
Spurt og svarað um Hvammsvík
Hvammsvík Sjóböð eru 45 mínútur frá Reykjavík. Sjá hér – How to find us hvernig best er að finna okkur.
Við getum ekki lofað inngöngu í böðin ef að fólk mætir of seint. Það er klukkutíma gluggi til að mæta frá því að setti tíminn ykkar byrjaði.
Það er bílastæði fyrir alla gesti Hvammsvíkur.
Hvammsvík Sjóböð eru opin allt árið kring ef að veðrið leyfir. Ef vegurinn að Hvammsvík er lokaður, þá er lokað hjá Hvammsvík þann dag. Sjá nánari upplýsingar um færð á vegum hér – færð á vegum.
Ef við sjáum að það er óveður á leiðinni, þá gerum við okkar besta að hafa samband við þá sem eiga bókað hjá okkur og hjálpa ykkur að finna nýjan tíma.
Ekki er veittur afsláttur af mat og drykk en verðlagningu er ætíð stillt í hóf.
Í Hlöðunni er háhraða internet tenging, 65” flatskjár með HDMI tengi og Apple tv tengingu. Þar er einnig Bluetooth hátlari.
Gestum er heimilt að vera til 22:00 í Hlöðunni.
Já, en þá er greitt tappagjald fyrir þá drykki sem neytt er yfir daginn. 3.500 kr. fyrir vínflöskur og 500 kr. fyrir bjór/gos.
Já. Þrifagjald fyrir leigu á Hlöðunni. 75.000 kr.
Öll eru velkomin í Sjóböðin í Hvammsvík. Eins og staðan er núna, þá bjóðum við upp á karla- og kvennaklefa. Gestum er velkomið að nota þá klefa sem þeim líður best í.
Ef þú kýst meira næði, láttu starfsfólkið í móttökunni vita og þau geta farið yfir þá kosti sem eru í boði. Við bjóðum upp á lokaða aðstöðu í klassískus/þæginda klefunum sem hægt er að nota til að skipta um föt í einrúmi og þar bjóðum við einnig upp á sturtuklefa sem hægt er að loka.
Aldurstakmarkið í Sjóböðin í Hvammsvík eru 10 ár. Börn á aldrinum 10-18 ára þurfa að vera í fylgd með fullorðnum og eru á ábyrgð þeirra.