Jólagjafahugmyndir

Gefðu nærandi heimsókn í ósvikna íslenska náttúru

Jólagjöfin í ár er stund í Hvammsvík. Við bjóðum upp á gjafir sem færa þeim sem þér er annt um endurnærandi íslenska náttúruupplifun. Hjá okkur finnur þú gjafirnar handa þeim sem skipta þig máli.

Hvort sem það er gjafabréf upp á einstaka stund í sjóböðunum í Hvammsvík eða gjafavörur frá Hvammsvík sem endurnæra húð, hár og heimilið.

Gjafabréf í Sjóböðin jólagjöf

Hvað gefurðu þeim sem eiga allt og segjast ekkert þurfa? Gefðu ekta íslenska náttúruupplifun!

Þú skapar upplifun og kemur þeim á óvart með gjafabréfi í Hvammsvík. Gjafabréfin eru fyrir tvo og gilda í tvö ár frá útgáfudegi. Þú færð þau send beint með tölvupósti og getur því prentað þau út eða áframsent þau.

Við bjóðum upp á tvenns konar gjafabréf; gjafabréf á ákveðinn aðgang eða upphæðargjafabréf sem eru tilvalin ef þú vilt bæta við gómsætri máltíð eftir heimsóknina í böðin.

hot springs in iceland near reykjavik atlantic beach
hvammsvík restaurant veitingastaður Stormur Bistro Hot Spring Resort
Kona stendur á steini í sjónum í ljósaskiptunum

Gjafabréf í gistingu í Hvammsvík

Við bjóðum nú upp á gjafabréf í gistinguna okkar í Hvammsvík.

Gjafabréfin gilda í gistingu í nýju Listamannaskálunum okkar. Þar má finna tveggja manna svefnherbergi, baðhergi, eldhúskrók og stofu með einstöku útsýni út Hvalfjörðinn.

Hægt er að velja úr nokkrum möguleikum um árstíma og með matarkörfum.

Gefðu íslenskar nætur í jólagjöf.

Stofa í listamannaskála með útsýni
Interior of a cabin which we call the Artist Lodge
Listamannaskálarnir á túninu í Hvammsvík

Jólagjafir fyrir heimilið

Hvammsvíkurvörurnar eru án allra aukaefna og færa íslenskan sumarilm inn á heimilið allt árið í kring. Ilmkjarninn er unninn úr jurtum úr svæðinu í kringum sjóböðin og öll framleiðsla fer fram á Íslandi og eru vörurnar því íslensk hönnun og framleiðsla frá upphafi til enda.

Hægt er að velja um sjampó, hárnæringu, handsápu, sturtusápu og húðolíu en einnig er hægt að fá híbýlailm og ilmkerti. Þá fæst einnig gjafa/ferðasett með öllu fyrir baðferðina.

Hár og húðvörurnar hreinsa vel án þess að valda þurrki í húð og hári og fjarlægja ekki náttúrulegt verndarlag húðarinnar og hársins.

Íslenskar jólagjafir jólagjafahugmyndir íslensk hönnun
scent made in iceland from natural products
aroma therapy made in iceland