Silfurhringurinn: valkostur við Gullna hringinn

Vissir þú að til er valkostur við Gullna hringinn sem heldur í tilþrifin og stærðina en sleppur við rútulestirnar, og er ríkari af sögum og kyrrð? Hann heitir Silfurhringurinn.
Flestir sem koma til Íslands hafa heyrt um Gullna hringinn, eða að minnsta kosti viðkomustaði hans: Gullfoss, Geysi og Þjóðgarðinn á Þingvöllum. Hann er vinsælasta ferðamannaleið landsins utan Reykjavíkur.
Silfurhringurinn er ekki beint leyndarmál, en hann virkar þannig. Og hann liggur um hrjúft landslag, vöggu Íslendingasagnanna og jarðhitaupplifanir.
Flýtileiðir:
- Silfurhringurinn og Gullni hringurinn: samanburður
- Hvar er Silfurhringurinn?
- Kort af Silfurhringnum
- Hvar á að stoppa á Silfurhringnum
- Sjóböðin í Hvammsvík: fullkomin bækistöð fyrir Silfurhringinn
- Borgarnes: upphitunin
- Reykholt: skáld, laug og heilmikil saga
- Hraunfossar og Barnafoss: fossar með karakter
- Húsafell: náttúra, list og bækistöðvarstemning
- Neðanjarðar: hraunhellirinn Víðgelmir
- Langjökull: inn í hvítuna
- Metnaðarfull(ur)? Gakktu að Glym
- Hvalbátarnir í Hvalfirði
- Samantekt
- Spurt og svarað: það helsta um Silfurhringinn
Silfurhringurinn og Gullni hringurinn: samanburður
Gullni hringurinn býður upp á stórstjörnur íslenskrar náttúru – goshveri, fossa og rútufarma af ferðamönnum. Silfurhringurinn er dýpri og liggur um hraunbreiður, náttúrulaugar og sögusvið.
Þetta er engin keppni. En ef tíminn er takmarkaður og þú þarft að velja er gott að vita hvað greinir þessar tvær leiðir að.
- Gullni hringurinn: Þar eru allir þekktustu staðirnir
- Silfurhringurinn: Þar eru sambærilegir viðkomustaðir: gjósandi hverir, tilkomumiklir fossar og sögustaðir frá víkingaöld.
- Sá gullni er þekktari og því fjölmennari, á meðan sá silfraði er fáfarnari leið fyrir flesta ferðamenn
- Þess vegna eru fleiri skipulagðar ferðir um Gullna hringinn, margar með sérstöku ívafi
Hvar er Silfurhringurinn?
Silfurhringurinn liggur um Borgarfjörð á Vesturlandi.
Flestir hefja hringinn í Hvalfirði og halda til Borgarness – notalegs og rólegs bæjar um 75 mínútur norðan við Reykjavík. Þaðan liggur leiðin inn til landsins um víða dali, hraunbreiður og rjúkandi hlíðar áður en hún liggur aftur um hinn tilkomumikla Hvalfjörð.
Leiðin er um 220 kílómetrar alls, með upphaf og endi í Hvammsvík í Hvalfirði, eftir því hversu marga útúrdúra þú tekur. Og þú vilt taka nokkra. Af góðu tegundinni.
Kort af Silfurhringnum

Silfurhringurinn er um 220 km langur: frá Hvammsvík til Borgarness, upp Borgarfjörð og endað í Hvalfirði í Sjóböðunum í Hvammsvík. Þú getur opnað kortið í Google Maps.
Hvar á að stoppa á Silfurhringnum
Sjóböðin í Hvammsvík: fullkomin bækistöð fyrir Silfurhringinn

