin náttúru.
-
Stormur Bistro
Létt, norræn matargerð, úr hráefnum sem innblásin eru af umhverfi Hvammsvíkur. Sjávarréttasúpan er ómissandi!
-
Hlaðan
Hlaðan er til staðar fyrir gesti sem dvelja í húsunum okkar. Í hlöðunni finnur þú sameiginlegt svæði til að slaka á, leikherbergi með billjardborð og borðtennis og nýuppgert líkamsræktarherbergi.
-
Afþreying
Við höldum reglulega viðburði eins og kynningartíma á Wim Hof aðferðinni, sjósund með leiðsögn og kajakróður. Allt innifalið í aðgangsmiðanum. Skráðu þig á póstlistann okkar til að fá tilkynningar fyrirfram.
-
Kannið svæðið
Kannið Hvammsvíkurjörðina með því að ganga strandlengjuna, læra um sögu staðarins og umhverfisins í kring eða ganga fjöllin í Hvalfirðinum.
Póstlistinn okkar
Skráðu þig til að fá upplýsingar um sérstaka viðburði, tilboð og margt fleira