Hugarró og Djúpslökun með Evu og Silju
Sunnudagur 18.okt 11:00
Hvammsvík Hot Springs

Endurnærandi stund í Hvammsvík þar sem mjúkt jógaflæði, öndunaræfingar & djúpslökun munu leiða þig inn í dýpri kyrrð & ró.
Aðgangur að sjóböðunum og sjávarréttasúpa er innifalið í námskeiðsverði.
Á þessu námskeiði verður lögð áhersla á :
Meðvitaða öndun – við notum öndunina til að róa hugann, tengjast líkamanum og færa okkur inn í meiri kyrrð.
- Mjúkt jógaflæði – rólegar og mjúkar hreyfingar sem hjálpa okkur að losa um spennu og streitu í líkamanum.
- Yin Yoga – við dveljum í góða stundu í stöðunum, gefum líkamanum tíma og rými, æfum okkur í að vera í núinu og að líta inn á við.
- Bandvefslosun – við notum bolta til að losa um spennu og vinna með auma vöðva og bandvef líkamans.
- Djúpslökun – við hægjum enn frekar á og leiðum líkama og huga inn í djúpa hvíld og ró.
- Fræðslu – við skoðum taugakerfið og hvernig við getum nýtt einföld verkfæri & bjargráð til að skapa meiri ró og jafnvægi í daglegu lífi.
- Sjódýfu – frískandi upplifun fyrir þau sem vilja.
Þessi dagur hentar jafnt byrjendum sem og lengra komnum. Dýnur verða á staðnum en við mælum með að koma með eigin sundföt og handklæði fyrir Sjóböðin í Hvammsvík.
Verð : 45.000 kr