Hvammsvík er fullkominn upphafsstaður og bækistöð ef þú velur gistinguna sem þar er í boði. Sjóböðin í Hvammsvík eru klassísk leið til að enda daginn, slaka á og njóta stórkostlegs útsýnisins yfir fjörðinn.
Hér blandast jarðhitinn ferskleika sjávarins – átta laugar dreifðar um fjöruna, allt frá baðvatnsþægindum upp í „þessi vekur þig“. Útsýnið? Þú flýtur nánast í firðinum, með fjöll allt í kring og sjófugla sveimandi yfir.
Þar er gufubað. Bar sem hægt er að synda að. Og stöku sinnum stunda heimamenn sjósund eins og þeir séu að æfa fyrir víkingajárnkarl.
Borgarnes: upphitunin
Það gæti verið freistandi að bruna í gegnum Borgarnes. Ekki gera það. Hér býr sál.
Í bænum er Landnámssetrið, sem hljómar fræðilega en er ótrúlega grípandi. Þar er sögð saga fyrstu landnemanna og kafað djúpt (ekki bókstaflega) í líf Egils Skallagrímssonar – víkings og skálds með alvarleg reiðivandamál og enn alvarlegri kveðskap. Ef þú hefur áhuga á Íslendingasögunum er þetta gullnáma.
Fáðu þér kaffi á einu af kaffihúsunum við höfnina. Kannski kanilsnúð líka. Þú þarft á sykrinum að halda.
Reykholt: skáld, laug og heilmikil saga
Stuttur akstur inn til landsins leiðir þig í Reykholt, sem lítur kannski út fyrir að vera lítið en slær langt yfir eigin þyngd.
Hér bjó Snorri Sturluson – rithöfundurinn á 13. öld sem skráði í raun norræna goðafræði og veitti listamönnum allt frá Wagner til Tolkiens og Stan Lee innblástur. Án Snorra vissum við líklega miklu minna um Þór og Óðin og hefðum ekki Hringadróttinssögu. Hér er laug (Snorralaug), hógvær steinhringur fylltur heitu vatni þar sem Snorri baðaði sig og spann epískar sögur. Sú laug ein hefur meira bókmenntalegt vægi en flestar námskrár háskóla.
Kirkjan og Snorrastofa eru friðsæll viðkomustaður og ef þú hittir á rétta tíma dags er birtan í dalnum… dulmögnuð, á besta hátt.
Hraunfossar og Barnafoss: fossar með karakter

Næst er komið að tveimur fossum sem gætu ekki verið ólíkari.
Hraunfossar eru tignarlegir, nánast draugalegir – hundruð lítilla lækja sem seytla undan hrauninu. Ekkert dynjandi fall, bara hægfara, endalaus vatnsslæða sem rennur yfir svart bergið. Nokkrum skrefum frá? Barnafoss. Reiður, ólgandi og blár. Foss sem lítur út fyrir að hafa fengið slæmar fréttir.
Sagan segir að tvö börn hafi farist hér þegar þau fóru yfir náttúrulega steinbrú sem síðan var brotin niður. Ísland gerir ekki Disney-endi.
Húsafell: náttúra, list og bækistöðvarstemning
Í Húsafelli fer allt að virka bæði jarðbundið og víðfeðmt. Staðurinn er í skjólgóðu skóglendi (sem er sjaldgæft á Íslandi) og þar blandast mannlíf, listrænn blær og gott aðgengi að óbyggðunum.
Vantar þig nesti eða sundsprett? Laugarnar hér eru fjölskylduvænar en samt fallegar. Viltu skoða íslenska list? Leitaðu að verkum Páls Guðmundssonar, mannsins með steinhörpuna. Já, steinhörpu. Hann býr bókstaflega til hljóðfæri úr grjóti.
Ef þú ert djörf/djarfur er þetta líka upphafsstaður fyrir tvær villtar upplifanir: hraunhellinn Víðgelmi og Langjökul.
Neðanjarðar: hraunhellirinn Víðgelmir
Undir Hallmundarhrauni er einn stærsti hraunhellir landsins.
Víðgelmir er risastór, yfir einn og hálfur kílómetri að lengd, með ísskúlptúrum á veturna og litríkum steinefnaveggjum sem líta út fyrir að vera handmálaðir.
Aðeins er hægt að skoða hann með leiðsögn – og satt að segja myndir þú ekki vilja fara þangað niður ein(n). Hjálmar og höfuðljós eru afhent; brandarar um að verða étin(n) af tröllum eru valfrjálsir en hvattir.
Þar er rakt, dimmt og undarlega fallegt.
Langjökull: inn í hvítuna
Segjum það bara hreint út: Langjökull er risastór. Hann er næststærsti jökull landsins og þar er ein óraunverulegasta ferðamannaupplifun heims: manngerð göng sem grafin eru djúpt inn í ísinn.
„Into the Glacier“ hljómar eins og skáldsaga eftir Jules Verne, og satt að segja er tilfinningin svipuð. Þú ert flutt(ur) upp á jökulinn á risastórum trukki og gengur svo um bláupplýsta ganga úr ævafornum ís.
Upplifunin er vel skipulögð en ekki troðin. Fáguð án þess að vera tilgerðarleg. Einn af þessum stöðum þar sem tíminn virðist gefast upp og setjast við hliðina á þér.
Metnaðarfull(ur)? Gakktu að Glym
Áttu orku aflögu? Glymur er á leiðinni til baka – næsthæsti foss landsins, 198 metrar. Gangan að Glym tekur nokkrar klukkustundir fram og til baka, með ferð yfir ána og skrið í gegnum helli (ekkert grín), en það borgar sig.
Taktu með þurra sokka. Treystu mér.
Hvalbátarnir í Hvalfirði

