

Um Hvammsvík
Hvammsvík er Hvammsvík er fjölskyldueign og er tæplega 5 ferkílómetra stór jörð í miðju hins sögufræga Hvalfjarðar. Landið er í 45 mínútna fjarlægð frá Reykjavík.
Hvammsvík er sögulegur staður sem fyrst var numinn af víkingum fyrir rúmum 1000 árum, samkvæmt heimildum í Landnámabók sem rituð var á 11. öld.
Í seinni heimsstyrjöldinni var Hvammsvík tekin yfir af bandamönnum og notuð sem flotahöfuðstöðvar þeirra á Íslandi. Á hápunkti stríðsins voru hér nær 40.000 hermenn og yfir 200 skip lágu við akkeri í firðinum. Á stríðsárunum var Hvammsvík kölluð „Falcon Crest“ eða „Falcon Beach“ til að leyna raunverulegri staðsetningu hennar.
Hóla húsið, sem stendur efst á hæðinni í Hvammsvík, var reist af breska sjóhernum sem fjarskiptamiðstöð í seinni heimsstyrjöldinni. Húsið hefur síðan verið enduruppgert í heild sinni.
Þegar Winston Churchill heimsótti Ísland árið 1942 til að hitta Franklin D. Roosevelt yngri, er sagt að þeir hafi haldið leynifundi í Hóla húsinu, sem þá, eins og áður hefur komið fram, bar dulnefnið Falcon Crest.
Við viljum deila Hvammsvík með öðrum sem njóta þess að vera í sátt við náttúruna og dýralífið. Okkar helsta ósk er að gestir okkar fari ánægðir frá okkur, endurnærðir af krafti staðarins og geti hugsað sér að koma aftur auk vina og fjölskyldu.

Sjálfbærni
Sjálfbærni er kjarni starfseminnar í Hvammsvík.
Markmið okkar er að verða fyrsti áfangastaðurinn í hinum vestræna heimi sem er að fullu utan veitukerfa.
Nú þegar öflum við öllu okkar neysluvatni sjálf. Drykkjarvatnið kemur úr lokuðu vatnsbóli við Reynivallaháls. Við hitum Sjóböðin og allar byggingar á landareigninni með heitu vatni úr okkar eigin borholu.
Við erum núna að skoða leiðir til að vera með okkar eigin framleiðslu á rafmagni, annað hvort með því að virkja jarðvarma eða með sólarorku. Við stefnum á að vera algjörlega sjálfbær með rafmagn þegar við opnum hótelið okkar árið 2028.
Auk þess höfum við möguleika að afla matar og annarra nauðsynja frá bændum í nágrenninu, okkar eigin gróðurhúsi og í sjónum og fjörunni í kringum Hvammsvíkurjörðina. Við leitumst eftir því að vinna með handverks- og listafólki í nærumhverfinu til að skapa einstakt umhverfi og umgjörð fyrir Hvammsvík.
Við hvetjum gesti okkar til að virða bæði hvort annað og umhverfið þegar þau heimsækja okkur til að njóta og virða fyrir sér stórbrotna náttúru Hvalfjarðarins og fjölbreytts dýralífsins í kringum okkur.

Hofið
Hofið er skúlptúr sem nýtist einnig fyrir viðburði og athafnir og tekur á móti öllum, óháð trú- eða lífsskoðunum. Einu beiðni okkar er að gestir sýni hver öðrum og náttúrunni í kring virðingu meðan á heimsókn í Hvammsvík stendur.
Hvammsvík er fyrst nefnd í Landnámu. Að því er sögur herma hafi þá stóð hof í Hvammsvík, sem síðar var leyst af hólmi af kristinni kirkju. Þessi umbreyting, frá heiðnum siðum til kristni, og sú þróun að helg mannvirki hafi breytt um hlutverk í gegnum söguna, varð innblástur að Hofinu í Hvammsvík.
Hofið var hannað og fullklárað af Skúla Mogensen þann 16. ágúst 2025, fyrir brúðkaup hans og Grímu Bjargar Thorarensen. Þann dag vígði Guðrún Karls Helgadóttir, biskup Íslands, Hofið og helgaði það til notkunar sem kirkju fyrir athöfnina.
Hofið er bæði hægt að nýta undir athöfn og sem veislusalur. Eftir athöfnina er hægt að umbreyta því á auðveldan hátt í einstakt veislurými með sæti fyrir allt að 150 gesti. Veitingaþjónusta er í höndum traustra samstarfsaðila okkar.

List
Hvammsvík-safnið fæðist úr djúpri ástríðu og forvitni um list og sköpun í öllum sínum myndum.
Við höfum aldrei fylgt ákveðinni stefnu eða listastefnu; við kaupum einfaldlega verk sem við verðum ástfangin af. Þegar mögulegt er reynum við að tengjast listamönnunum sem við söfnum verkum eftir og bjóðum þá oft í heimsókn eða til dvalar í Hvammsvík.
Þó að flest verk séu eftir samtíma íslenska listamenn, inniheldur safnið einnig mikilvægar myndir eftir þekkta nútímalistamenn bæði frá Íslandi og erlendis. Við trúum eindregið að list eigi að lifa með manni og njóta hennar daglega. Þess vegna eru öll hús og byggingar í Hvammsvík full af frumlegum listaverkum, sem við vonum að gestir okkar njóti jafn mikið og við.
Ásmundur Sveinsson, Phoenix (1961)