
List og innblástur
Í Hvammsvík höfum við brennandi áhuga á list og hönnun og leggjum okkur fram um að gefa alls kyns list heimili, hvort sem er til frambúðar eða í stuttan tíma á sýningu eða viðburði.
Við uppbyggingu Sjóbaðanna í Hvammsvík höfum við líka haft þau forréttindi að vinna með frábærum hönnuðum, skapandi fólki og listamönnum, hverju á sínu sviði. Aðkoma þeirra hefur lyft verkefninu upp á annað stig. Við gætum ekki verið ánægðari!

Shoplifter x Hvammsvík
Shoplifter hefur skapað sérsniðið listaverk fyrir barinn okkar. Verkið er innblásið af og unnið úr efni sem tengist hafinu og sjávarútvegsmenningu íslensku strandarinnar.
Shoplifter / Hrafnhildur Arnardóttir er einn fremsti samtímalistamaður Íslands og var fulltrúi Íslands á Feneyjatvíæringnum árið 2019.

Bjarni Viðar x Hvammsvík
Bjarni Viðar Sigurðsson hefur hannað sérsmíðað keramik fyrir barinn og bistróið í Sjóböðunum í Hvammsvík.
Bjarni er þekktur fyrir að sækja innblástur í íslenskt landslag. Í verkin sem hann gerði fyrir okkur fléttaði hann hluta af landinu sjálfu, með því að blanda sandi úr svörtum fjörum Hvammsvíkur í glerunginn. Hver gripur er einstakur og ó svo fallegur.

Helga Lilja x Hvammsvík
Í baði með stíl
Engar áhyggjur ef þú gleymdir sundfötunum – við redduðum því!
Við fengum íslenska fatahönnuðinn Helgu Lilju til liðs við okkur til að hanna fallegustu sundföt sem völ er á fyrir Hvammsvík.

Nordic Angan x Hvammsvík
Nærðu skilningarvitin
Nordic Angan – ilmkjarnaolíueimingarhús sem skapar ilm úr villtri íslenskri flóru – hjálpaði okkur að fanga ilm Hvammsvíkur. Með því að fanga kjarna jurtanna sem vaxa á staðnum varð einkennisilmur Hvammsvíkur til, og hann er í nærandi hár- og líkamssápunni í Sjóböðunum í Hvammsvík.
Ef þú vilt taka smá Hvammsvík með þér heim getur þú keypt herbergisilm með einkennisilminum okkar, ásamt handgerðri nærandi sápu fyrir hár og líkama. Ilmurinn flytur þig beint aftur í upplifunina í Hvammsvík.
Vörurnar eru vandlega handgerðar á Íslandi í litlum skömmtum með hefðbundnum aðferðum til að tryggja ferskleika. Hráefni eru sótt í nærumhverfið þar sem því verður við komið og umbúðum haldið í lágmarki til að draga úr umhverfisáhrifum.

Studio miklo x Hvammsvík
Studio miklo skapaði fallegan ljósaskúlptúr fyrir Hvammsvík. Liturinn og formið sækja innblástur í náttúruna á svæðinu og í sérsmíðaða ljósinu er steinn úr fjörunni í Hvammsvík.
Studio miklo er hönnunarteymi sem Helga Björk Ottósdóttir og Hjördís Gestsdóttir stofnuðu árið 2020. Verk þeirra liggja á mörkum keramikskúlptúra, textíls og innanhússhönnunar.