Sundfólk hleypur upp úr firðinum í Hvammsvík á sólríkum vetrardegi

Svartir Dagar – 30% afsláttur

Gerðu vel við þig, eða einhvern sem þér þykir vænt um. Frá föstudeginum 27. til mánudagsins 30. nóvember bjóðum við 30% afslátt af aðgangi í sjóböðin, gjafabréfum í sjóböðin, gjafabréfum í Listamannaskálana og völdum vörum frá Hvammsvík at Home.

  • Gestur situr á brún náttúrulaugar við fjörðinn, snævi þakin fjöll í baksýn

    30% afsláttur af aðgangi í sjóböðin

    Átta náttúrulaugar, gufubað, kaldur pottur og sjórinn sjálfur, 45 mínútur frá Reykjavík. Bókaðu 27.–30. nóvember og komdu hvenær sem er til loka maí.

    Sláðu inn kóðann í greiðsluferlinuBFCM26

    Skilmálar

    Kaupdagur
    Föstudagur 27. – mánudagur 30. nóvember.
    Afsláttur
    Sláðu inn kóðann BFCM26 í greiðsluferlinu.
    Gildir um
    Natural, Classic og Comfort aðgang.
    Gildistími
    Heimsókn þarf að eiga sér stað fyrir 31. maí 2027.
  • Tveir gestir í náttúrulaug á milli steina, snævi þakin fjöll og fjörðurinn í baksýn

    30% afsláttur af gjafabréfum í sjóböðin

    Gefðu heitt vatn og ferskt loft, rétt fyrir jólin. Keyptu gjafabréf í sjóböðin handa einhverjum sem þér þykir vænt um, eða handa sjálfum þér.

    Enginn kóði. Afslátturinn er þegar kominn inn í verðið.

    Skilmálar

    Kaupdagur
    Föstudagur 27. – mánudagur 30. nóvember.
    Afsláttur
    Þegar kominn inn í verðið. Enginn kóði.
    Gildir um
    Gjafabréf í sjóböðin eingöngu.
    Athugið
    Skilmálar hvers gjafabréfs gilda.
  • Stofa í Listamannaskálunum með gólfsíðum gluggum út að firðinum

    30% afsláttur af gjafabréfum í Listamannaskálana

    Gefðu gistingu við fjörðinn. Keyptu dvöl í Listamannaskálunum sem gjafabréf, handa einhverjum sérstökum eða handa sjálfum þér, til að nota síðar.

    Enginn kóði. Afslátturinn er þegar kominn inn í verðið.

    Skilmálar

    Kaupdagur
    Föstudagur 27. – mánudagur 30. nóvember.
    Afsláttur
    Þegar kominn inn í verðið. Enginn kóði.
    Gildir um
    Gjafabréf í Listamannaskálana eingöngu.
    Gildir ekki um
    Beinar bókanir í Listamannaskálana.
  • Sturtusápa, sjampó og hárnæring frá Hvammsvík á rekaviði með þangi

    30% afsláttur af völdum vörum frá Hvammsvík at Home

    Taktu smá af Hvalfirði með þér heim, með vörum úr Hvammsvík Collection.

    Enginn kóði. Afslátturinn er þegar kominn inn í verðið.

    Skilmálar

    Kaupdagur
    Föstudagur 27. – mánudagur 30. nóvember.
    Afsláttur
    Þegar kominn inn í verðið. Enginn kóði.
    Gildir um
    Valdar vörur frá Hvammsvík at Home eingöngu.
    Gildir ekki um
    Jólakarfa Hvammsvík at Home.
Verk eftir Lilju Cardew fyrir jólagjafabréf Hvammsvíkur: náttúrulaug umkringd steinum undir fjöllunum í vetrarsól

Útprentað gjafabréf

Jólagjafabréfið í ár er listaverk. Íslenska listakonan Lilja Cardew teiknaði þessa vetrarmynd af náttúrulaug í Hvammsvík fyrir okkur: steinana kringum laugina, fjöll Hvalfjarðar og lága vetrarsólina á vatninu.

Á prentaða gjafabréfinu er verkið hennar að framan og gjafabréfið sjálft prentað á bakhliðina.

Til að fá prentað gjafabréf kaupir þú gjafabréf í Sjóböðin á netinu eins og venjulega og hefur svo samband við okkur á info@hvammsvik.com og biður um það prentað á verkið hennar Lilju. Prentað gjafabréf kostar 500 kr. og er sótt á skrifstofu okkar í Grófinni 1 í miðbæ Reykjavíkur. Prentað gjafabréf fylgir líka öllum jólagjafakörfunum.

Listakonan Lilja Cardew við vinnuborðið á vinnustofunni, umkringd blýöntum, penslum og kertum

Um listakonuna

Lilja Cardew er margverðlaunaður teiknari og myndlistarmaður frá Íslandi. Hún lauk BA (Hons)-gráðu í myndskreytingum frá Leeds Arts University árið 2023 og starfar í dag sem sjálfstætt starfandi teiknari á milli Reykjavíkur og London.

Lilja hefur sterka tengingu við náttúruöflin og segir sjálf að það komi skýrast fram í því hvernig hún tekur eftir smáatriðunum í umhverfi sínu: „Að alast upp á Íslandi, þar sem hrá orka náttúrunnar minnir stöðugt á sig, bæði í stórkostlegri fegurð og í ýktu veðurfari, hefur markað mig sem myndlistarkonu, því ég er ávallt meðvituð um litlu stundirnar sem dagar okkar byggjast á.“

Það er okkur hjartans mál að styðja við íslenska listamenn. List er alls staðar í Hvammsvík, í húsunum, í Hlöðunni og um alla jörðina, og í listasafni Hvammsvíkur mætast íslenskir samtímalistamenn og gömlu meistararnir. Jólagjafabréfið er enn ein leiðin til að færa nýja íslenska list til þeirra sem okkur þykir vænt um.