
Gisting í Hvammsvík
Í Hvammsvík bjóðum við upp á hús í einkaleigu þar sem þú getur verið út af fyrir þig og notið náttúrunnar í algjöru næði. Húsin eru í kyrrð Hvalfjarðarins, þar sem sjórinn, móinn og fjallasýnin skapa einstakt andrúmsloft. Hvert hús hefur verið gert upp á smekklegan hátt en hinn upprunalegi þokki þeirra heldur sér.
Hólahúsið
Hólahúsiði er einstök eign með mögnuðu útsýni í allar áttir, yfir Hvalfjörðinn og umlykjandi fjallgarða. Við húsið leynist heit náttúrulaug til einkanota þar sem hægt er að láta líða úr sér í ómótstæðilegu umhverfi. Þótt hún sért aðeins í 45 mínútna fjarlægð frá borginni er staðsetningin sannarlega afvikin. Þú getur notið náttúrunnar með göngu um svæðið eða einfaldlega með því að horfa út um gluggann.
-
6 Gestir
-
2 Baðherbergi
-
3 Svefnherbergi
-
1 Náttúrulaug
-
4 Rúm










Vatnahúsið
Vatnahúsið er bjart og opið með mögnuðu útsýni yfir stöðuvatnið okkar og Hvalfjörðinn. Húsið er með öllum nútímaþægindum. Þar eru tvö svefnherbergi og tvö baðherbergi – tilvalið fyrir fjölskyldur eða tvö pör. Eldhús, stofa og borðstofa eru í opnu rými.
-
4 Gestir
-
2 Baðherbergi
-
2 Svefnherbergi
-
3 Rúm











Klúbbhúsið
Klúbbhúsið er fagurlega uppgerður sveitabær með glæsilegum húsgögnum, íslenskri myndlist og öllum nútímaþægindum. Þaðan er hægt að njóta stórbrotins útsýnis út fjörðin og fjöllin í kring. Heitur pottur er við húsið. Í húsinu eru 3 svefnherbergi á tveimur hæðum með gistipláss fyrir 7 manns ásamt tveimur baðherbergjum.
-
7 Gestir
-
2 Baðherbergi
-
3 Svefnherbergi
-
1 Heitur pottur
-
5 Rúm








Bóndabærinn
Bóndabærinn er elsta húsið á svæðinu, en líkt og nafnið gefur til kynna var það upprunalega býlið á Hvammi. Húsið hefur verið gert upp og býr yfir öllum helstu þægindum.
Fyrir utan húsið er hægt að njóta stórbrotins útsýnis yfir hafið. Bóndabærinn hentar sérlega vel fyrir stórar fjölskyldur eða vinahópa.
-
9 Gestir
-
2 Baðherbergi
-
3 Svefnherbergi
-
8 Rúm














Listamannaskálar
Listamannaskálarnir eru nýjast viðbótin við gistinguna í Hvammsvík. Hver skáli er tileinkaður listamanni með verkum úr safni Hvammsvíkur sem gefur skálanum einstakan blæ.
Í skálunum er eitt svefnherbergi, eldhúskrókur í stofu, og baðherbergi með sturtu.
-
2 Gestir
-
1 Baðherbergi
-
1 Svefnherbergi
-
1 Rúm








Hlaðan
Hlaðan er opin gestum sem dvelja á landareigninni. Hér finnur þú afþreyingarherbergi með ýmsum leikjum, nýbyggða líkamsræktarstöð og setustofu með sófum og borðum þar sem þú getur lesið góða bók eða spilað skemmtilegt borðspil!
Afþreying í Hvammsvík

Fjallgöngur
Skoðaðu fjölda fjallganga, bæði á Hvammsvíkurlandinu og í nærumhverfi þess. Lærðu meira um göngurnar og erfiðleikastig þeirra.

Strandbretti
Á sumrin er hægt að leigja strandbretti og er leigan innifalin í aðgöngumiðanum, svo lengi sem veður leyfir. Spyrjið starfsfólkið í móttökunni fyrir frekari upplýsingar.

Wim Hof-öndun
Reglulega eru haldin inngangsnámskeið í Wim Hof-öndunartækni. Þátttaka er innifalin í aðgöngumiðanum. Lærðu meira um Wim Hof-tímana og tímasetningar þeirra hér fyrir neðan.

Sjósund
Viltu prófa að synda í sjónum? Vertu með í inngangstíma í sjósundi fyrir byrjendur undir leiðsögn reyndra sjósundskappa.

Atlasaráskorunin
Prófaðu hina fornu lyftingaráskorun þar sem markmiðið er að lyfta þremur steinum yfir öxlina. Lærðu meira um áskorunina og verðlaunin sem eru í boði fyrir sigurvegara!

Stormur Bistro
Eftir frískandi ferð í sjóböðin mælum við með því að smakka ljúffenga rétti sem gerðir eru úr hráefnum úr nærumhverfi Hvammsvíkur.

Berjamór
Við mælum með að fara í góðan göngutúr um svæðið og fara í berjatínslu.

Veiði
Veiði í stöðuvatninu okkar er í boði fyrir næturgesti. Veiðibúnaður er í boði í húsunum. Vinsamlegast sendið okkur línu á info@hvammsvik.com ef þið hafið spurningar.

Steðji
Skoðaðu álfaklettinn (Steðji) í aðeins 5 mínútna akstursfjarlægð frá Hvammsvík.


