Miðnæturgolf á Íslandi: fimm bestu vellirnir þar sem sólin sest aldrei

Að slá með sjöjárni á miðnætti á meðan sólin glóir lágt við sjóndeildarhringinn hljómar eins og villtasti draumur. En það getur ræst. Á Íslandi er það engin óraunveruleg Instagram-fantasía. Það er bara sumar.
Frá lokum maí fram í byrjun ágúst fer sólin varla niður fyrir sjóndeildarhringinn. Við köllum það miðnætursól. Kylfingar kalla það tækifæri til að spila 18 holur á meðan mestur hluti heimsins sefur. Og fyrir ferðalanga – jafnvel þá sem eru hér bara í millilendingu – er þetta eitt það undarlegasta og fallegasta sem hægt er að gera.
Flýtileiðir:
Af hverju miðnæturgolf er yfirhöfuð mögulegt á Íslandi
Fimm bestu golfvellirnir á Íslandi fyrir miðnæturgolf
- Brautarholt – rökkurperla Reykjavíkur
- Golfklúbburinn Keilir – þar sem hraun mætir braut
- Golfklúbbur Akureyrar – norðan við það venjulega
- Golfvöllurinn í Vestmannaeyjum – golf innan um lunda
- Geysisvöllur – gufa, kyrrð og óraunverulegar brautir
Og svo… slökun í Sjóböðunum í Hvammsvík
Í stuttu máli: Miðnæturgolf á Íslandi er jafn villt og dásamlegt og það hljómar
Miðnæturgolf á Íslandi: spurningarnar sem ferðalangar spyrja
Af hverju miðnæturgolf er yfirhöfuð mögulegt á Íslandi
Ísland liggur rétt sunnan við heimskautsbaug. Það þýðir að mánuðina sitt hvorum megin við sumarsólstöður er bjart allan sólarhringinn.
Það er eins og náttúran hafi gefið landinu framlengdan gleðitíma… sem tekur aldrei enda.
Þetta snýst ekki bara um sólarljósið. Það er gullna móðan sem hangir í loftinu eins og hún sé föst í gullnu stundinni. Það er hljóðið af engu nema eigin sveiflu, lágt kall sjófuglanna og röddin í höfðinu sem segir: „Ég ætti ekki að vera vakandi, en ég er fegin(n) að ég er það“.
Og já, þetta er svolítið ávanabindandi.
Ef þú ert kylfingur á leið til Íslands, jafnvel bara í nokkra klukkutíma í millilendingu, eru hér fimm bestu vellirnir sem þú ættir að stefna á.
Fimm bestu golfvellirnir á Íslandi fyrir miðnæturgolf
1. Brautarholt – rökkurperla Reykjavíkur

Köllum hlutina bara réttum nöfnum: Brautarholt er andlit miðnæturgolfs á Íslandi.
Þessi 12 holu völlur stendur á sjávarbökkum um 30 mínútur frá miðbæ Reykjavíkur og er eitthvað alveg sérstakt. Þar er útsýni yfir Atlantshafið, hrjúfir hraunkambar og brautir sem dansa á milli hins hrjúfa og fágaða. Og þegar miðnætursólin skín á sjóinn í réttu horni? Það er eins og einhver hafi kveikt í himninum – mjúkum, gullnum eldi.
Skipulag vallarins er snjallt en ekki refsandi. Edwin Roald hannaði hann og Michael Kelly mótaði, og hann sameinar fegurð og spilanleika. Þú gengur af velli eins og atvinnumaður – bakgrunnurinn vinnur hálfa vinnuna.
Hvernig á að komast þangað: Á bílaleigubíl eða leigubíl frá Reykjavík.
Gott að vita: Þar er hægt að leigja kylfur, fá kaffi og bjór, og stemningin lætur þá sem ferðast einir líða eins og heimamönnum.
Gott ráð: Bókaðu rástíma í rökkrinu um kl. 22:30. Síðustu holurnar undir miðnætursólinni? Það er Íslandssagan þín.
2. Golfklúbburinn Keilir – þar sem hraun mætir braut
Keilir er það sem gerist þegar einhver byggir golfvöll á hraunbreiðu og leyfir grjótinu bara að ráða.
Keilir er í Hafnarfirði og hann er djarfur. Fyrri níu holurnar liggja um fornt hraun, dökkt og dramatískt. Seinni níu opnast í átt að sjónum, meira í strandvallarstíl, með öldóttum hæðum og sjávarútsýni. Það er eins og að spila tvo ólíka velli í einum hring.
Vindurinn getur verið vinur þinn eða óvinur. Eina stundina ýtir hann boltanum mátulega, þá næstu refsar hann þér fyrir fade-ið. En það er hluti af sjarmanum.
Hvernig á að komast þangað: Stuttur akstur frá Reykjavík í gegnum nágrannasveitarfélögin.
