Hvammsvík
Kjósarhreppur
276 Mosfellsbær
Iceland
info@hvammsvik.com
+354 5105900

Bóndabærinn

Bóndabærinn er elsta húsið á svæðinu, en líkt og nafnið gefur til kynna var það upprunalega bóndabærinn á Hvammi. Húsið hefur verið gert upp og öllum nútímaþægindum komið fyrir. 

Fyrir utan er heitur pottur til einkanota þaðan sem er hægt að njóta stórbrotins útsýnis yfir hafið. Bóndabærinn hentar sérlega vel fyrir stórar fjölskyldur eða vinahópa. Á jarðhæð er sjónvarpsherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu (þvottavél og þurrkara) og svefnherbergi með fjórum kojum. Önnur hæð er aðalhæðin en þar er opið rými sem samanstendur af eldhúsi, borðstofu og stofu. Á þriðju hæð eru svo tvö svefnherbergi og lítið baðherbergi. 

Auk heita pottsins eru grill og útiborðstofa á glæsilegri veröndinni. Húsið er ríkulega skreytt með íslenskri myndlist þótt náttúrufegurð staðarins eigi það til að stela senunni. Húsið var byggt árið 1930 sem hefðbundinn þriggja hæða bóndabær. Útsýnið er glæsilegt; horft er yfir allt Hvammsvíkurlandið og Hvalfjörðurinn blasir við. 

  • Gestir

    9

  • Baðherbergi

    2

  • Svefnherbergi

    3

  • Private hot spring

    1

  • Rúm

    8