Sturta áður en farið er í laugarnar á Íslandi

Allar laugar á Íslandi eiga eitt sameiginlegt: Þú þarft að afklæðast, þvo þér með sápu, skola sápuna af, fara í sundfötin og fyrst þá máttu fara ofan í laugina.
Reglan gildir líka í heilsulindum, gufuböðum, lónum og almenningssundlaugum.
Af hverju þarf að fara í sturtu áður en farið er í laugarnar á Íslandi?
Í fyrsta lagi ættu gestir að sýna siðum og hefðum heimamanna virðingu.
En það er einföld skýring á reglunni. Hún er sú sama og liggur að baki því að þú ferð reglulega í sturtu – hreinlæti. Og tillitssemi við aðra.
1: Hreinlæti
Í íslenskum náttúrulaugum er enginn klór sem drepur sýkla. Þær byggja á stöðugu gegnumstreymi vatns, en eru líka tæmdar og þrifnar reglulega og fylgst er með hreinlætinu.
Þú lætur því ekki laugina sjá um persónulegt hreinlæti, heldur gerir það í sturtunni áður en þú ferð ofan í.
Þótt klór sé notaður í almenningssundlaugum er hann miklu minni en í sundlaugum víða erlendis.
2: Klór fer illa með húðina
Allt frá landnámi hafa heitar laugar verið notaðar til lækninga. Heitt vatn getur linað verki í líkamanum og þykir gott við ýmsum húðkvillum, ekki síst laugar þar sem sjór er notaður til að kæla jarðhitavatnið.
Steinefnin í jarðhitavatninu geta bætt suma húðkvilla, og auk þess gera laugarnar Íslendingum kleift að fá nauðsynlegt sólarljós á líkamann til að mynda D-vítamín.
Klór fer hins vegar illa með húðina. Hann þurrkar hana og hreinsar burt olíurnar sem verja hana náttúrulega gegn veðri og bakteríum. Hann getur valdið útbrotum og kláða.
Það sama gildir um hárið: klór fjarlægir náttúrulegar olíur hársins og gerir það þurrt og líflaust.
Ef laugarnar væru fylltar af klór myndi það vinna gegn góðum áhrifum jarðhitavatnsins á húðina.
3: Umhverfið
Hvert heldur þú að vatnið fari? Út í náttúruna, auðvitað. Ef vatnið í laugunum væri meira og minna klór væru það slæmar fréttir fyrir náttúruna.
Sérstaklega í náttúrulaugunum okkar í Hvammsvík. Laugarnar eru við fallega svarta sandfjöru og ein þeirra fer alveg á kaf á flóði. Við höldum því laugunum lausum við klór, enda færi hann beint út í sjó og dræpi hluta af því vistkerfi sem gestir okkar koma til að njóta úr laugunum.
4: Íslensk sundlaugamenning snýst um slökun og samveru
Íslendingar fara í laugarnar til að slaka á og hitta fólk. Ekki til að þrífa sig.
Fyrsta stefnumótið fer oft fram í heitum potti, vinahópar hittast á föstum tímum en flestir fara þangað bara til að spjalla við hvern sem er.
Hvorki náttúrulaugarnar né almenningssundlaugarnar eru því álitnar sameiginlegt baðkar. Til að þrífa þig notar þú sturturnar. Í laugina ferðu af allt öðrum ástæðum.
5: Aðrir vilja ekki baða sig í óhreinindunum þínum
Eins og fyrr segir vilja heimamenn ekki hella eitruðum klór í laugarnar og þær eru ekki álitnar þitt einkabaðkar. Ef þú brýtur þessa grundvallarreglu íslenskrar baðmenningar ertu því að bjóða öllum öðrum að baða sig í sýklunum og óhreinindunum sem þú hefðir átt að þvo af þér í sturtunni.
Ekki vera dónaleg(ur). Enginn vill liggja í óhreinu baðvatninu þínu. Dónaskapnum verður líklega svarað í sömu mynt af heimamönnum sem kunna ekki að meta skort á sameiginlegu hreinlæti. Þú gætir verið rekin(n) beint aftur í sturtuna. Þú ert því vöruð/varaður við.
Klæðnaður í íslenskum laugum
Þú þarft að vera í sundfötum. Ekki fara í gamlan bol og stuttbuxur. Og það er ekki liðið að fara í náttúrulaugar í óhreinum nærfötum. Það sama gildir um hrein nærföt.
Ef þér líður ekki vel með að sýna líkamann getur þú verið í sundfötum sem hylja meira en hefðbundin sundföt.
En til að ítreka lið 5 hér að ofan þykir óhreinlegt að vera í öðru en sundfötum. Það skiptir ekki máli þótt þú hafir þvegið og þurrkað joggingbuxurnar áður en þú komst.
Ef þér líður ekki vel með að fara nakin(n) í sturtu fyrir framan aðra eru einkasturtuklefar innifaldir í Classic- og Comfort-aðgangi í Sjóböðunum í Hvammsvík, auk sérstaks búningsklefa.
Það er heldur ekki liðið að baða sig nakin(n). Kannski ef þú finnur heita laug lengst úti í óbyggðum á göngu. En farðu varlega í villtum laugum: hitastigi þeirra er ekki stýrt og þú gætir brennt þig illa. Jafnvel laugar sem virðast volgar viðkomu geta verið með mjög heita bletti.
Algengar spurningar
Af hreinlætisástæðum. Í náttúrulaugunum er enginn klór og í almenningssundlaugunum er hann notaður í litlu magni.
Nei, þú verður að vera í sundfötum. Nema þú sért að dýfa þér í náttúrulega heita laug lengst úti í óbyggðum.
Náttúrulaugarnar á Íslandi eru yfirleitt grunnar. Þær eru notaðar til slökunar og samveru. Ef þú stendur upp nær vatnið líklega bara upp á fætur. Í Sjóböðunum í Hvammsvík getur þú hins vegar synt í Atlantshafinu á milli þess sem þú liggur í heitu laugunum.
Já, það eru sturtur og þú ættir að fara í góða sturtu með sápu áður en þú ferð í laugarnar. Á flestum stöðum er hægt að velja einkasturtuklefa og búningsklefa.
Í gegnum aldirnar hafa Íslendingar notað laugarnar til að meðhöndla húðkvilla. Steinefnaríkt vatnið getur verið gott við sumum húðkvillum þar sem það, eftir uppruna vatnsins, þurrkar ekki húðina.