Gott að vita: Í klúbbhúsinu er notaleg stemning og alltaf hlýjar móttökur.
Gott ráð: Ekki flýta þér. Gakktu þennan völl. Þú vilt hafa tíma til að dást að hraunmyndununum á milli högga.
3. Golfklúbbur Akureyrar – norðan við það venjulega

Á Norðurlandi er Golfklúbbur Akureyrar – formlega nyrsti 18 holu völlur heims.
Að spila á Akureyri undir miðnætursólinni er eins og að stíga inn á aðra plánetu. Himinninn verður syfjulega lillablár og allt hægir á sér. Ef þú skipuleggur þig vel getur þú tímasett heimsóknina við Arctic Open, miðnætursólarmót sem dregur að kylfinga hvaðanæva úr heiminum.
Hvernig á að komast þangað: Þú getur flogið til Akureyrar frá Reykjavík á innan við klukkustund eða keyrt á 4–5 klukkustundum.
Gott að vita: Taktu með jakka ef vindurinn skyldi bera svalt loft ofan úr fjöllunum.
Gott ráð: Gistu á Akureyri. Fáðu þér bjór úr héraði, njóttu heitu pottanna og drekktu í þig afslappaða norðlenska stemninguna.
4. Golfvöllurinn í Vestmannaeyjum – golf innan um lunda
Golf á eldfjalli, með lunda sem áhorfendur.
Vestmannaeyjar eru skammt undan landi. Völlurinn er einn sá stórbrotnasti á landinu. Brautirnar hlykkjast um eldgíga og há björg, með sjávarútsýni sem er eins og skjáhvíla.
Það er ekki auðveldast að komast þangað, en satt að segja? Það er hluti af ævintýrinu. Þú kemur fyrir golfið, staldrar við fyrir sjófuglana og ferð með símann fullan af sólarlagsmyndum.
Hvernig á að komast þangað: Taktu Herjólf frá Landeyjahöfn (2 klukkustunda akstur frá Reykjavík) eða stutt flug frá borginni.
Gott að vita: Þetta er að minnsta kosti heils dags ferð. Íhugaðu að gista til að njóta hennar almennilega.
Gott ráð: Hafðu augun opin fyrir lundum – sérstaklega í júní og júlí, þegar þeir eru alls staðar. Bara ekki hitta einn með upphafshögginu. (Í alvöru.)
5. Geysisvöllur – gufa, kyrrð og óraunverulegar brautir
Í hjarta hins fræga Gullna hrings er Geysisvöllur.
Þessi 9 holu völlur liggur innan um gufuaugu og rjúkandi jörð. Hann er kyrrlátur, friðsæll og undarlega dulrænn. Eins og að spila golf í ævintýri.
Hann er ekki langur og ekki fínn; hann er ógleymanlegur.
Hvernig á að komast þangað: Auðvelt stopp á ferð um Gullna hringinn. Fylgdu bara skiltunum að Geysi og leitaðu að klúbbhúsinu.
Gott að vita: Passaðu hvar þú stígur – hlutar vallarins eru á jarðhitasvæði, svo jörðin er heit undir fótum. Já, í alvöru.
Gott ráð: Tímasettu leikinn áður en eða eftir að rúturnar hverfa (snemma morguns eða seint að kvöldi). Þá hefur þú staðinn nánast út af fyrir þig.
Og svo… slökun í Sjóböðunum í Hvammsvík

Við skulum vera hreinskilin – eftir að hafa gengið 18 holur undir miðnætursólinni fer jafnvel harðasti kylfingur að dreyma um eitt: heitt bað. Og ekki hvaða bað sem er. Við erum að tala um náttúrulaugar, gufu sem stígur upp í gullna birtuna og Atlantshafið sem gjálfrar rétt handan við tærnar.
Það er Hvammsvík.
Á strönd Hvalfjarðar, aðeins 45 mínútur frá Reykjavík og 25 mínútur frá Brautarholti, eru Sjóböðin í Hvammsvík engin venjuleg heilsulind. Þau eru að hluta jarðhitaundur, að hluta athvarf við hafið og 100% hönnuð til að aftengja sig. Laugarnar eru misheitar og liggja niður að sjávarmáli – sumar svo nálægt sjónum að þú heyrir sjávarföllin anda. Satt að segja eru fáir staðir á Íslandi þar sem náttúruöflin koma svona fallega saman.
Viltu gista? Það er svo sannarlega hægt. Í Hvammsvík er líka gisting í hönnunarstíl – allt frá heillandi húsum til minni skála, öll með blöndu af sveitalegri íslenskri naumhyggju og hlýrri gestrisni. Þar er kyrrlátt, persónulegt og umvafið náttúru. Að vakna við þetta útsýni er nánast nóg til að sleppa fluginu heim.