Við strönd Hvalfjarðar sérðu ryðgaða gamla hvalbáta, áleitnar leifar íslensks hvalveiðiiðnaðar sem eitt sinn var í blóma. Þar eru engin skilti eða miðasölur. Þeir standa bara þarna, uppi á landi, upplitaðir af salti og tíma, og skrokkarnir braka af sögum sem flestir ferðamenn heyra aldrei.
Það er eitthvað undarlega ljóðrænt við það. Fegurð fjarðarins – svo óspillt og þögul – lætur þessar minjar virka eins og draugaskip sem lagt hefur verið í fortíðinni. Þú eyðir ekki mörgum klukkustundum hér, en þetta er myndastopp sem situr lengur í minninu en búist var við.
Mundu bara að fara varlega – þetta er ekki safn, heldur minning úr málmi.
Nokkur góð ráð áður en lagt er af stað um Silfurhringinn
- Tímasetning: Sumarið gefur lengri daga og auðveldari akstur. Veturinn bætir við drungalegum blæ, en kannaðu færðina samviskusamlega.
- Bíll: Þú þarft ekki jeppa, en hann hjálpar ef þú ætlar í hella eða út fyrir hringinn.
- Matur: Taktu með nesti. Viðkomustaðir eru fáir þegar komið er inn á miðjan hringinn.
- Hvað á að pakka: Fatalög. Regnföt. Sundföt. Höfuðljós ef þú ferð í hella. Og hleðslutæki – síminn verður í yfirvinnu.
Samantekt
Silfurhringurinn er ekki háværasta leið landsins, en hann gæti verið sú sálarríkasta. Hann hlykkjast um hraunbreiður Vesturlands, fossa prýdda dali og aldagömul sögusvið og býður upp á eitthvað dýpra en bara fallegt útsýni.
Þú færð á tilfinninguna að hafa ráfað inn í útgáfu af Íslandi sem ferðamenn hafa ekki enn kortlagt. Þetta er sögustund, heitt bað og ganga – og þú veist aldrei alveg hvað bíður handan við næstu beygju.
Í samanburði við glysgjarnari Gullna hringinn er Silfurhringurinn hægari og ríkari upplifun. Hvort sem þú gengur í gegnum jökul, skríður inn í hraunhelli eða horfir bara á gufuna liðast upp af laug í fjallshlíð, situr þessi leið eftir í huganum löngu eftir að akstrinum lýkur.
Spurt og svarað: það helsta um Silfurhringinn
Sp.: Hversu langan tíma tekur að aka Silfurhringinn?
Sv.: Það er hægt á einum degi (5–7 klukkustundir með stuttum stoppum), en gefðu þér heilan dag eða meira til að skoða í rólegheitum. Gistu í Hvammsvík ef þú getur.
Sp.: Hentar Silfurhringurinn börnum?
Sv.: Svo sannarlega. Fossar, léttar göngur, hraunhellar (með leiðsögn) og laugar eins og í Hvammsvík gera hann frábæran fyrir fjölskyldur.
Sp.: Þarf ég skipulagða ferð eða get ég ekið sjálf(ur)?
Sv.: Þú getur vel ekið sjálf(ur). Vegirnir eru malbikaðir eða vel við haldnir malarvegir. Einnig er hægt að bóka skipulagðar ferðir um Silfurhringinn. Sum afþreying (eins og Víðgelmir eða Into the Glacier) krefst þó leiðsagnar.
Sp.: Hvenær ársins er best að fara Silfurhringinn?
Sv.: Sumarið (júní til ágúst) býður upp á græna dali, langa daga og auðveldan akstur. Haustið býður upp á haustliti og tínslu úr náttúrunni. Veturinn bætir við snjó, færri ferðamönnum og möguleika á norðurljósum. Hafðu færðina í huga.
Sp.: Eru bensínstöðvar á leiðinni?
Sv.: Já, en ekki margar. Fylltu á í Borgarnesi eða Húsafelli til öryggis.
Sp.: Get ég farið bæði Silfurhringinn og Gullna hringinn í sömu ferð?
Sv.: Já! Margir fara fyrst Gullna hringinn og svo þann silfraða fyrir dýpri og rólegri stemningu. Það er aðeins 20 mínútna akstur frá Þingvöllum í Hvammsvík, þar sem Silfurhringsævintýrið hefst.
Sp.: Hvað á ég að pakka fyrir Silfurhringinn?
Sv.: Fatalög, regnföt, gönguskó, sundföt, myndavél, nesti og forvitni. Kannski eina eða tvær Íslendingasögur fyrir bíltúrinn.