Hvammsvíkursundið 2023 – Hvammsvik Ocean Swim

Hvammsvíkursundið verður haldið í annað sinn sunnudaginn 10. september kl. 11:00. Lagt verður upp frá sjóböðunum í Hvammsvík og sundleiðin er 1,2 km hringur í kringum hólmann í víkinni. Svæðið hentar einstaklega vel til sjósunds og lítið um strauma.
Sundið kostar sundið 9.900 kr. Innifalið er aðgangur í sjóböðin í Hvammsvík að sundi loknu og heit súpa. Þátttakendur fá einnig sundhettu merkta Hvammsvíkursundi.
Mæting í sjóböðin í Hvammsvík kl. 10:00. Sundið hefst kl. 11:00
Reikna má með að sjórinn verði um 10 gráður.
Gæsla verður á staðnum.
- Athugið að þátttakendur eru á eigin ábyrgð í sundinu. Sundfólk verður þó að hlýða kalli starfsmanna við gæslu um að koma upp úr sjónum ef starfsmönnum sýnist komið í óefni.
- Gerð er krafa um að sundfólk hafi synt Fossvogssundið eða sambærileg sund áður.
- Ef sundfólk hefur ekki lokið sundinu að 1 klst. liðinni verður það tekið um borð í bát og siglt í land.
- Mikilvægt er að vera vel hvíldur og nærður þegar lagt er af stað í sundið.
- Litríkar sundhettur eru skylda til að auðvelda starfsmönnum að sinna öryggisgæslu.
ATH! Með skráningu og kaupum á miða staðfestir þú að þú hafir lesið almenna skilmála Hvammsvíkur sjóbaða og sértæka skilmála tengda Hvammsvíkursundinu um eigin ábyrgð sundfólks vegna þátttöku. Sjá hér.
______
Come join the official ocean swimming event at Hvammsvík on Sunday September 10th at 11:00am.
The route is a 1,2 km circle route around islets in the bay. The area has little currents and is great for ocean swimming.
The admission ticket will be 9.900 ISK. Included in the admission ticket is access to Hvammsvík Hot Springs after the swim and a hot soup. Participants will also receive a custom made swim cap.
Participants are to arrive at Hvammsvík Hot Springs at 10:00am. The swim starts at 11:00am.