Hvammsvíkursundið 2022 – Hvammsvík ocean swim

Hvammsvíkursundið verður haldið í fyrsta sinn sunnudaginn 4. september kl. 10.30. Lagt verður upp frá sjóböðunum í Hvammsvík og sundleiðin er 1.2 km hringur í kringum hólma í víkinni. Svæðið hentar einstaklega vel til sjósunds og lítið um strauma.
Sundið kostar 7.900 kr. Innifalið er aðgangur í sjóböðin í Hvammsvík að sundi loknu og heit súpa. Þátttakendur fá einnig glæsilega sundhettu merkta þessu fyrsta Hvammsvíkursundi.
Mæting í sjóböðin í Hvammsvík kl. 9.45. Sundið hefst kl. 10.30
Reikna má með að sjórinn verði um 10 gráður.
Gæsla verður á staðnum.
- Athugið að þátttakendur eru á eigin ábyrgð í sundinu. Sundfólk verður þó að hlýða kalli starfsmanna við gæslu um að koma upp úr sjónum ef starfsmönnum sýnist komið í óefni.
- Gerð er krafa um að sundfólk hafi synt Fossvogssundið eða sambærileg sund áður.
- Ef sundfólk hefur ekki lokið sundinu að 1 klst. liðinni verður það tekið um borð í bát og siglt í land.
- Mikilvægt er að vera vel hvíldur og nærður þegar lagt er af stað í sundið.
- Litríkar sundhettur eru skylda til að auðvelda starfsmönnum að sinna öryggisgæslu.
ATH! Með skráningu og kaupum á miða staðfestið þið að hafið lesið almenna skilmála Hvammsvíkur sjóbaða og sértæka skilmála tengda Hvammsvíkursundinu um eigin ábyrgð sundfólks vegna þátttöku. Sjá hér.
Ættingjum eða vinum sem vilja fylgja sundfólki er frjálst að kaupa miða. Vinsamlegast takið þá fram í “Athugasemdum” í skráningarferlinu að viðkomandi ætli sér ekki að taka þátt í sundinu.
______
Come join the first official ocean swimming event at Hvammsvík on Sunday September 4th at 10.30am.
The route is a 1.2 km circle route around islets in the bay. The area has little currents and is great for ocean swimming.
Admission is 7900 ISK. Included in the admission ticket is access to Hvammsvík Hot Springs after the swim and a hot soup. Participants will also receive a custom made swim cap.
Participants are to arrive at Hvammsvík Hot Springs at 9.45am. The swim starts at 10.30am.