Skip to main content

Hvammsvík – Hot Springs

Restaurant near Reykjavik

Matur & drykkur

Komdu út að borða! Við bjóðum upp á unaðslegan matseðil á veitingastaðnum okkar, sem staðsettur er í aðalbyggingunni þegar komið er í sjóböðin. Fáðu þér drykk á laugarbarnum á meðan þú slakar á í heitri laug.

Fyrir stærri hópa bjóðum við upp á þriggja til sex rétta matseðil og léttari veitingar í Hlöðunni okkar.

Stormur Bistro

Eftir frískandi ferð í sjóböðin mælum við með því að smakka ljúffenga rétti sem gerðir eru úr hráefnum úr nærumhverfi Hvammsvíkur.

 

Vinsælasti rétturinn á Stormi Bistro er án efa sjávarréttasúpan, sem er borin fram með fersku súrdeigsbrauði og smjöri. Einnig er hægt að fá súpuna í vegan útfærslu.

 

Allir drykkir eru einnig fáanlegir beint ofan í húslaugina, sem er sú fyrsta sem mætir þér þegar þú kemur í sjóböðin.

 

Eldhúsið á Stormi Bistro er opið frá 11:30 til 19:30 og á sumrin, frá 1. júní til 20. ágúst, er eldhúsið opið frá 12:00 til 20:30. Ekki er tekið við borðapöntunum.

Hópar og viðburðir

Hópar sem taka böðin í einkaleigu eða leigja öll húsin í gistingunni, geta fengið einkaaðgang að Hlöðunni. Í henni er fyrsta flokks aðstaða fyrir hvers kyns fundarhöld og hópviðburði.

Við bjóðum upp á hópamatseðla sem eru þróaðir sérstaklega eftir þörfum hópsins. Í hlöðunni eru sæti fyrir 10-60 manns. Ef þú ert með fyrirspurn um sitjandi kvöldverð fyrir stærri hóp, endilega láttu okkur vita um fjölda gesta í skjalinu neðst undir hópa bókanir.

Hægt er að velja um þriggja eða fjögurra rétta seðil. Einnig bjóðum við upp á einstaka sjö rétta matarupplifun sem þróuð er af meistara kokkinum Hinriki Karli. Hann mun reiða fram ljúffenga rétti með öllu því besta hráefni sem Hvalfjörður hefur uppá að bjóða.

  • The Barn

Viðtal við yfirkokkinn

Hinrik Karlsson er yfirkokkurinn í Hvammsvík. Hann hefur vandlega sett saman matseðil þar sem hráefni úr nærumhverfinu fá að njóta sín.

  • Hvenær hófst þú störf í Hvammsvík?

    Ég hef unnið hér í 9 ár með eigandanum löngu áður en sjóböðin í Hvammsvík opnuðu. Þessi hugmynd hefur því verið lengi í bígerð og nú erum við að sjá afraksturinn.

  • Hver er innblásturinn á bakvið réttina sem eru í boði á Stormi Bistro?

    Ég myndi segja að umhverfið sé það sem hefur veitt mér mestan innblástur. Við reynum að nota þau hráefni sem umhverfið hefur upp á að bjóða. Þegar sveppatímabilið stendur yfir notum við þá og það sama gildir um berin og auðvitað þangið sem við notum í heilsuskotin okkar.

  • Hver var innblástuinn á bakvið sjávarréttasúpuna?

    Þróunarferlið var langt og strangt en ég uppgötvaði sum hráefnin á ferðalagi erlendis. Þannig varð úr karrýgrunnur sem ég setti saman við ferskt, íslenskt sjávarfang. Þessi einstaka blanda hráefna er það sem gerir réttinn sérstakan.

nordic cuisine Iceland restaurants

Hin víðfræga sjávarréttasúpa

Eftir frískandi ferð í sjóböðin mælum við með því að smakka ljúffenga rétti sem gerðir eru úr hráefnum úr nærumhverfi Hvammsvíkur. Vinsælasti rétturinn á Stormi Bistro er án efa sjávarréttasúpan, sem er borin fram með fersku súrdeigsbrauði og smjöri. Við bjóðum einnig upp á vegan og glútenfrí sjávarþangssúpu og fleiri vegan og glútenfría rétti. Þið getið skoðað matseðilinn hér fyrir ofan.

Icelandic seafood soup or stew at Hvammsvik Stormur Bistro
How to find us

Þú finnur okkur hér

  • 56 km

    frá Reykjavík

  • 98 km

    frá Keflavik

  • 38 km

    Frá Þingvöllum

  • 377 km

    Frá Akureyri