Jólahlaðborð 2024

    Gerðu betur við hópinn þinn í Hvammsvík. Við bjóðum upp á jólahlaðborð fyrir hópa í magnþrungnu umhverfi. Einstök upplifun sem er innrömmuð af kyrrð íslenskrar náttúru, rétt frá Reykjavík.

    Jólahlaðborð fyrir hópa

    Hvammsvík er fullkominn staður fyrir hópa til að hittast og gera sér glaðan dag fyrir jólin. Hvort sem um er að ræða starfsmannafélög, félagasamtök eða vinahópa.

     

    Í aðeins 45 mínútna fjarlægð frá miðbæ Reykjavíkur bíður hópnum einstök upplifun í stórbrotnu landslagi.

     

    Frá 14. nóvember til og með 15. desember tökum við á móti hópum sem telja á bilinu 20 til 60 manns.

     

    Verð á mann eru 19.900 krónur. Innifalið í verðinu er jólahlaðborð í veislusalnum okkar, Hlöðunni og aðgangur fyrir hópinn í sjóböðin.

     

    Tvær tímasetningar eru í boði fyrir hlaðborðið:

    • 16:00. Val um sjóböðin klukkan 13:30 eða 18:00
    • 20:00. Aðgangur í sjóböðin klukkan 17:30

    Það er takmarkað pláss í boði. Því borgar sig að bóka tímanlega.

    Bókaðu hér 

      Hlaðan

      Jólahlaðborðið verður borið fram í Hlöðunni í Hvammsvík.

      Gamla hlaðan var öll tekin í gegn og gerð upp og þjónar í dag sem fullkomið funda- og veislurými.

       

      Listaverkin sem prýða rýmið ásamt útsýninu skapar ómótstæðilega stemningu.


      Í Hlöðunni er háhraða Internet tenging og hægt er að tengjast við 65" sjónvarp, skjávarpa og hljóðkerfi.

       

      Athugið að um 10-15 mínútna ganga er frá Hlöðunni í sjóböðin.

        Matseðillinn

        Matseðillinn á jólahlaðborði Hvammsvíkur er innblásinn af norrænum jólahefðum og hráefni nærumhverfisins.


        Um er að ræða fimm rétta veislumáltíð sem blandar saman sjávarréttum og kjötréttum. Einnig eru í boði valkostir sem innihalda ekki dýraafurðir.

         

        Við pöntun er mikilvægt að taka fram óskir um aðra valkosti og jafnframt láta vita um ofnæmi eða óþol sem þarf að taka tillit til.


        Drykkjaseðill er í boði en einnig verður vínpörun í boði sé þess óskað.

          Njótið skammdegisins í sjóböðunum

          Sjóböðin í Hvammsvík eru fullkomin leið til að slaka á fyrir jólahlaðborðið eða til að liggja á meltunni að máltíð lokinni.

           

          Sjóböðin samanstanda af átta misheitum laugum og gufubaði.

           

          Gestir sem vilja kæla sig niður geta fengið sér drykk á sundlaugarbarnum eða skellt sér í Norður Atlantshafið.

           

          Hver heimsókn í Hvammsvík er einstök og stjórnast af náttúruöflunum: veðrinu, sólargangi og sjávarföllunum.

           

          Vinsælt er hjá fyrirtækjum að gefa gjafabréf í Hvammsvík sem jólagjafir starfsmanna.

           

            Hafðu samband

            Fylltu inn formið fyrir neðan og við höfum samband.

            How to find us How to find us

            How to find us

            • 56 km

              from Reykjavík

            • 98 km

              from Keflavik Airport

            • 38 km

              from Thingvellir

            • 377 km

              from Akureyri