11.11: 30% afsláttur, aðeins í dag

Þjóðsögur og sagnir úr Hvalfirði

Við skulum vera hreinskilin – það er enginn skortur á goðsögnum á Íslandi. Landið andar þeim, allt frá sprungnum hraunbreiðum til hvíslandi fossa. En það er eitthvað öðruvísi við Hvalfjörð.

Hann er kyrrlátari en Gullni hringurinn, persónulegri en Reykjavík og nógu dularfullur til að hárin rísi á handleggjunum þegar þokan læðist inn af hafinu.

Aðeins 20 mínútur frá Reykjavík er fjörður þar sem gamlar sögur bergmála milli fjallanna. Og ef þú hlustar vel, virkilega vel, gætir þú heyrt bergmálið.

Hvalur í Hvalfirði við sólsetur

Risahvalurinn sem gaf firðinum nafn

Nafnið Hvalfjörður hljómar kannski einfalt. Auðvitað er það ekki svo. Það eru til ýmsar sögur af því hvers vegna fjörðurinn var nefndur eftir hval, en sú lífseigasta er þessi:

Fyrir löngu var bölvaður bóndi gerður að risastórum hval. Þetta var ekkert venjulegt sjávardýr; skepnan hafði harma að hefna. Hún réðst á báta, tætti net og skelfdi sjómenn árum saman. Enginn réð við hana – þar til gamall og blindur prestur, undir guðlegri vernd (eða bara ótrúlega heppinn), lokkaði hvalinn inn á grynningarnar, upp ána og alla leið upp í Hvalvatn, þar sem hann sprakk af áreynslu.

Þú getur horft út yfir vatnið frá stöðum eins og Þyrilsnesi eða Hvammsvík og, ef þú ert hugmyndarík(ur), séð fyrir þér skugga þessa volduga hvals rétt undir yfirborðinu. Sumir heimamenn segja enn að yfir firðinum hvíli undarleg orka, eins og vatnið muni.

Málverk af Glym

Draugar í þokunni: andi Glyms

Glymur er ekki bara foss. Hann er fossinn. Árum saman var hann hæsti foss landsins (þar til einhver þurfti endilega að finna annan falinn í jökli, en það er önnur saga).

Til að komast að Glym þarftu að ganga um gljúfur, yfir trjádrumb, inn í helli og upp brattar brekkur. Manni finnst maður vinna sér inn réttinn til að vera þar.

Ein sagan segir að maður hafi eitt sinn hrapað til bana af hamrabrúninni. Síðan þá segist fólk heyra rödd hans blandast drununum í fossinum – stundum varar hún við, stundum grætur hún.

Í alvöru? Jafnvel þótt þú trúir ekki á drauga er eitthvað við Glym sem virðist... lifandi. Loftið er öðruvísi þarna uppi. Hlaðið. Þrungið sögum.

Íslensk tröll í þjóðsögum

Ekki vekja tröllið: Botnsdalur

Þekkir þú það hvernig sumir staðir virðast fela eitthvað? Botnsdalur er einn þeirra. Þessi gróðursæli dalur, beint fyrir neðan Glym, er eins og póstkort en undarlega hljóðlátur.

Samkvæmt sögunni bjó þar eitt sinn tröllskessa. Hún laumaðist út á nóttunni til að drekka úr ánni og stela fé frá bæjunum í kring. Fólk segist hafa séð hana bera við tunglsljósið, risavaxna og hokna, með augu sem glóðu eins og eldur.

Að morgni var hún horfin. Eins og tröllum er tamt.

Enn í dag nefna göngumenn stundum undarleg hljóð í dalnum í ljósaskiptunum – lágt urr eða þung fótatök sem virðast fylgja þeim og hverfa svo. Tilviljun? Kannski. Eða kannski sefur hún bara.

Huldufólk og álfar í íslenskum þjóðsögum

Huldufólkið á Hvítanesi: ekki móðga nágrannana

Íslendingar taka álfa alvarlega. Ekki í gríni – heldur í alvöru. Framkvæmdir hafa verið stöðvaðar, vegum breytt og vinnuvélar bilað á dularfullan hátt, allt vegna þess að einhver gleymdi að kanna hvort huldufólkið væri sátt.

Hvítanes er einn slíkra staða. Hvassir klettar, víð strandlengja og þögn sem suðar í eyrunum.

Sagt er að þar búi samfélag huldufólks. Það býr inni í klettunum og ef því er raskað lætur það vita af sér. Vélar hætta að virka. Verkfæri hverfa. Verkamenn veikjast.

Viltu heimsækja staðinn? Sýndu virðingu. Skildu jafnvel eftir smá gjöf – svona til öryggis.

