11.11: 30% afsláttur, aðeins í dag

Besti tíminn til að ferðast til Íslands

Þú ert að hugsa um að fara til Íslands. Þú hefur séð myndir af svörtum sandströndum, norðurljósum og endalausum fossum og dreymir um að slaka á í heitri laug við Norður-Atlantshafið. Þú ert tilbúin(n) að kaupa miðann og leggja af stað.

En svo kemur spurningin: Hvenær er best að fara?

Einföld spurning. Samt hefur þú líklega fengið tuttugu ólík svör ef þú hefur leitað eitthvað á netinu. „Komdu að sumri fyrir miðnætursólina!“ „Nei, veturinn er bestur – norðurljós, auðvitað!“ „Reyndar er september vanmetinn,“ segir eina bloggið með öllum drungalegu haustmyndunum.

Júlí og ágúst eru bestu mánuðirnir fyrir þá sem koma til Íslands í fyrsta sinn. Þá er veðrið stöðugast, vegirnir alltaf opnir og allir helstu ferðamannastaðir og þjónusta opin.

Það er stutta útgáfan.

En þetta er mjög almennt svar. Hver árstíð á Íslandi hefur sitt fram að færa og hver þeirra býður upp á upplifanir sem ekki finnast á öðrum tímum ársins.

Sumar: árstíð miðnætursólarinnar (júní–ágúst)

Söguleg heit laug á Íslandi nálægt Reykjavík

Ef þú vilt dagsbirtu – allt að sólarhring – er íslenska sumarið þinn tími.

Júlí og ágúst eru háannatími af ástæðu. Hitinn er um 10–15°C, hálendið opnast og landslagið verður svo skærgrænt að það virðist nánast óraunverulegt.

Þú kemst á staði eins og Landmannalaugar og aðrar perlur hálendisins sem eru lokaðar á veturna. Vegur F26? Aðeins fær á sumrin. Gönguleiðir í Þórsmörk? Þú þarft þurrar aðstæður. Þú skilur hvað við meinum.

Hápunktar:

  • Nánast sólarhringsbirta (já, í alvöru – það er skrýtið fyrst)
  • Allir F-vegir (malarvegirnir á hálendinu) eru opnir
  • Hvalaskoðun? Háannatími.
  • Lundar? Líka háannatími.
  • Allar ferðir sem hugsast getur eru í boði

En – og það er alltaf eitthvert en – þetta er ekki beint ódýrt. Flug, hótel, húsbílar, bílaleigubílar… allt hækkar. Mannfjöldinn? Já, hann eykst líka. En það er ástæða fyrir því: Ísland að sumri er stórfenglegt, aðgengilegt og (tiltölulega) hlýtt.

Taktu samt með þér föt til að klæða þig í lögum. Það verður ekki heitt á Íslandi, en þú gætir lent á dögum eða viku þar sem hitinn fer upp í 24 gráður.

Haust: hinn gullni meðalvegur (september–október)

Sjóböð við hafið nálægt Gullna hringnum og Reykjavík í miðnætursól

Haustið á Íslandi gæti verið einn vanmetnasti ferðatími Evrópu. Það er ljúft millibil milli sumarloka og upphafs vetrar. Það er líka helsti tíminn til að tína úr náttúrunni. Þú getur tínt sveppi og farið í berjamó á Íslandi fram að fyrsta næturfrostinu – sem kemur yfirleitt í lok október.

September er sérstaklega yndislegur. Dagsbirtan er drjúg (12–14 klukkustundir), ferðamönnum fækkar og verð gæti lækkað. Þá hefst líka norðurljósatímabilið – þú færð að sjá þau og njóta síðustu sumarblíðunnar.

Í október fer að kólna og dimma, en haustlitirnir?

Hugsaðu þér gulan mosa, ryðrauða lyngmóa og gyllt tré sem þú áttir ekki von á svona norðarlega.

Hápunktar:

  • Norðurljósin snúa aftur (frá lokum ágúst)
  • Færri ferðamenn, lægra verð
  • Haustbirtan = draumur ljósmyndarans
  • Yfirleitt auðvelt að aka hringveginn

Haustveðrið getur verið óútreiknanlegt. Í dag gæti verið svalt og heiðskírt; á morgun slagveður. Ef þú sættir þig við smá óvissu er þetta frábær tími til að ferðast.

Vertu sveigjanleg(ur) og hafðu plan A, og svo B, C og D.

Vetur: myrkur og norðurljós (nóvember–mars)

Ferðalag um Ísland að vetri

Þetta er árstíðin sem fælir suma frá en laðar aðra að. Það er kalt, en ekki svo kalt. Vetrarhitinn í Reykjavík er um -1 til 4°C. En vindkælingin? Hún kennir þér auðmýkt.

Desember og janúar eru dimmustu mánuðirnir. Dagsbirtan getur farið niður í 4–5 klukkustundir. En langar, kaldar nætur þýða norðurljós. Og satt að segja? Að sjá himininn lifna við í grænum, bleikum og fjólubláum borðum er hverrar frosinnar táar virði.

