
Listamiðstöð Hvammsvíkur
Listin í forgrunni
Í Listamiðstöðinni eru reglulega haldnar sýningar, bæði á verkum úr safni okkar og sýningar í umsjón sýningarstjóra þar sem verkin mynda heild um tiltekna hugmynd eða þema.
Listamiðstöðin er skammt frá Reykjavík, umvafin stórbrotinni íslenskri náttúru, og er því kjörinn staður til íhugunar og til að sækja innblástur í verk manna og náttúru.
Markmið okkar er að gera almenningi kleift að njóta lista og hlúa bæði að starfandi og upprennandi listafólki í íslensku listalífi. Auk þess viljum við sýna og heiðra gömlu meistarana, sem listamenn samtímans byggja á.
Sem hluti af hugmyndinni að baki Listamiðstöðinni höfum við tileinkað hluta gistingarinnar, Listamannaskálana, íslensku listafólki. Hver skáli er nefndur eftir listamanni og prýddur verkum hans eða hennar. Auk þess eru verk úr safni okkar reglulega færð á milli bygginga í landi Hvammsvíkur.
Við munum reglulega taka á móti gestalistamönnum sem sýna verk sín hjá okkur.
Íslensk list
Markmið okkar er að færa íslenska list nær fólki í þægilegu umhverfi þar sem gestir geta slakað á og notið verka listamannanna okkar.
Stærstur hluti safnsins er eftir íslenska samtímalistamenn (svo sem Ólaf Elíasson, Shoplifter, Hildi Jónsson, Jón Sæmund og Ragnar Kjartansson) og gömlu meistarana, svo sem Jóhannes Kjarval, Birgi Andrésson, Svavar Guðnason og Alfreð Flóka.
Auk þess eru í safninu verk eftir listamenn víðs vegar að úr heiminum. Þar á meðal eru Chuck Close, Andy Warhol og Marc Sijan.



