Skip to main content

Hvammsvík – Hot Springs

Hólahúsið

Hólahúsiði er einstök eign með mögnuðu útsýni í allar áttir, yfir Hvalfjörðinn og umlykjandi fjallgarða. Við húsið leynist heit náttúrulaug til einkanota þar sem hægt er að láta líða úr sér í ómótstæðilegu umhverfi. Þótt hún sért aðeins í 45 mínútna fjarlægð frá borginni er staðsetningin sannarlega afvikin. Þú getur notið náttúrunnar með göngu um svæðið eða einfaldlega með því að horfa út um gluggann. 

Hólahúsið var upphaflega byggt af breska sjóhernum í síðari heimsstyrjöld sem fjarskiptamiðstöð en hefur nú verið gert upp. Öllum nútímaþægindum hefur verið komið fyrir í húsinu en okkur þótti einnig mikilvægt að varðveita sögu þess og ber útlitið þess merki. Lokaniðurstaðan var stíll sem er nútímalegur en sveitalegur í senn, þar sem uppruni hússins mætir nýtískuhönnun. Íslensk myndlist, hönnun og náttúra mynda þar skemmtilega heild. Vönduð hönnunarhúsgögn og verk eftir nokkra af fremstu myndlistarmönnum Íslands glæða rýmið lífi.

Þegar Winston Churchill kom til Íslands árið 1942 til að hitta F.D. Roosevelt yngri sigldu þeir inn Hvalfjörðinn og sagt er að þeir hafi átt leynifundi í Hólahúsinu, sem þá var kallað dulnefninu Falcon Crest (ísl. Fálkatindur). 

Í húsinu eru þrjú svefnherbergi og tvö baðherbergi, en annað þeirra er samtengt hjónasvítunni. Annað svefnherbergið er með queen-size rúm og sjónvarp með aðgangi að Apple TV og Netflix. 

Í þriðja herberginu eru tvær kojur. Úr hverju herbergi er tilkomumikið útsýni yfir fjöllin og fjörðinn. Opið rými samanstendur af eldhúsi, stofu og borðstofu. Að auki er glæsileg útiaðstaða með tveimur veröndum. Önnur þeirra er yfirbyggð með glerþaki og inniheldur rafmagnshitara, stórt grill, eldstæði og „leynilegu“ náttúrulaugina – þú finnur hvergi betri stað til að horfa á norðurljósin. 

  • Gestir

    6

  • Baðherbergi

    3

  • Svefnherbergi

    3

  • Náttúrulaug til einkanota

    1

  • Rúm

    4