11.11: 30% afsláttur, aðeins í dag

Leiðarvísir um sólmyrkvann á Íslandi 2026

Að verða vitni að sólmyrkva er einstök upplifun. Almyrkvi á sólu er enn sjaldgæfari. Sólmyrkvinn 2026 verður reyndar fyrsti almyrkvi sem sést á Íslandi síðan 1954 og sá fyrsti sem sést frá Reykjavík síðan 1433! Þá var Reykjavík ekki einu sinni lítið þorp, svo færa má rök fyrir því að þetta sé í fyrsta sinn sem almyrkvi sést frá Reykjavíkurborg.

Ef þú ert á ferðinni á Íslandi 12. ágúst 2026 ertu því heppin(n). Ef þú vilt upplifa sólmyrkvann í Hvammsvík getur þú bókað heimsókn 12. ágúst HÉR – bóka í sjóböðin

Við bjóðum gestum upp á tvo kosti. Þú getur annaðhvort bókað aðgang í Sjóböðin meðan á myrkvanum stendur eða bókað sérstakan viðburð sem fer fram meðan á myrkvanum stendur í Hlöðunni og víðar um Hvammsvíkurlandið, með aðgangi að Sjóböðunum á eftir.

Hér er það helsta sem þú þarft að vita um almyrkvann á Íslandi 2026.

Af hverju er sólmyrkvinn á Íslandi 2026 svona sérstakur?

Sólmyrkvar eru ekki svo sjaldgæfir, þeir verða á hálfs árs fresti einhvers staðar á jörðinni. En til að sjá þá þarf að elta þá – og munum hversu stór hluti jarðar er bara haf.

Almyrkvar eru sjaldgæfari, þeir verða á um 18 mánaða fresti, en að almyrkvi sjáist á sama stað gerist aðeins á 360–410 ára fresti og er því viðburður sem flestar kynslóðir upplifa aldrei.

Við hverju má búast í almyrkva á sólu?

Að upplifa almyrkva á sólu er einstakur viðburður og það eykur á töfrana að vita við hverju má búast.

Sólmyrkvinn á Íslandi 2026 fer í gegnum nokkur stig:

  • Deildarmyrkvi hefst: Þegar tunglið fer að færast fyrir sólina sérðu lítið, dökkt skarð myndast á brún sólarinnar. Þetta stig varir í meira en klukkustund á meðan tunglið hylur smám saman meira af sólarljósinu.
  • Almyrkvi: Stórfenglegasti hlutinn – þegar tunglið hylur sólina alveg. Á Íslandi varir almyrkvinn í allt að 2 mínútur og himininn verður eins og í ljósaskiptunum. Þú gætir jafnvel séð kórónu sólarinnar, geislabaug úr rafgasi sem venjulega sést ekki með berum augum.
  • Deildarmyrkva lýkur: Þegar tunglið heldur áfram för sinni snýr sólarljósið smám saman aftur og myrkvanum lýkur.

Öryggið skiptir öllu máli meðan á sólmyrkva stendur. Horfðu aldrei beint í sólina án vottaðra sólmyrkvagleraugna.

Venjuleg sólgleraugu duga ekki til að horfa á sólmyrkva. Ljósmyndarar ættu að nota sólarsíu til að vernda búnaðinn og ná virkilega flottum myndum af stigum myrkvans.

Varúðarorð: Hvernig á að horfa á sólmyrkva á öruggan hátt

Að horfa í sólina án viðeigandi hlífðar getur valdið alvarlegum og varanlegum augnskaða, jafnvel þegar tunglið skyggir á hana. Fylgdu þessum öryggisleiðbeiningum til að njóta myrkvans án þess að stofna sjóninni í hættu.

Notaðu viðeigandi augnhlífar

Verndaðu augun. Venjuleg sólgleraugu, jafnvel mjög dökk, veita ekki næga vörn. Notaðu alltaf vottuð sólmyrkvagleraugu sem uppfylla alþjóðlega öryggisstaðalinn ISO 12312-2. Þessi sérhönnuðu gleraugu loka fyrir skaðlega útfjólubláa (UV) og innrauða (IR) geislun svo þú getir horft á myrkvann á öruggan hátt.

Ef þú átt ekki sólmyrkvagleraugu getur þú notað gataspjald (pinhole projector). Þessi einfalda, óbeina aðferð gerir þér kleift að fylgjast með myrkvanum án þess að horfa beint í sólina.

Þú getur búið það til úr pappaspjaldi með litlu gati, sem varpar mynd af sólinni á slétt yfirborð.

Forðastu óöruggar aðferðir

Horfðu aldrei á sólina í gegnum venjulegan sjónauka, stjörnukíki eða myndavél án sérhannaðra sólarsía.

Stækkunin magnar geisla sólarinnar og getur valdið samstundis óbætanlegum skaða á sjónhimnunni.

Gakktu úr skugga um að öll sjóntæki séu búin viðurkenndum sólarsíum sem sitja tryggilega yfir linsunum.

Hvernig á að festa almyrkvann á mynd

Til að ná góðum myndum er best að nota DSLR- eða spegillausa myndavél með aðdráttarlinsu (300 mm eða lengri).

