
Vatnahúsið
Vatnahúsið er bjart og opið með mögnuðu útsýni yfir stöðuvatnið okkar og Hvalfjörðinn. Húsið er lúxus-sveitaskáli með öllum nútímaþægindum. Þar eru tvö svefnherbergi og tvö baðherbergi – tilvalið fyrir fjölskyldur eða tvö pör. Eldhús, stofa og borðstofa eru í opnu rými.
Vatnahúsið er ríkulega skreytt íslenskri myndlist eftir eitthvert efnilegasta listafólk landsins en stærsta listaverkið sést þegar litið er út um gluggana og umhverfi hússins blasir við.
Hvammsvík er tilvalinn staður til að skoða norðurljósin og gestir sem leigja hús hjá okkur hafa þann kost að ganga um svæðið í friði og ró, meðfram ströndinni eða upp í fjöllin, á meðan norðurljósin dansa.