Hvammsvík – staður í sögunni

Hvammsvíkur er getið í Landnámabók, sem þýðir að á jörðinni hefur verið mannabústaður í yfir 1000 ár.
Landnámsmenn og deilur þeirra
Fyrsti landnámsmaðurinn á jörðinni var Þórir, einnig kallaður „Hvamm-Þórir“, og bær hans hét Hvammur. Hann átti í frægum deilum við annan landnámsmann sem bjó í grenndinni og hét Refur. Deilan snerist um gamla kú sem hét Brynja. Kýrin hvarf og var týnd mjög lengi. Hún fannst loks í dal skammt frá sem nú heitir Brynjudalur. Dalurinn var í landi Refs. Með kúnni fundust 40 naut, öll afkvæmi hennar. Kýrin og nautin höfðu lifað þar villt allan tímann. Kýrin var auðvitað eign Þóris, en nautin, sagði Refur, voru hans. Þórir var því að sjálfsögðu ósammála, enda voru þau afkvæmi kýrinnar hans. Mennirnir fóru með lið sitt hvor gegn öðrum. Bardaginn barst eftir hólunum sem nú heita Þórishólar, þar sem Þórir og menn hans létu lífið – allt vegna týndrar kýr og nauta hennar.
Byggð hélst í Hvammi þrátt fyrir fall Þóris. Sonar hans, Orms, er getið í annarri Íslendingasögu, Harðar sögu og Hólmverja. Hann var þá goðorðsmaður í héraðinu og jörð hans með þeim stærstu á svæðinu.
Í yngri sögu, Sturlungu, er getið Jörundar hins mikla úr Hvammi, sem einnig var höfðingi í héraðinu og leiddi menn í Bæjarbardaga árið 1237. Af sögunum má ráða að Hvammur var með stærstu jörðum héraðsins.
Áður helgistaður
Elstu heimildir um kirkju í landi Hvammsvíkur eru frá 1367. Kirkjan var helguð heilögum Lúkasi og átti töluverðar eignir. Hún var aðeins „hálfkirkja“, sem þýðir að messað var annan hvern sunnudag þar sem enginn prestur sat á staðnum. Heimildir frá 1705 segja að hún hafi þá enn verið hálfkirkja, en kirkjan var aflögð árið 1765.
Lifað af landinu
Búseta í Hvammi og Hvammsvík frá landnámi hafði sína kosti en líka galla. Fólkið á jörðinni nýtti æðardún og veiddi sel, safnaði skelfiski og sölvum (rauðbrúnum þara) til matar og veiddi fisk úr sjónum. Það notaði einnig mó, þurrkaðan þara og rekavið úr landi jarðarinnar til eldiviðar. Hvammsvík þótti líka afbragðs lendingarstaður fyrir báta en erfið til búskapar vegna þúfna í túnum og brattra og grýttra hlíða fyrir ofan. Hvammsvík var auk þess mjög berskjölduð fyrir aftakaveðrum sem sögð voru koma hvern vetur. Þá var erfitt að halda fé á jörðinni þar sem það var í hættu vegna sjávarfalla.
Nýrri saga
Þrátt fyrir erfiðleika var búið í Hvammi og Hvammsvík fram á áttunda áratug síðustu aldar. Lítið er vitað um hvar gömlu bæjarhúsin stóðu, þótt vísbendingar séu um staðsetningu sumra þeirra. Húsin sem enn standa á jörðinni og hafa nú verið endurgerð voru byggð á fjórða áratugnum. Þýfð túnin voru sléttuð í byrjun 20. aldar til að auðvelda búskapinn, en breski herinn eyðilagði stóran hluta þeirra í stríðinu. Eftir það voru þau sléttuð á ný og stækkuð í þá sléttu velli sem sjá má í dag.