
Þú finnur okkur í Hvalfirðinum

Hvammsvík er staðsett um miðjan Hvalfjörðinn á þjóðvegi 47, í aðeins 45 mínútna akstri frá Reykjavík.
Við erum aðeins:
- 52 km frá Reykjavík
- 38 km frá Akranesi
- 47 km frá Þingvöllum
- 94 km frá Keflavíkurflugvelli
Stysta leiðin frá Reykjavík
Auðveldasta leiðin til að komast til Hvammsvíkur frá Reykjavík er Þjóðvegur 1 í átt að Borgarnesi/Akureyri (norður).
Þegar komið er úr Reykjavík og Mosfellsbæ, er keyrt í um það bil 15 mínútur. Áður en komið er að Hvalfjarðargöngunum er beygt til hægri inn á veg 47 (Athugið: Ekki fara inn í göngin, þá hefurðu farið of langt!). Það er keyrt áfram í um það bil 20 kílómetra þar til skilti Hvammsvíkur sést á vinstri hönd.
Hvammsvík er auðþekkjanlegt frá veginum með svörtu húsunum á lóðinni. Lóðin er með hliði sem er opið á opnunartíma okkar, ef þú ert með bókað í gistingu skaltu fylgja leiðbeiningum í staðfestingarpóstinum.
Þegar þú kemur inn um hliðið að Hvammsvík frá vegi 47 tekur við afleggjari með dæmigerðum íslenskum malarvegi.
Vinsamlegast keyrðu varlega og njóttu.
