Gönguferð á Þyril

Ein skemmtilegasta gönguleiðin nálægt Reykjavík liggur upp á Þyril, fallegt og sérkennilegt fjall innst í Hvalfirði. Gangan á Þyril er talin miðlungserfið þar sem leiðin upp er brött og grýtt á köflum. Hún er þó stutt og einstaklega gefandi því það tekur aðeins um klukkustund að komast á toppinn, þar sem stórkostlegt útsýni yfir Hvalfjörð og nágrenni tekur á móti þér.
Hvernig kemst ég að Þyrli?
Til að ganga á Þyril keyrir þú út úr Reykjavík og norður þjóðveg 1 í átt að Borgarnesi. Skömmu áður en komið er að Hvalfjarðargöngum er beygt til hægri inn á veg 47 sem liggur inn Hvalfjörð. Einnig má aka veg 36 frá Mosfellsbæ í átt að Þingvöllum og beygja til vinstri inn á veg 48 (Kjósarskarðsveg), sem er jafnframt besta og öruggasta leiðin í Hvalfjörð á hjóli. Þegar komið er inn á veg 47 (hvora leiðina sem þú velur) er ekið í átt að Botnsvogi. Upphaf gönguleiðarinnar er vel merkt skammt frá Brunná og hægt er að leggja bílum meðfram veginum.
Útsýni yfir söguna
Af toppi Þyrils horfir þú yfir sögusvið einnar af Íslendingasögunum – Harðar sögu og Hólmverja. Fóstbræðurnir Hörður og Geir enduðu sem útlagar í Geirshólma, hólma rétt undan Þyrilsnesi. Þeir fóru, ásamt fylgismönnum sínum, reglulega í ránsferðir um nærliggjandi sveitir. Bændur, sem voru orðnir langþreyttir á árásum þeirra, lokkuðu þá í land þar sem setið var fyrir þeim og þeir drepnir. Helga var kona Harðar. Henni tókst að komast undan ásamt tveimur ungum sonum sínum með því að synda í land frá Geirshólma og ganga yfir í Skorradal. Leiðin sem hún fór fram hjá Þyrli heitir síðan Helguskarð.