Hápunktar:

  • Besti norðurljósatíminn
  • Frosnir fossar og íshellar
  • Ódýrari flug og gisting
  • Snævi þakið landslag

Sum svæði úti á landi (eins og hálendisvegirnir) eru ekki fær nema með öflugum búnaði – eða alls ekki. Haltu þig við hringveginn en kannaðu færðina daglega. Íslenskt veður er ekkert grín.

Best er að hafa bækistöð í Reykjavík eða innan klukkustundar frá borginni og fara þaðan í styttri ferðir eða skipulagðar ferðir.

Vetrarferðalög á Íslandi eru notaleg og nánast vel varðveitt leyndarmál. Ímyndaðu þér að sitja í heitri laug, gufan stígur upp í snjóugt loftið, alger þögn nema fjarlægt vindgnauðið og norðurljósin dansa yfir þér. Þannig vilja heimamenn helst njóta heitu lauganna.

Vor: uppáhaldsárstíð heimamanna (apríl–maí)

Vorið á Íslandi er svolítið eins og einhver sem vaknar eftir langan blund – hægfara, ringlaður og ekki alveg viss um hvaða árstíð er.

Apríl og maí eru millitímabil. Snjórinn fer að bráðna um allt land, fossarnir verða sem kraftmestir og dagarnir lengjast (allt að 18 klukkustundir í lok maí!). Ferðamenn eru enn fáir.

Þetta er uppáhaldsárstíð flestra Íslendinga, enda eru þá margir frídagar sem lengja helgarnar og gefa færi á stuttum ferðum um landið. Þú gætir lent á fallegum, lygnum sólardögum, en loftið er enn kalt. Vorið ber með sér loforð um sumar.

Hápunktar:

  • Frábært fyrir þá sem vilja spara
  • Lundinn snýr aftur í björgin í lok apríl
  • Vorleysingar = kraftmiklir fossar
  • Norðurljós fram í miðjan apríl

Ekki búast við að allt sé orðið grænt á þessum árstíma. Snemma vors er landið enn í brúnum og gráum tónum. Það er fallegt á sinn hrjúfa, tunglkennda hátt.

Hálendið er lokað fram í miðjan eða lok júní. Ef þig dreymir um staði eins og Öskju eða Hveravelli skaltu bíða sumarsins.

Hvaða árstíð hentar þér best?

„Besti“ tíminn til að heimsækja Ísland fer í raun eftir því hvað þú leitar að.

Hér er samantekt:

  • Í fyrsta sinn: Júlí eða ágúst. Auðveldasti og öruggasti kosturinn.
  • Norðurljósin: Nóvember til mars.
  • Ljósmyndun: September eða mars fyrir gullnu stundirnar og norðurljósin.
  • Ísland á hagstæðu verði: Apríl, maí eða seint í september – lægra verð og færri ferðamenn.
  • Göngur og ferðir um hálendið: Sumarið, þegar allt er opið.
  • Gullni hringurinn er opinn allt árið

Fleira sem gott er að hafa í huga

Hér eru nokkur atriði sem gott er að hafa í huga á ferðalagi um Ísland, sama hver árstíðin er.

  • Dagsbirtan skiptir máli. Á sumrin er erfitt að vita hvenær á að sofa. Á veturna þarftu að skipuleggja daginn vel til að nýta fáar dýrmætar sólarstundir. Ef þú ætlar frá Reykjavík meðfram suðurströndinni skaltu leggja snemma af stað og tímasetja ferðina þannig að þú sért komin(n) lengst þegar sólin kemur upp.
  • Aðstæður breytast. Vegakerfið á Íslandi er gott – en móðir náttúra getur komið á óvart. Hríðarbyljir og hvassviðri geta sett strik í reikninginn. Slæmar aðstæður vara þó yfirleitt ekki lengur en í mesta lagi sólarhring.
  • Hátíðalífið er raunverulegt. Frá útihátíðum á sumrin til Iceland Airwaves í nóvember – skemmtana- og tónlistarlífið á Íslandi er það besta í heimi miðað við höfðatölu. Ef þú vilt sjá næstu Björk eða Sigur Rós skaltu tímasetja ferðina í samræmi við það.
  • Dýralífið hefur sitt eigið dagatal. Lundinn er hér frá lokum apríl fram í miðjan ágúst. Hvalir eru flestir í júní og júlí en sjást allt árið. Göngur og réttir á haustin.

Þú getur ekki valið rangt

Það er enginn slæmur tími til að heimsækja Ísland.

Sumarið er sæla. Veturinn er úr öðrum heimi. Haustið er gullið, drungalegt og kyrrt. Vorið er hógværara og fullt af fyrirheitum.

Ísland er alltaf Ísland, allt árið. Með hrjúfa, óraunverulega fegurð.

Farðu í júlí ef þú vilt klassísku upplifunina.

Ef dagskráin leyfir eða sálin þráir eitthvað óvenjulegt bíður Ísland þín hvenær sem þú kemur.

Gott ráð áður en þú bókar:
Skoðaðu Vedur.is fyrir veðurspár, Road.is fyrir færð á vegum og vanmettu ekki gildi þess að klæða sig í lögum og hafa allt vatnshelt.