Hvalfjörður og seinni heimsstyrjöldin

Herir bandamanna, Breta og Bandaríkjamanna, komu sér upp bækistöðvum á Íslandi í seinni heimsstyrjöldinni.
Þeir byggðu til dæmis flugvelli í Reykjavík og á Reykjanesi, og ekki ólíklegt að þú hafir lent á öðrum þeirra á leið til landsins. Bandamenn notuðu bækistöðvar sínar á Íslandi til að verjast þýskum herskipum og kafbátum og vernda siglingaleiðir sínar á Norðaustur-Atlantshafi.
Skammt frá Reykjavík komu þeir sér upp bækistöðvum í Hvalfirði þar sem skipaflotar þeirra, bæði herskip og kaupskip, höfðu viðkomu og söfnuðu liði fyrir ferðir sínar.
Stórir flotar lágu oft við akkeri rétt fyrir utan Hvammsvík, þar á meðal nokkur af stærstu herskipum heims.
Á Hvítanesi, þar sem er ein fallegasta strandgönguleiðin í Hvalfirði, reisti breski herinn flotastöð til að verja fjörðinn og flotana sem þar lágu.
Í stöðinni voru birgðageymslur, verkstæði, íbúðarskálar, sjúkrahús og allt sem þurfti til að þjónusta flotann, auk kvikmyndahúss, verslunar, matsölu og tómstundaheimilis. Norðanmegin í firðinum reisti bandaríski herinn stóra olíustöð sem sá til þess að skipin sem komu við í Hvalfirði hefðu næga olíu fyrir ferðir sínar.
Bandaríski herinn kemur í Hvammsvík
Í Hvammsvík reisti bandaríski herinn geymslu fyrir skotfæri og djúpsprengjur, ásamt tómstundaheimili fyrir sjóliða bandaríska flotans.
Annað tómstundaheimili var reist á Hvammshöfða – höfðanum sem blasir við þegar þú slakar á í Sjóböðunum í Hvammsvík.
Á Hvammshól, sem gnæfir yfir allri Hvammsvík, bjó hafnarstjóri Hvalfjarðar, breskur sjóliðsforingi. Þaðan stýrðu hann og menn hans komum og brottförum allra skipa í firðinum. Húsið, Hólahúsið, stendur enn og er eitt af þeim gistihúsum sem í boði eru í Hvammsvík.
Eftir því sem leið á stríðið og bandamenn náðu yfirhöndinni gegn þýska kafbátaflotanum komu færri og færri skip í Hvalfjörð.
Breski flotinn hélt bækistöð sinni á Hvítanesi þar til stríðinu lauk. Þegar herirnir hurfu af svæðinu stóðu bækistöðvarnar auðar eftir.
Íslenska ríkið keypti eða tók yfir mestallan búnað þeirra, annan en vopn, sem greiðslu fyrir landspjöll á hernámsárunum.
Hvammsvík varð aftur að bújörð og landið var lagfært, en enn má sjá töluvert af minjum frá stuttu hlutverki hennar í sögu seinni heimsstyrjaldarinnar.

Ef þú vilt fræðast meira um sögu seinni heimsstyrjaldarinnar í Hvalfirði mælum við með heimsókn á Hernámssetrið norðanmegin í firðinum. Það er frábær viðkomustaður í stuttri dagsferð frá Reykjavík og að sjálfsögðu er tilvalið að enda daginn í slökun í Sjóböðunum í Hvammsvík.
Aukamoli: Ef þú gengur eftir einhverri af fjörum Hvalfjarðar gætir þú fundið þínar eigin stríðsminjar, til dæmis brot úr postulíni af skipum sem leituðu skjóls í firðinum í stríðinu.