jólagjafir fyrirtækja

    Jólagjafir fyrirtækja

    Leggðu rækt við mannauð og viðskiptavini í ár og gefðu íslenska náttúruupplifun. Með Hvammsvík í jólapakkanum ertu að gefa ávísun á afslöppun í einstöku umhverfi. Við bjóðum bæði upp á gjafabréf í sjóböðin og vörur í heimilislínunni okkar.

    Gæðastund í Hvammsvík er tilvalin jólagjöf

    Sjóböðin í Hvammsvík eru römmuð inn af fjallasýn Hvalfjarðarins. Hvort sem það er á flóði eða fjöru, í vetrarkyrrð eða á sumarkvöldi, þá er hver heimsókn í Hvammsvík einstök.

    Hægt er að velja um gjafabréf í Sjóböðin eða gistingu eða gefa vörurnar frá Hvammsvík.

    Gefðu íslenska náttúru í jólagjöf

    • Hvammsvik hot spring resort Iceland jólagjafir gjafabréf

      Klassískur aðgangur fyrir tvo

      Gjafabréf upp á nærandi stund í íslenskri náttúru. Hægt er að nýta gjafabréf í Hvammsvík allt árið í kring. Með klassískum aðgangi fylgja afnot af inniklefunum okkar og læstum skáp fyrir föt. Þar má finna lokaða sturtubása og lokaðan klefa. 

    • hot springs in iceland near reykjavik atlantic beach

      Klassískur aðgangur og þægindapakki fyrir tvo

      Í þægindapakkanum er klassískur aðgangur í Sjóböðin með fríum drykk á laugarbarnum. Auk þess fylgir lán á handklæðum og vaðskóm með í þægindapakkanum. 

    • hvammsvík restaurant veitingastaður Stormur Bistro Hot Spring Resort

      Gjafabréf í Hvammsvík og máltíð

      Við bjóðum upp á gjafabréf sem eru ávísun á ákveðna upphæð sem viðtakandi getur notað eftir eigin óskum. Þau eru tilvalin ef þú vilt gefa aðgang í sjóböðin og máltíð á Stormi Bistro. Upphæðirnar á gjafabréfunum eru á bilinu 15.000 til 30.000.

    • Jólagjafir jólagjafahugmyndir íslensk framleiðsla snyrtivörur

      Ferðasett og gjafabréf

      Í ferðasettinu má finna sjampó, hárnæringu og sturtusápu í handhægum 100ml umbúðum. Allar vörurnar koma í nettri snyrtitösku og eru með Hvammsvíkurilminum sem minnir á íslenskt sumar. Hægt er að velja um hvernig gjafabréf fylgir.

    • natural products made in iceland shampoo body oil conditioner body wash scented candle souvenirs from iceland gjafavörur

      Baðpakkinn

      Í baðpakkanum eru vinsælustu vörurnar í Hvammsvíkurlínunni okkar: sjampó, hárnæring og sturtusápa. Vörurnar bera ilm af íslensku sumarkvöldi með grunntónum af melgresi, berjalyngi og bóluþangi. Þær koma í 300ml umbúðum.

    • Gjafabréf í gistingu

      Hægt er að kaupa gjafabréf í gistingu í Listamannaskálunum í Hvammsvík yfir vetrartímann. Í hverjum skála er svefnherbergi fyrir tvo, baðherbergi og stofa með eldhúskrók. Gefðu gistingu í íslenskri náttúrukyrrð með óviðjafnanlegu útsýni út Hvalfjörðin. 

    Sérpantanir

    Það er hægt að velja um gjafabréf og einstaka vörur en vinsælasta fyrirtækjagjöfin hefur verið ferðasettið með gjafabréfi í sjóböðin. Einnig er hægt að setja saman pakka að óskum hvers fyrirtækis fyrir sig.

    Pantanir á gjafavörum þurfa að berast fyrir 1. desember og verða afhentar fyrir 14. desember.

    The Auroras Iceland Hot Springs Northern Lights

    Fáðu tilboð í þinn pakka

    Láttu okkur vita hvað þú hefur í huga og við svörum þér fljótt.

    "*" indicates required fields