Hvammsvíkur Víkingurinn
22. Október 2022 kl. 13:00 – 16:00

Keppt er í að lyfta Atlas Grjótunum 75 kg, 120 kg og 170 kg.
Keppendur þurfa að skrá sig á heimasíðu Hvammsvíkur og bóka sér tíma til þess að taka þátt í keppninni. Til þess að taka þátt þarf að greiða 5.000 krónur í skráningargjald sem er greitt í á netinu og því fylgir aðgangur í böðin. Bóka þarf jafnframt miða á vefsíðu Hvammsvíkur fyrir gesti sem fylgja keppendum og ætla ofan í böðin verður miðaverð 5.000 þann tíma sem keppnin stendur yfir.
Hámarksfjöldi keppanda er 100 manns, mikilvægt að keppendur séu komnir kl 13:00.
Veglegir vinningar í boði Hvammsvíkur og World Class fyrir þá sem ná að lyfta grjótunum og fara með sigur af hólmi í Hvammsvíkur Víkingnum.
Fyrstu verðlaun – The King 170 kg.
1 milljón peningaverðlaun, aðgangur fyrir tvo í Betri stofuna í Laugum Spa og ævi aðgangur í Hvammsvík.
Önnur verðlaun – The Standard 120 kg
2 nátta gisting í Hvammsvík sem þarf að bóka fyrirfram. Ótakmarkaður aðgangur í böðin þá daga sem gist er, ásamt aðgangi fyrir tvo í Betri stofuna í Laugum Spa.
Þriðju verðlaun – The Lightweight 75kg
Aðgangur fyrir tvo í böðin ásamt aðgangi í Betri stofuna í Laugum Spa.
Dómari er Ari Gunnarsson
Í samstarfi við Wordclass
![]()
Reglur og skilmálar
Keppendur þurfa að lyfta grjótinu upp á öxl í fjörunni og halda grjótinu þar í 2 sekúndur og birta lyftuna á samfélagsmiðum og merkja Hvammsvík í færslunni.
Keppendur þurfa að lyfta grjótunum í þyngdarröð til þess að komast áfram í næsta flokk.
Frá 75 kg, 120 kg til 170 kg.
Engir aukahlutir eða hjálpartæki leyfileg og þar með talið harpex eða klístur.
Hvammsvík áskilur sér rétt að nýta myndefni frá keppninni í markaðssetningu og á samfélagsmiðlum.
Þátttakendur taka þátt á eigin ábyrgð og bera ábyrgð á sínu eigin öryggi í keppninni og hvetjum við keppendur til þess að sýna aðgát.
Steinarnir eru í sandi í fjörunni og lyftan fer fram í sandinum og því þarf hver og einn að ákveða hvort að undirlagið henti lyftunni.
Keppnin byrjar 13:00 og stendur til 16:00 og keppendur þurfa að mæta innan tímarammans til að að taka þátt.
Komið getur til frestunar á keppni ef veðurskilyrði eru óhagstæð á keppnisdegi.