11.11: 30% afsláttur, aðeins í dag

Akstur frá Reykjavík í Hvammsvík

Einfaldasta leiðin frá Reykjavík í Sjóböðin og gistinguna í Hvammsvík er þjóðvegur 1 (hringvegurinn sem liggur um allt landið). Þegar komið er fram hjá Mosfellsbæ er stutt að rótum Esjunnar. Fjallið er í miklu uppáhaldi hjá Reykvíkingum, enda horfa þeir á það úr fjarska á hverjum degi.

Esjan

Ef þig langar í göngu er Esjan frábær kostur. Þar er stórt bílastæði og mikið af upplýsingum á skiltum áður en lagt er af stað upp fjallið. Hægt er að velja á milli nokkurra leiða sem eru misjafnlega erfiðar. Mörgum þykir leiðin frá Mógilsá upp á Þverfellshorn sú besta. Gættu þess að vera í góðum skóm, klæða þig í lögum og taka með tóma vatnsflösku. Þú fyllir á hana í einum af tærum lækjunum á leiðinni. Eftir hressandi göngu er kominn tími til að heimsækja Hvalfjörð. Haltu áfram norður og beygðu inn á veg 47, Hvalfjarðarveg. Beygjan er rétt áður en komið er að göngunum, svo ef þú ert kominn að göngunum hefur þú farið of langt.

Hvalfjörður

Þótt hringtorgin í Mosfellsbæ séu yfirleitt umferðarþung finnur þú um leið og þú beygir inn á veg 47 að þú fjarlægist mannmergðina. Helsta ástæðan eru Hvalfjarðargöng, sem flytja ferðalanga beint yfir á hinn bóginn fjarðarins. Flestir sleppa því fallegu leiðinni um veg 47. Hér ríkir kyrrð. Útsýnið er stórfenglegt og áhugaverðir staðir á leiðinni. Helsta aðdráttaraflið í Hvalfirði eru án efa Sjóböðin og gistingin í Hvammsvík. Þessi fallegi staður er ómissandi fyrir alla sem ferðast norður frá Reykjavík.

Sjóböðin og gistingin í Hvammsvík

Hvammsvík er ein elsta landnámsjörð landsins og var bækistöð bandaríska hersins í seinni heimsstyrjöldinni, svo staðurinn er fullur af sögu. Umhverfið er stórbrotið: svartar sandstrendur, tignarleg fjöll og þúsundir fugla. Gestir geta notið þessa sögufræga staðar, sem býr yfir jarðhita og mögnuðu útsýni, í 8 ólíkum laugum. Þar er bar sem hægt er að synda að, gufubað og að sjálfsögðu sjórinn sjálfur. Eftir baðið bíður hin rómaða sjávarréttasúpa á veitingastaðnum Stormi Bistro, ásamt fleiri léttum réttum. Munið að bóka fyrir fram til að tryggja ykkur pláss í Sjóböðunum!

Viltu sjá meira af Hvalfirði?

Líklega hefur þú ekki fengið nóg af þessum einstaka firði. Af hverju ekki að halda áfram eftir heimsókn í Hvammsvík? Fossinn í Fossá er frábær viðkomustaður, sem og Hernámssetrið (The War and Peace Museum) við fjörðinn norðanverðan. Þar getur þú fræðst um veru herja bandamanna í Hvalfirði í seinni heimsstyrjöldinni.

Á leiðinni aftur til Reykjavíkur getur þú farið um göngin. Eftir þessa dagsferð ertu endurnærð(ur) eftir útiveru í náttúrunni, fróðleik um sögu Hvalfjarðar og góðan norrænan mat. Ekki er ólíklegt að þú sjáir fjölda fugla, kindur og jafnvel seli eða hvali.