Norn og galdrar á Íslandi

Galdrar og hrafnakonan á Þórisstöðum

Við fjörðinn, í skjóli nálægt Þórisstöðum, er gömul saga af galdrakonu. Hún bjó ein, eins og flestar konur sem sakaðar voru um galdra, í torfbæ umkringd jurtum og hröfnum.

Fólk hvíslaði að hún gæti læknað sjúka og bölvað þeim grimmu. Eina óveðursnótt breytti hún sér í hrafn og flaug yfir fjöllin til að komast undan. Sumir segja að hún hafi aldrei snúið aftur. Aðrir telja að hún fylgist enn með, fiðruð og þögul, úr klettunum.

Svæðið virðist gegnsýrt af fornum krafti. Jafnvel loftið ilmar eldra þar. Jarðbundnara. Ef þú ferð þangað skaltu ekki bara taka myndir. Líttu í kringum þig. Fylgstu með fuglunum. Sérstaklega þeim svörtu.

Selir í íslenskum þjóðsögum

Selkonur og sjávarástir: hamskiptin á Kambsnesi

Selkonur fá ekki jafn mikla athygli og tröll eða álfar, en þær eru meðal áleitnustu persóna íslenskra þjóðsagna. Þær eru hamskiptingar sem lifa sem selir í sjónum en geta kastað hamnum og gengið á landi sem manneskjur.

Ein saga af ströndinni við Kambsnes segir frá sjómanni sem fann selsham í fjörunni. Hann faldi haminn og sá svo fagra konu stíga upp úr öldunum í leit að honum. Hann tók hana heim, kvæntist henni og þau eignuðust börn. En hún var alltaf... fjarlæg.

Mörgum árum síðar fann hún haminn falinn undir gólffjölunum. Hún fór í hann, kyssti börnin sín bless og sneri aftur til sjávar.

Það er auðvelt að sjá rómantík í sögunni þar til þú stendur í þessari einmanalegu fjöru með öldurnar brotna við fæturna. Þá er hún bara sorgleg. Og undarlega raunveruleg.

Álfasteinn á Íslandi í þjóðsögum

Einbúinn í Steðja: hulinn verndari

Rétt við veg 47, nálægt ströndinni, kemur þú auga á hann: sérkennilegan klett í laginu eins og steðja, sem kallast Steðji eða Staupasteinn.

Sagt er að einbúi, einn af huldufólkinu sem byggir Hvalfjörð, búi í steininum. Sumir segja að hann heiti Staupa-Steinn, eins og eitt af nöfnum klettsins. Álfar og huldufólk búa yfirleitt í hópum eða jafnvel heilu borgunum og sögur af einbúum sem þessum eru frekar fátíðar.

Sagt er að þessi einbúi elski gesti, sérstaklega börn að leik í kringum heimili hans – en farðu varlega. Til eru ótal sögur af álfum og huldufólki sem hefna sín á mönnum sem vanvirða heimili þeirra með hávaða, mengun eða kæruleysi. Kletturinn er auk þess friðlýst náttúruvætti, svo það má hvorki klifra á honum né raska honum eða svæðinu í kring, jafnvel þótt þú trúir ekki þjóðsögunum.

Einbúinn í Steðja er svo þekktur að þegar Hvalfjarðargöngin voru formlega opnuð var hann beðinn (í gegnum miðil, að sjálfsögðu) um að gerast verndari ganganna. Samkvæmt miðlinum var einbúinn mjög upp með sér og samþykkti það.

Endaðu ævintýraferðina í Sjóböðunum í Hvammsvík

Eftir ferðalag um sögur og forna staði í Hvalfirði átt þú skilið hvíld. Sjóböðin í Hvammsvík eru í flæðarmálinu. Útsýnið er stórfenglegt og loftið ilmar af sjó og steini. Ef heppnin er með þér gætir þú jafnvel séð sel eða tvo fylgjast með þér úr víkinni.

Það er ekkert betra en að liggja í heitu vatni og horfa yfir sama landslag og veitti þessum sögum innblástur.

Af hverju skiptir þetta máli?

Þú veltir kannski fyrir þér: Af hverju ætti þetta að skipta máli? Af hverju að hugsa um sögur sem spunnar voru fyrir öldum?

Sögur gefa okkur rætur. Á Íslandi eru þjóðsögur ekki eitthvað sem maður les bara um í bók; þær hafa gengið frá foreldrum til barna í aldir og eru líka hluti af landslaginu. Þær móta hvernig fólk byggir hús, hvernig það gengur um landið og hvernig það talar um þögnina.

Þegar þú heimsækir Hvalfjörð skaltu því ekki bara aka í gegn. Staldraðu við. Gakktu að Glym og hlustaðu. Komdu við hjá Steðja og sestu hjá honum. Gakktu um kyrrlátar fjörurnar á Kambsnesi og ímyndaðu þér hvað gæti hafa komið úr sjónum.

Hleyptu sögunum að. Þær hafa beðið.