Traustur þrífótur er nauðsynlegur til að draga úr hristingi og halda myndavélinni stöðugri í gegnum öll stig myrkvans.

Vertu með sólarsíu á linsunni til að vernda bæði myndflöguna og augun. Fjarstýrður afsmellari getur líka dregið úr hreyfingu og tryggt skarpar myndir.

Þú getur líka notað snjallsímann til að mynda viðburðinn.

Hvernig á að taka mynd af almyrkva á sólu:

  1. Undirbúðu þig fyrir fram: Kynntu þér búnaðinn og stillingarnar fyrir myrkvadaginn. Æfðu þig í að fókusa á sólina með sólarsíuna á.
  2. Notaðu sólarsíu: Notaðu alltaf vottaða sólarsíu meðan á deildarmyrkvanum stendur. Taktu hana aðeins af í almyrkvanum, þegar sólin er alveg hulin.
  3. Stilltu lýsingu handvirkt: Sjálfvirk lýsing getur gefið ósamræmdar niðurstöður. Í deildarmyrkvanum er gott að prófa lokarahraða um 1/1000 s á ISO 100. Í almyrkvanum skaltu hægja á í 1/2 s til að ná kórónunni.
  4. Taktu raðir af myndum: Taktu margar myndir með ólíkum stillingum til að ná öllu birtusviðinu.
  5. Myndaðu umhverfið: Ekki einblína bara á sólina – myndaðu draugalegt rökkrið, breytilega skuggana og viðbrögð fólksins fyrir ríkari frásögn.

Algeng mistök við myndatöku af sólmyrkva:

  • Að gleyma sólarsíunni í deildarmyrkvanum getur skemmt myndflöguna varanlega.
  • Að treysta á sjálfvirkan fókus í stað þess að stilla fókusinn handvirkt á sólina.
  • Að gleyma umhverfinu – víðmyndir af landslaginu í almyrkvanum gefa samhengi og dramatík.

Stillingar á iPhone og Android fyrir myndir af myrkvanum


Snjallsímar geta líka náð myndum af myrkvanum með réttum stillingum og undirbúningi:

  • Settu símann tryggilega á þrífót: Til að forðast hreyfðar myndir. Þótt flestir dýrari símar séu með innbyggða leiðréttingu lengir það tímann sem hver mynd tekur ef hendurnar skjálfa.
  • Virkjaðu handvirkar stillingar: Notaðu forrit eins og Halide (iPhone) eða ProCam X (Android) til að stilla lýsingu, ISO og fókus handvirkt.
  • Minnkaðu lýsinguna: Lækkaðu lýsingarleiðréttinguna svo sólin verði ekki að skærum, útbrenndum bletti.
  • Læstu fókusnum: Haltu fingrinum á sólinni á skjánum til að læsa fókusnum og fá skarpa og skýra mynd.
  • Notaðu raðmyndatöku: Í almyrkvanum skaltu virkja raðmyndatöku til að ná mörgum myndum í röð og auka líkurnar á fullkominni mynd. Þú gætir verið á stað þar sem almyrkvinn varir aðeins í 30 sekúndur, svo það er gott að ná sem flestum myndum.
  • Forðastu stafrænan aðdrátt: Stafrænn aðdráttur rýrir myndgæðin – notaðu frekar aðdráttarlinsu sem smellt er á símann.
  • Verndaðu linsuna: Það getur verið gott að setja sólarsíu yfir linsu símans meðan á deildarmyrkvanum stendur.

Aukaráð: Taktu upp náttúruna meðan á myrkvanum stendur

Almyrkvi á sólu er sjónarspil, ekki bara að sjá sólina myrkvast heldur líka að verða vitni að áhrifunum á dýralífið.

Taktu með auka myndavél eða síma, settu á þrífót og taktu upp myndband. Byrjaðu að taka upp nokkrum mínútum áður en tunglið fer að skyggja á sólina, allan myrkvann og nokkrar mínútur á eftir.

Þú nærð myndefni af náttúrunni sem þagnar smám saman og vaknar svo aftur með látum.

Veldu staðinn sem hentar þér best

Þótt Sjóböðin í Hvammsvík séu í jaðri almyrkvabeltisins verður myrkvinn þar 99,99%.

Ef þú vilt frekar slaka á og njóta myrkvans í heitu vatni, umkringd(ur) dýralífinu, í stað þess að keyra tímunum saman, er Hvammsvík frábær kostur til að upplifa myrkvann og fylgjast með því hvernig fuglar og selir bregðast við þegar sólin hverfur á bak við tunglið.

Algengar spurningar um sólmyrkvann 2026 á Íslandi

Sp.: Hvar á Íslandi sést myrkvinn 2026?
Sv.: Myrkvinn nær yfir vesturhluta landsins – sjá kortið hér að ofan.

Sp.: Hvenær er næsti sólmyrkvi á Íslandi?
Sv.: 12. ágúst 2026

Sp.: Klukkan hvað verður sólmyrkvinn á Íslandi?

Sv.: Hann hefst kl. 16:43 og almyrkvinn hefst kl. 17:44

Sp.: Hvar verður best að sjá sólmyrkvann 2026?

Sv.: Vesturhluti landsins verður besti staðurinn.