Gott ráð: Bókaðu tíma í Sjóböðin og gistingu fyrir fram, sérstaklega í júní og júlí – staðurinn er líka vinsæll hjá heimamönnum. Og taktu með handklæði eða leigðu það á staðnum; já, svona smáatriði skipta máli.
Í stuttu máli: Miðnæturgolf á Íslandi er jafn villt og dásamlegt og það hljómar
Miðnæturgolf á Íslandi er engin brella – það er heilsteypt sumarupplifun sem þú gleymir aldrei. Frá lokum maí fram í byrjun ágúst sest sólin varla og golfvellir um allt land opna brautirnar fyrir rökkurdreymendum og ævintýragjörnum ferðalöngum. Hvort sem þú ert hér í heila viku eða bara í langri millilendingu getur þú kreist inn golfhring á tíma þegar flestir eru að bursta tennurnar og fara í háttinn.
Brautarholt, aðeins 30 mínútur frá Reykjavík, er í efsta sæti með sjávarbökkum sínum, naumhyggjulegri hönnun og óraunverulegu útsýni á miðnætti. Keilir fléttar hraunið inn í leikinn örfáar mínútur frá flugvellinum, á meðan Akureyri býður upp á að spila nyrsta 18 holu völl heims. Í Vestmannaeyjum sérðu lunda í miðjum hring og á Geysisvelli sveiflar þú járnunum rétt hjá gjósandi hverum. Í alvöru – hvar annars staðar er það hægt?
Og þegar hringnum er lokið? Þá getur þú farið beint í Sjóböðin í Hvammsvík og slakað á í náttúrulegum laugum við sjóinn. Það er endir sem fær þig til að staldra við, anda djúpt og finna hversu heppin(n) þú ert að hafa lent hér – jafnvel þótt það væri bara í eina nótt.
Kylfingar, ferðalangar og jafnvel bara forvitnir: miðnæturgolfið á Íslandi er opið öllum. Komdu fyrir nýjungina. Staldraðu við fyrir kyrrðina. Og ekki gleyma peysunni – það gæti verið júlí, en Ísland heldur þér alltaf á tánum.
Miðnæturgolf á Íslandi: spurningarnar sem ferðalangar spyrja
- Er virkilega hægt að spila golf á miðnætti á Íslandi á sumrin? Já, það er hægt! Vegna sólarhringsbirtunnar í júní og júlí er vel hægt – og afar vinsælt – að spila heila hringi um miðja nótt.
- Þarf ég að bóka rástíma fyrir miðnæturgolf fyrir fram? Já, sérstaklega um hásumar. Vellir eins og Brautarholt og Keilir fyllast hratt – það er skynsamlegt að bóka á netinu fyrir fram ef þú vilt fá þessa sjaldgæfu síðkvöldstíma.
- Get ég leigt kylfur á Íslandi ef ég tek ekki mínar með? Svo sannarlega. Flestir golfvellir á Íslandi leigja út kylfur. Búnaðurinn er yfirleitt nýlegur og vel við haldið – pantaðu fyrir fram.
- Hvaða miðnæturgolfvellir eru næst Reykjavík? Brautarholt er aðeins 30 mínútur frá Reykjavík. Hann er fullkominn fyrir stuttar heimsóknir eða jafnvel ævintýri í millilendingu.
- Hvernig er veðrið fyrir miðnæturgolf á Íslandi? Svalara en um miðjan dag, yfirleitt 7–12°C. Búast má við golu, svo pakkaðu hlýju lagi – aðstæður geta breyst hratt, jafnvel undir miðnætursólinni.
- Þarf sérstaka lýsingu til að spila golf á nóttunni á Íslandi? Engin aukalýsing nauðsynleg! Miðnætursólin veitir næga náttúrulega birtu til að sjá höggin, boltann og stórbrotið landslagið í kring.
- Er miðnæturgolf á Íslandi bara fyrir reynda kylfinga? Alls ekki. Golfmenningin á Íslandi er opin og afslöppuð. Vellirnir setja upplifunina í forgang – fallegt útsýni, afslappaða stemningu og langa birtu.
- Hvað fleira get ég gert eftir miðnæturgolf á Íslandi? Þú getur slakað á í heitum laugum í nágrenninu eins og í Hvammsvík, fengið þér síðbúinn kvöldverð í Reykjavík eða jafnvel séð sólarupprásina án þess að fara nokkurn tímann að sofa. Langa birtan lætur síðkvöldsáætlanir virðast takmarkalausar.
- Eru dýr á íslenskum golfvöllum? Þú gætir séð sjófugla, einstaka tófu eða lunda nálægt strandvöllum. Engar áhyggjur – þau eru hluti af sjarmanum og trufla sjaldan leikinn.
- Hvenær ársins er best að spila miðnæturgolf á Íslandi? Besti tíminn er frá miðjum júní fram í miðjan júlí, í kringum sumarsólstöður. Þá dofnar birtan aldrei og síðkvöldsrástímar verða hreint óraunverulegir.